Samfylking og Framsókn stefna í sögulegt afhroð

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins og hefur verið að bæta við sig fylgi á loka­sprett­inum. Píratar hafa fundið stöð­ug­leika og VG og Viðreisn geta vel við unað. En tveir rót­grónir flokkar stefna á að fá verstu útreið sína í sög­unni.

Flokk­arnir sem vilja mynda stjórn sam­an­setta af sömu flokkum og stýra Reykja­vík­ur­borg mæl­ast með sam­tals með 49,6 pró­sent fylgi, sem gæti dugað þeim til að mynda mjög nauma meiri­hluta­stjórn eftir kosn­ingar.

Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stefna í að fá verstu kosn­ingu sína í alþing­is­kosn­ingum frá því að flokk­arnir voru stofn­aðir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærsti flokkur lands­ins og fátt virð­ist geta ógnað þeirri stöðu. Hann mælist hins vegar með fylgi sem er rétt við verstu nið­ur­stöðu hans í sög­unni. Þetta er nið­ur­staða nýj­ustu Kosn­inga­spár Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar sem hefur nú verið upp­færð eftir birt­ingu þriggja nýrra kann­ana frá því í gær­kvöldi. Nú á ein­ungis eftir að birta eina skoð­ana­könnun fyrir kosn­ing­arnar sem fram fara á morgun, könnun Gallup sem birt verður í kvöld.

Miðað við stöð­una eins og hún teikn­ast nú upp eru sögu­leg tíð­indi í kort­unum í íslenskum stjórn­málum. Fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði, hið hefð­bundna bak­bein þeirra ára­tugum saman sem vana­lega hafa tekið til sín allt að 90 pró­sent atkvæða, mæl­ast sam­an­lagt með 57,1 pró­sent fylgi. Þrír flokkar sem stofn­aðir hafa verið frá árinu 2012 mæl­ast á sama tíma með 37,3 pró­sent sam­an­lagt fylgi. Allt stefnir í að sjö flokkar muni eiga full­trúa á Alþingi að loknum kosn­ingum og að þrjá til fjóra flokka þurfi hið minnsta til að mynda nýja rík­is­stjórn.

Þótt margt sé óljóst um hvað nið­ur­stöður kosn­ing­anna munu þýða þá er eitt á hreinu; sitj­andi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er kol­fall­inn.

Sjálfstæðisflokkur stærstur en Samfylking berst fyrir tilveru sinni

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verður áfram stærsti flokkur lands­ins sam­kvæmt Kosn­inga­spánni og sækir lít­il­lega í sig veðrið á loka­metrum kosn­inga­bar­átt­unnar. Hann mælist nú með 24,1 pró­sent fylgi. Fylgið mælist því 0,2 pró­sent meira en í verstu kosn­ingum flokks­ins frá upp­hafi, sem voru haldnar árið 2009. Þá fékk hann 23,7 pró­sent atkvæða. Munurinn er þó vel innan skekkju­marka.

Flokk­ur­inn er þó tölu­vert frá því fylgi sem hann fékk í kosn­ing­unum 2013 þegar hann fékk 26,7 pró­sent.

Vandræði Sam­fylk­ing­ar­innar virð­ast engan endi ætla að taka. Í Kosn­inga­spá sem birt var í gær kom fram að flokk­ur­inn væri að mæl­ast það minnsta í Kosn­ings­spánni frá því að hún hófst í byrjun þessa árs. Þá var fylgið 6,8 pró­sent. Síðan að sú spá birt­ist hafa tvær nýjar kann­anir birst, önnur gerð af frétta­stofu 365 miðla og hin af Félags­vís­inda­stofnun fyrir Morg­un­blaðið. Þær kann­anir voru Sam­fylk­ing­unni ekki hlið­hollar og ný Kosn­inga­spá sýnir fylgi flokks­ins í 6,2 pró­sentum, sem er nýr botn. Framan af ári var fylgi flokks­ins nær alltaf yfir átta pró­sent sam­kvæmt mæl­ingum. Haldi sú fylg­is­hnignun sem Sam­fylk­ingin er að ganga í gegnum áfram næstu klukku­tím­anna er raun­veru­leg hætta á því að flokk­ur­inn nái ekki inn þing­manni í kosn­ing­unum á morgun.

Björt fram­tíð er að festa sig í sessi sem stærri flokkur en Sam­fylk­ingin sem stendur flokknum ansi nærri í hinu póli­tíska litrofi, þótt ekki megi miklu muna á fylgi þeirra. Björt fram­tíð mælist nú með sjö pró­sent fylgi og virð­ist vera að fiska ágæt­lega í frjáls­lyndu jafn­að­ar­manna­tjörn­inni.

Píratar finna stöðugleika

Píratar missa aðeins milli daga og mæl­ast nú með 19,9 pró­sent. Flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast nokkuð stöðugt með um og yfir 20 pró­sent fylgi allan októ­ber­mánuð og virð­ist ekki ætla að líða neitt fyrir það útspil sitt að standa fyrir óform­legum stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum við hina stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna fyrir kosn­ingar.

Það virð­ast Vinstri grænir heldur ekki ætla að gera. Fylgi flokks­ins er nú 16,5 pró­sent, og verður það að telj­ast mik­ill sigur fyrir flokk sem mæld­ist næstum utan þings nokkrum vikum fyrir kosn­ing­arnar 2013, og vann svo­kall­aðan til­veru­sigur í þeim kosn­ingum.

Ný könnun sem Stundin greindi frá í gær­kvöldi, og Gallup gerði fyrir aug­lýs­inga­stofu sem vinnur fyrir Vinstri græna, sýndi að 40 pró­sent lands­manna vilja Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann flokks­ins, sem næsta for­sæt­is­ráð­herra. Hún bar höfuð og herðar yfir aðra sem nefndir voru í könn­un­inni. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, kom næstur með 26,5 pró­sent.

Staða Vinstri grænna til að leiða næstu rík­is­stjórn virð­ist því afar sterk. Aðrir for­víg­is­menn þeirra flokka sem fundað hafa á litlu Lækja­brekku und­an­farna daga um myndum Reykja­vík­ur­stjórnar mæl­ast með sára­lít­inn stuðn­ing til að sem for­sæt­is­ráð­herra. Óttarr

Proppé

, for­maður Bjartrar fram­tíðar, mælist með mestan stuðn­ing þeirra, eða 7,3 pró­sent. Nái stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir ekki meiri­hluta á þingi munu Vinstri grænir líka vera í góðri stöðu til að semja um annað stjórn­ar­mynstur, sér­stak­lega í ljósi þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur nær úti­lokað að vinna með Pírötum, og Píratar að vinna með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Viðreisn getur verið sátt en Framsókn horfir fram á afhroð

Samkvæmt Kosn­inga­spánni fá tveir flokkar um tíu pró­sent atkvæða, verði þetta nið­ur­staða kosn­ing­anna á morgun. Sá stærri verður Viðreisn sem mælist með 10,4 pró­sent fylgi. Flokkinn mun vanta 0,5 pró­sent til að ná titl­inum um að vera stærsti nýi flokkur sög­unnar af Borg­ara­flokknum, sem fékk 10,9 pró­sent í kosn­ing­unum 1987. Verði þetta nið­ur­staðan má Viðreisn vel við una og gæti verið í lyk­il­stöðu í myndun næstu rík­is­stjórnar nái núver­andi stjórn­ar­and­stöðu­flokkar ekki meiri­hluta.

Sá flokkur sem minnst áhugi virð­ist vera á að mynda rík­is­stjórn með þessa dag­anna er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Ef horft er á pró­sentu­tap milli kosn­ing­anna verður sá flokkur sann­ar­lega tap­ari þeirra sem fara fram á morgun. Árið 2013 fékk Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 24,4 pró­sent atkvæða en mælist nú með 10,3 pró­sent. Það yrði versta nið­ur­staða flokks­ins í alþing­is­kosn­ingum í 100 ára sögu hans, og hún kæmi á 100 ára afmæl­is­ár­inu. Vert er þó að taka fram að Framsókn vann mik­inn kosn­inga­sigur í síð­ustu kosn­ingum þegar hann fékk sitt mesta fylgi frá árinu 1979.

Um kosn­­inga­­spána

Nýjasta kosn­­inga­­spáin tekur mið af fjórum nýj­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­boða í alþing­is­­kosn­­ing­unum í haust. Í spálík­­an­inu eru allar kann­­anir vegnar eftir fyr­ir ­fram ákveðnum atrið­­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­fall, lengd könn­un­­ar­­tíma­bils og sög­u­­legur áreið­an­­leiki könn­un­­ar­að­ila. Í kosn­­inga­­spánni 16. sept­­em­ber er það næst nýjasta könn­unin sem hefur mest vægi. Helg­­ast það aðal­­­lega af lengd könn­un­­ar­­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda í könn­un­inni, miðað við hinar tvær sem vegnar eru. Kann­an­­irnar sem kosn­­inga­­spáin tekur mið af eru:

Kannanir í nýj­ustu kosn­inga­spá fyrir alþing­is­kosn­ingar (28. októ­ber):

  • Skoð­ana­kann­anir MMR 19. – 26. og 26. – 28. októ­ber (34.0%)

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 20. – 27. októ­ber (37,8%)

  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 25. – 26. októ­ber (28,2%)

Kosn­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár