Af hruni fjórflokksins

Ný kosn­inga­spá sýnir Sjálf­stæð­is­flokk og Pírata enn stærsta. Viðreisn sækir enn í sig veðrið og er nú fjórða stærsta stjórn­mála­aflið.

Á Alþingi hefur fjórflokkurinn svokallaði yfirleitt notið mikils meirihluta, aukaframboð hafa ekki hoggið stórt skarð. Nú lítur út fyrir að breyting sé að verða á einkenni íslenskrar flokkaskipan.
Á Alþingi hefur fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði yfir­leitt notið mik­ils meiri­hluta, auka­fram­boð hafa ekki hoggið stórt skarð. Nú lítur út fyrir að breyt­ing sé að verða á ein­kenni íslenskrar flokka­skipan. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í sögu­legu sam­hengi hafa það einkum verið fjórir flokkar sem deilt hafa völdum hér á landi. Þessir flokkar, sem oft­ast eru einu nafni kall­aðir „fjór­flokk­ur­inn“ eru jafn­framt grunn­ur­inn af því sem hefur ein­kennt íslenska flokka­skipan frá stofnun lýð­veld­is­ins.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur jafnan verið stærstur og yfir­leitt átt auð­velt með að taka Fram­sókn­ar­flokk­inn með sér í stjórn­ar­sam­starf. Ef kosn­inga­úr­slitin hafa hins vegar þótt Fram­sókn­ar­flokknum í vil hefur for­mað­ur­inn oft­ast hringt í kollega sinn í Valhöll. Ef mál­efna­á­grein­ingur kom upp milli þess­ara flokka varð oft stjórn­ar­kreppa.

Hinir flokk­arnir í fjór­flokknum eru tveir vinstri­flokkar. Saga þeirra er mun flókn­ari en saga Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins og hafa þeir gengið undir ýmsum nöfnum. Síðan um alda­mótin hafa þessir flokkar heitið Sam­fylk­ingin og Vinstri hreyf­ingin - grænt fram­boð. Í öllum kosn­ingum og skoð­ana­könn­unum á síð­ari hluta 20. aldar og á fyrsta ára­tug þeirrar 21. hefur fjór­flokk­ur­inn vegið þyngst og átt hið póli­tíska svið út af fyrir sig, nema þegar fimmti auka­leik­ar­inn hefur troðið sér inn í sen­urnar og jafn­vel valdið nokkrum usla áður en áhorf­endur púa hann niður af svið­inu.

Á árunum sem liðin eru frá banka­hruni hafa æ fleiri fram­boð rutt sér inn á sviðið til þess að verða þessi fimmti leik­ari. Mörgum hefur mis­tek­ist þetta verk­efni en eftir standa nú þrjú fram­boð sem mæl­ast með nógu mikið fylgi til að geta verið tekið alvar­lega. Fjórir leik­arar eru þess vegna orðnir sjö.

Tveggja turna tal

Í Alþing­is­kosn­ingum síðan árið 1963 hafa Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn yfir­leitt hlotið sam­tals meira en helm­ing atkvæða. Samtals voru flokk­arnir með tæp­lega 70 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 1963. Árið 1999 var það hlut­fall tæp­lega 60 pró­sent. Áratug síðar hlutu þessir flokkar ein­ungis 38,5 pró­sent atkvæða sam­an­lagt en fengu svo aftur meiri­hluta fjórum árum síðar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son hringd­ust þess vegna á eins og svo oft áður.

Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar, og öllum kosn­inga­spám sem gerðar hafa verið á þessu ári, eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar lang­vin­sæl­ustu fram­boðin til Alþingis. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni sem gerð var 16. sept­em­ber mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 26 pró­sent fylgi og Píratar með 24,6 pró­sent fylgi. Píratar eru einn af þessum þremur nýju leik­urum sem vilja deila svið­inu með fjór­flokknum til fram­búðar. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur á þessum tíma varla mælst með mikið meira en 10 pró­sent fylgi og er nú með 9,7 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Annar turn­anna virð­ist því vera fall­inn á meðan hinn stendur hálfur eftir, við hlið nýs turns.

Annað fram­boð sem gerir veru­legt til­kall til hlut­verks í næsta leik­þætti þessa póli­tíska leik­rits er Viðreisn. Það fram­boð hefur und­an­farna mán­uði mælst með um tíu pró­sent fylgi. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni er Viðreisn með 10,4 pró­sent og hefur aldrei mælst vin­sælli.

Þriðja fram­boðið sem hlýtur nógu mikið fylgi til þess að eftir því verði tekið er Björt fram­tíð. Und­an­farin miss­eri hafa vin­sæld­irnar ekki mælst miklar – aðeins um fjögur pró­sent – en það er hins vegar erfitt að áætla hvaðan flokk­ur­inn sækir það fylgi. Á lands­vísu er reiknað með að fram­boð þurfi um það bil fimm pró­sent atkvæða til þess að ná manni á þing en það segir auð­vitað bara hálfa sögu. Í einu kjör­dæm­inu gæti flokk­ur­inn notið mun meira fylgis en hann gerir í öllum hinum. Í kosn­ing­unum árið 2013 hlaut flokk­ur­inn 8,2 pró­sent atkvæða og á kjör­tíma­bil­inu sem er að ljúka hefur Björt fram­tíð sex þing­menn.

Hrun flokkakerfisins

Flokka­kerfið – sem við höfum hingað til kallað fjór­flokk­inn – virð­ist vera á und­an­haldi. Á fáeinum árum hafa vin­sældir rót­grónu stjórn­mála­flokk­anna fallið og svo virð­ist sem að stuðn­ingur við þá verði mun minni en nokkru sinni í kosn­ing­unum 29. októ­ber. Fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn sjaldan verið jafn lítið, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er krísu og Sam­fylk­ingin hefur aldrei mælst jafn illa.

Sam­an­burður á nið­ur­stöðum kosn­inga við nýj­ustu kosn­inga­spána renna stoðum undir þessa til­gátu. Árið 1963 fengu flokk­arnir sem þá skip­uðu fjór­flokk­inn sam­tals 99,8 pró­sent atkvæða. Árið 1987, þegar einn vin­sæl­asti fimmti leik­ar­inn, Borg­ara­flokk­ur­inn, steig fram á sviðið hlaut fjór­flokk­ur­inn 74,6 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum árið 2009, fáeinum mán­uðum eftir banka­hrunið, hlaut fjór­flokk­ur­inn 90 pró­sent atkvæða. Samkvæmt kosn­inga­spánni í dag mun fjór­flokk­ur­inn hins vegar ein­ungis fá 58,1 pró­sent atkvæða.

Um kosningaspána 16. september

Nýjasta kosn­inga­spáin tekur mið af fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Í spálík­an­inu eru allar kann­anir vegnar eftir fyrir fram ákveðnum atriðum. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­fall, lengd könn­un­ar­tíma­bils og sögu­legur áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila. Í kosn­inga­spánni 16. sept­em­ber er það nýjasta könn­unin sem hefur mest vægi. Helgast það aðal­lega af lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda í könn­un­inni, miðað við hinar þrjár sem vegnar eru. Kann­an­irnar sem kosn­inga­spáin tekur mið af eru:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 31. ágúst til 14. sept­em­ber (vægi: 42,2%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 6. til 7. sept­em­ber (vægi: 15,0%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. júlí til 31. ágúst (vægi 25,6%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 22. ágúst til 29. ágúst (vægi 17,2%)

Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá Bald­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­ar­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­kosn­­­­­­­ing­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­raun vel. Á vefnumkosn­­­­­­­inga­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­ur­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár