Einungis 54 prósent ætla að kjósa fjórflokkinn

Fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði var lengi vel með 90 pró­sent fylgi á Íslandi. Sá tími er lið­inn og nú ætlar rúmur helm­ingur lands­manna að kjósa hann. Hug­mynda­fræði­leg skipt­ing atkvæða virð­ist þó ekki breyt­ast mikið. Það eru bara fleiri flokkar í hverjum klasa.

Þingflokksformenn þeirra sex flokka sem eiga nú fulltrúa á Alþingi kveðja Einar K. Guðfinnsson, forseta þingsins á fimmtudag.
Þing­flokks­for­menn þeirra sex flokka sem eiga nú full­trúa á Alþingi kveðja Einar K. Guð­finns­son, for­seta þings­ins á fimmtu­dag.

Sögulega hafa fjórir flokkar verið und­ir­staðan í íslenskum stjórn­málum. Þeir hafa stundum skipt um nafn en á hinu póli­tíska lit­rófi hafa þeir raða sér nokkuð skýrt frá vinstri til hægri í ára­tugi. Sam­an­lagt hafa þessir fjórir flokkar, sem í dag heita Vinstri­hreyf­ingin grænt fram­boð, Sam­fylk­ingin, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, verið með um 90 pró­sent allra atkvæða.

En nú hefur orðið breyt­ing á. Samtals mælist fylgi þess­ara fjög­urra flokka ein­ungis 54,1 pró­sent. Það er minna fylgi en flokk­arnir fjórir hafa nokkru sinni mælst með í skoð­ana­könn­unum. Og það fer dalandi með hverri vik­unni. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

Þrír flokkar, Píratar, Björt fram­tíð og Viðreisn – sem stofn­aðir voru í aðdrag­anda kosn­ing­anna 2013 eða þeirra sem fara fram eftir tvær vikur – mæl­ast sam­an­lagt með 38 pró­sent fylgi. Allt stefnir því í að sjö flokkar nái inn full­trúum á Alþingi eftir kosn­ing­arnar sem fram fara 29. októ­ber næst­kom­andi. Það hefur ein­ungis einu sinni gerst á lýð­veld­is­tím­anum, eftir kosn­ing­arnar 1987.

Björt Framtíð stærri en Samfylkingin

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spánni er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærsti flokkur lands­ins. Alls myndu 22,1 pró­sent kjós­enda greiða honum atkvæði ef kosið yrði í dag. Píratar koma þar á eftir með 19,2 pró­sent.

Vinstri græn virð­ast á mik­illi sigl­ingu á loka­spretti kosn­inga­bar­átt­unnar. Í lok sept­em­ber var fylgi flokks­ins 12,7 pró­sent en það mælist nú þremur pró­sentu­stigum hærra, eða 15,4 pró­sent.

Hinn flokk­ur­inn sem hefur verið á fleygi­ferð upp á við í síð­ustu könn­unum er Björt fram­tíð. Allt frá því að þing­flokkur hennar kaus gegn búvöru­samn­ing­unum á Alþingi hefur fylgið auk­ist. Það mæld­ist rétt rúm­lega þrjú pró­sent um miðjan sept­em­ber en er nú 7,9 pró­sent,sem er ekki langt frá kjör­fylgi flokks­ins í síð­ustu kosn­ingum þegar hann fékk 8,2 pró­sent atkvæða og sex þing­menn kjörna. Þau merkis­tíð­indi eru líka í nýj­ustu kosn­inga­spánni að Björt fram­tíð mælist stærri en Sam­fylk­ingin, sem er hug­mynda­fræði­lega stað­sett næst Bjartri fram­tíð, en hún mælist með 7,5 pró­sent fylgi. Það er í fyrsta sinn síðan að Kjarninn hóf að birta kosn­inga­spár sem það ger­ist.

For­manns­upp­gjörið í Fram­sókn­ar­flokknum virð­ist hafa gert lítið til að hjálpa þeim flokki að ná í aukið fylgi. Flokk­ur­inn mælist nú með 9,1 pró­sent stuðn­ing og hann hefur dalað stans­laust síð­ustu vikur. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn fékk 24,4 pró­sent atkvæða i kosn­ing­unum 2013 og því er ljóst að það stefnir í ansi breyttan veru­leika hjá flokknum að loknum kom­andi kosn­ingum að óbreyttu.

Er fjórflokkurinn ekki dauður, heldur sundraður?

Líkt og áður sagði þá er fylgi fjór­flokks­ins svo­kall­aða ein­ungis 54,1 pró­sent. Það er þó ekki svo klippt og skorið að álykta að nálgun íslensku þjóð­ar­innar á stjórn­mál hafi ein­fald­lega gjör­breyst svo rosa­lega að gömlu hug­mynda­fræði­legu hólfin sem fjór­flokk­ur­inn skil­greindi sig eftir eigi ekki enn við að ein­hverju leyti.

Samkvæmt Kosn­inga­vit­anum, gagn­virkri vef­könnun sem á að gefa kjós­endum tæki­færi til að sjá hvar þeir standa í sam­an­burði við stjórn­mála­flokka og fram­boð til Alþingis 2015 í hug­mynda­fræði­legri afstöðu og helstu mál­efnum kosn­inga­bar­átt­unnar, þá eru fjórir hug­mynda­fræði­legir klasar í íslenskum stjórn­málum þegar flokk­unum 12 sem ætla að bjóða fram er raðað á tvo ása: alþjóða­hyggju til þjóð­hyggju og frá félags­hyggju til mark­aðs­hyggju.

Athygl­is­vert er að fylgi hvers klasa fyrir sig er mjög sam­bæri­legt og fylgi hvers fjór­flokk­anna var fyrir rúmum tólf árum síðan. Þannig mælist sam­an­lagt fylgi Pírata, Bjartrar fram­tíðar og Sam­fylk­ingar í dag 34,6 pró­sent. Sam­fylk­ingin mæld­ist með 33,6 pró­sent í júní 2004.

Sam­an­lagt fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Við­reisnar – en þar inn­an­búðar eru margir fyrr­ver­andi Sjálf­stæð­is­menn sem yfir­gáfu þann flokk vegna áherslna hans í alþjóða­málum – mælist nú 33 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist með 31,1 pró­sent í júní 2004.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Íslenska þjóð­fylk­ingin mæl­ast nú saman með um 11,5 pró­sent fylgi en Framsókn mæld­ist ein og sér með 13 pró­sent fylgi í júní 2004.

Á Vinstri vængnum virð­ist mesti klofn­ing­ur­inn vera. Þar eru Vinstri græn, Alþýðu­fylk­ingin, Dögun, Flokkur fólks­ins og Húman­ista­flokk­ur­inn öll að fiska í sömu félags­hyggju­tjörn­inni sam­kvæmt Kosn­inga­vit­anum. Í Kosn­inga­spá Kjarnans mæl­ast tveir þess­ara flokka – Vinstri græn og Dögun – með nægi­legt fylgi til að vera greint sér­stak­lega. Sam­an­lagt mæl­ast þessir tveir flokkar með 16,7 pró­sent. Í júní 2004 mæld­ist fylgi Vinstri grænna 17,5 pró­sent.

Um kosn­inga­spána 14. októ­ber

Nýjasta kosn­­inga­­spáin tekur mið af fjórum nýj­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­boða í Alþing­is­­kosn­­ing­unum í haust. Í spálík­­an­inu eru allar kann­­anir vegnar eftir fyrir fram ákveðnum atrið­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­fall, lengd könn­un­­ar­­tíma­bils og sög­u­­legur áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila. Kann­an­­irnar sem kosn­­inga­­spáin tekur mið af eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 6. – 13. októ­ber (23,9%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 6. – 12. októ­ber (24,9%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 3. – 12. októ­ber (33,1%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 10. – 11. októ­ber (18,1%)

Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­raun vel. Á vefn­um kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­um..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Skýringkosningaspá

Sjö flokkar gætu náð inn á þing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi,...
Skýringkosningaspá

Píratar sökkva en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer á flug

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar með stuðn­ing 25,3 pró­sent kjós­enda. Píratar hafa tapað nokkru fylgi und­an­farið og mæl­ast nú með aðeins 21,9 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni sem gerð var 28. sept­em­ber. Til sam­an­burðar má geta þess að fyrir um hálfum mán­uði mæld­ust Píratar með 25,8 pró­sent. Stuðn­ingur við fram­boð Pírata nú er jafn­framt minni en...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár