Flokkar stofnaðir frá 2012 fá 40 prósent atkvæða – Eðlisbreyting í stjórnmálum staðreynd

Loka Kosn­inga­spá Kjarnans sýnir að flokkar sem stofn­aðir voru á árinu 2012 eða síðar munu fá 40 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í dag. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir fá sam­an­lagt það sem þeir hafa mælst með þorra þessa árs og vinstri­st­jórn virð­ist vera mögu­leiki.

Ástæða þess að kosið er í dag er Wintris-málið og mótmælin sem áttu sér stað í kjölfar þeirra.
Ástæða þess að kosið er í dag er Wintris-málið og mót­mælin sem áttu sér stað í kjöl­far þeirra. Mynd: Birgir Þór Harðarson


Nið­ur­stöður kosn­ing­anna í dag verða mjög í takt við þær átaka­línur sem hafa verið við lýði allt þetta ár. Sitjandi stjórn­ar­flokkar munu fá um 35 pró­sent fylgi en stjórn­ar­and­staðan, Viðreisn og nokkrir smá­flokkar það sem eftir stendur. Þeir fjórir flokkar sem rætt hafa myndun rík­is­stjórnar á Lækj­ar­brekku und­an­farnar vikur munu að öllum lík­indum ná mjög tæpum meiri­hluta þing­manna með og fá rétt undir helm­ingi greiddra atkvæða. Fjór­flokk­ur­inn er ekki lengur allt um lykj­andi í íslenskum stjórn­málum og fjórða hvert atkvæði fer til flokka sem stofn­aðir á síð­ustu fimm árum.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vinnur varn­ar­sigur með því að ná að hífa sig upp úr mik­illi lægð sem skall á í upp­hafi októ­ber og í það fylgi sem hann hefur verið að mæl­ast með bróð­ur­part árs­ins 2016. Taparar kosn­ing­anna eru án efa tveir rót­grónir flokkar: Sam­fylk­ingin og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Báðir standa frammi fyrir því að fá verstu nið­ur­stöðu sína í þing­kosn­ingum í sögu sinni.

Þetta kemur fram í loka Kosn­inga­spá Kjarnans og Dr. Baldurs Héð­ins­sonar, sem byggir á öllum þeim könn­unum sem gerðar voru í síð­ustu vik­unni fyrir kosn­ing­arnar.

Öruggt að það verður mynduð ný ríkisstjórn

Rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks er kol­fallin. Sam­an­lagt munu flokk­arnir tveir fá 34,9 pró­sent atkvæða. Það er aðeins minna fylgi en flokk­arnir mæld­ust með í byrjun apríl síð­ast­lið­ins, tveimur dögum áður en Wintris-málið var að fullu opin­berað í Kast­ljós­þætti sem setti íslenskt sam­fé­lag á hlið­ina og er ástæða þess að kosið er í dag. Fyrir þátt­inn mæld­ist fylgi stjórn­ar­flokk­anna sam­an­lagt 36,5 pró­sent. Eftir hann náði það lág­punkti og mæld­ist 31,1 pró­sent.

Þeir náðu þó fljótt við­spyrnu og voru að mæl­ast á svip­uðu slóðum í Kosn­inga­spá sem birt­ist 8. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og þeir voru að mæl­ast fyrir Wintris-málið, en þá mæld­ist fylgi þeirra 36,3 pró­sent. Þann 5. októ­ber, fyrir 24 dögum, mæld­ist fylgi Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks 35,9 pró­sent.

Kannanir sem hafa sýnt hvert atkvæði þeirra sem ætla að kjósa annað nú en þeir gerðu síð­ast sýna að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tekur helst kjós­endur af Fram­sókn­ar­flokknum. Þess vegna eru stjórn­ar­flokk­arnir að fiska í sömu tjörn, ef annar bætir við sig hefur það nei­kvæð áhrif á fylgi hins.

Það er því ljóst að þótt Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi bætt skarpt við sig fylgi í könn­unum und­an­farna daga þá virð­ast stjórn­ar­flokk­arnir ein­fald­lega stefna í þá sam­eig­in­legu nið­ur­stöðu og blasað hefur við allt þetta ár, að þeir fái í kringum 35 pró­sent atkvæða, sem verður ansi langt frá því að duga til að halda stjórn­ar­sam­starf­inu áfram.

Nýr pólitískur veruleiki blasir við

Fjór­flokk­ur­inn svo­kall­aði sam­anstendur af Sjálf­stæð­is­flokki, Framsókn, Vinstri grænum og Sam­fylk­ingu. Fylgi við þessar grunn­stoðir íslenskra stjórn­mála hefur gjör­breyst á örfáum árum og farið úr því að vera nær alltaf í kringum 90 pró­sent, í um 75 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum og niður í að mæl­ast rétt rúm­lega 50 pró­sent í aðdrag­anda kosn­ing­anna sem fara nú fram.

Flokk­arnir hafa sam­eig­in­lega aðeins bragg­ast sam­kvæmt könn­unum á loka­metrum bar­átt­unnar. Fyrir tveimur vikum síðan sagð­ist ein­ungis 54 pró­sent kjós­enda ætla að kjósa fjór­flokk­inn. Í loka Kosn­inga­spá Kjarnans ná þeir sam­an­lagt að næla sér í 57,9 pró­sent atkvæða, sem er bæt­ing um fjögur pró­sentu­stig á tveimur vikum en verður samt sem áður lang­versta sam­eig­in­lega nið­ur­staða þess­ara flokka í kosn­ingum frá upp­hafi til­veru þeirra.

Fylgið sem fjór­flokk­ur­inn hefur náð að kroppa til baka á síð­ustu vikum hefur að hluta til komið frá hinum þremur flokk­unum sem munu lík­leg­ast eiga full­trúa á Alþingi eftir kom­andi kosn­ingar, Pírötum, Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Sam­an­lagt mæld­ust þessir þrír flokkar, sem allir eru stofn­aðir á síð­ustu fimm árum, með 38 pró­sent fylgi um miðjan októ­ber en fá nú um 36,2 pró­sent atkvæða stand­ist Kosn­inga­spáin að fullu. Þegar við bæt­ist að þrír smá­flokkar sem orðið hafa til á sama tíma­bili: Dögun, Flokkur fólks­ins og Íslenska þjóð­fylk­ingin mæl­ast með sam­an­lagt fjögur pró­sent fylgi er ljóst að eðl­is­breyt­ing hefur átt sér stað í íslenskum stjórn­málum. Sú staða er nú upp, og er til merkis um mestu svipt­ingar sem íslensk stjórn­mál hafa gengið í gegnum, að flokkar sem stofn­aðir hafa verið á síð­ustu árum taki til sín fjórða hvert atkvæði.

Hitt fylgið sem fjór­flokk­ur­inn hefur bætt við sig hefur komið frá smá­flokkum sem virð­ast ekki eiga neinn mögu­leika að ná inn á þing.

Reykjavíkurstjórnin ætti að meirihluta, en það verður tæpt

Fjórir flokkar hafa átt í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður und­an­farnar vikur. Þeir eru Píratar, Vinstri græn, Björt fram­tíð og Sam­fylk­ing. Sam­an­lagt mælist fylgi í loka Kosn­inga­spánni 49,3 pró­sent sem ætti að duga flokk­unum til að mynda nauman meiri­hluta þar sem nokkur pró­sent atkvæða munu falla niður dauð vegna þess að þau fara á smá­flokka sem ná ekki inn, eru ógild eða auð.

Mikið hefur verið bolla­lagt um hvort útspil Pírata um að boða stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna og Viðreisn til við­ræðna fyrir kosn­ingar, og ákvörðun þriggja flokka að þiggja boð um slíkar við­ræður, hafi verið klókt bragð eða ekki.

Sam­an­lagt hefur fylgi þess­ara fjög­urra flokka lækkað um 1,1 pró­sentu­stig frá því að Píratar héldu blaða­manna­fund­inn sinn þann 16. októ­ber þar sem þeir boð­uðu við­ræð­urnar og úti­lok­uðu stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn­ar­flokk. Píratar hafa bætt aðeins við sig fylgi (voru með 19,2 pró­sent en mæl­ast nú 19,4 pró­sent) en það sem var mik­il­væg­ast fyrir þá var að þeim tókst að stöðva nið­ur­sveiflu sína sem staðið hafði yfir vik­urnar á undan. Það má því segja að útspilið hafi virkað vel fyrir Pírata sem virð­ast ætla næstum fjór­falda fylgi sitt á milli kosn­inga.

Vinstri græn er sá flokkur sem virð­ist hafa grætt mest á þessu útspili. Flokk­ur­inn hefir bætt við sig 1,1 pró­sentu­stigi á síð­ustu tveimur vik­unum. Það kemur ugg­laust til af því að skoð­ana­kann­anir sýna að flestir Íslend­ingar vilja að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins, verði næsti for­sæt­is­ráð­herra.

Þeir flokkar sem hafa tapað á því að taka þátt í við­ræð­unum eru Sam­fylk­ing og Björt fram­tíð, sem hafa misst sam­tals 2,4 pró­sent fylgi. Þegar flokkar eru að mæl­ast með ann­ars vegar 6,5 pró­sent fylgi og hins vegar 6,9 pró­sent fylgi á kjör­dag þá skiptir það fylgis­tap veru­legu máli. Helsta álita­málið sem þessi mögu­lega vinstri stjórn stendur frammi fyrir, nái hún þeim meiri­hluta sem til þarf til að mynda rík­is­stjórn, verður hvort að Sam­fylk­ingin geti tekið sæti í slíkri rík­is­stjórn í ljósi þess afhroðs sem flokk­ur­inn er að upp­lifa aðrar kosn­ing­arnar í röð. Komi upp sú staða að for­maður flokks­ins, Oddný Harð­ar­dóttir, og aðrir lyk­ilodd­vitar á borð við Össur Skarp­héð­ins­son og Sigríði Ingi­björgu Inga­dóttur, nái ekki þing­sæti hlýtur það að vera tekið til mjög alvar­legrar skoð­unar hvort Sam­fylk­ingin hafi umboð kjós­enda til að koma að stjórn lands­ins.

Stjórn­ar­mynd­und­ar­við­ræð­urnar höfðu líka áhrif á Viðreisn, sem var boðið til þeirra en hafn­aði þátt­töku. Með því ein­angr­að­ist Viðreisn á milli tveggja blokka og for­svars­menn flokks­ins neydd­ust til að svara ýmsum erf­iðum spurn­ingum um hvert hugur þeirra stefndi varð­andi mögu­lega stjórn­ar­myndun. Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, úti­lok­aði í útvarps­við­tali að Viðreisn myndi ger­ast þriðja hjólið undir stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. Næstu dagar fóru í að útskýra að flokk­ur­inn úti­lok­aði samt ekki sam­starf við neinn stjórn­mála­flokk. Nið­ur­staða flestra var sú að Viðreisn væri til í að skoða öll stjórn­ar­mynstur önnur en að mynda þriggja flokka rík­is­stjórn með sitj­andi stjórn­ar­flokkum.

Viðreisn hafði haft nokkuð mik­inn byr í segl­unum áður en Píratar komu með útspil sitt og höfðu hægt og rólega verið að rísa í skoð­ana­könn­unum. Það ris hætti þegar tveggja vikna eyði­merk­ur­gangan á milli póli­tískra blokka hófst. Fylgi flokks­ins fór að dala og mælist nú á kjör­dag 9,9 pró­sent, eða pró­sentu­stigi minna en það gerði fyrir tveimur vikum síðan.

Sjálfstæðisflokkurinn stefnir í sína næst verstu útkomu

Kosn­inga­spáin segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fái 24,9 pró­sent atkvæða. Það þýðir að hann fær sína næst verstu kosn­ingu í sögu sinni, verði það nið­ur­staðan. Einungis nið­ur­staðan í eft­ir­hruns­kosn­ing­unum 2009 verður lak­ari og flokk­ur­inn mun tapa 1,8 pró­sentu­stigi frá kosn­ing­unum 2013.

Nið­ur­staðan er í takti við það fylgi sem flokk­ur­inn hefur verið að mæl­ast með það sem af er ári, þar sem fylgi hans hefur verið á bil­inu 23-26 pró­sent. Í októ­ber tók fylgið hins vegar að dala nokkuð skarpt og fyrir viku síðan náði það botni sínum á árinu 2016, sam­kvæmt Kosn­inga­spánni, þegar það mæld­ist ein­ungis 22 pró­sent. Það hefði þýtt að flokk­ur­inn hefði náð nýjum sögu­legum lægðum. Til að setja þá stöðu í sam­hengi, og varpa ljósi á hversu látt fylgi það er fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn að mæl­ast með, þá var hann að mæl­ast með 22 pró­sent fylgi 7. apríl síð­ast­lið­inn, þremur dögum eftir stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar vegna Wintris-máls­ins og tveimur dögum eftir afsögn for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn býr þó að því að eiga öfl­ug­ustu kosn­inga­vél lands­ins og á síð­ustu metr­unum náði hún að koma skila­boðum flokks­ins mjög skýrt á fram­færi: kjósið okkur og stöð­ug­leika, eða kallið yfir ykkur glund­roða. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, líkti stjórn þeirra stjórn­ar­and­stöðu­flokka sem hafa verið að ræða stjórn­ar­myndun við það að „gripið yrði í stýrið“ á veg­ferð þjóð­ar­innar eftir hrað­braut efna­hags­vel­sældar í for­manns­um­ræðum á RÚV í gær.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn verður „tap­ari“ þess­ara kosn­inga ásamt Sam­fylk­ing­unni. Það virð­ist óum­flýj­an­legt að flokk­ur­inn fái sína verstu útkomu í kosn­ingum í sögu sinni. Fyrra metið á Framsókn undir for­mennsku Jóns Sig­urðs­sonar árið 2007, þegar flokk­ur­inn fékk 11,7 pró­sent atkvæða. Nú mælist fylgi hans á kjör­dag tíu pró­sent, eða 14,4 pró­sentu­stigum minna en það var í kosn­ing­unum 2013.

Wintris-málið sner­ist um þáver­andi for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og for­sæt­is­ráð­herra, Sigmund Davíð Gunn­laugs­son. Fylgi flokks­ins mæld­ist yfir tólf pró­sentum þegar málið kom upp en fór lægst í 8,6 pró­sent dag­anna eftir að málið kom upp og hefur lítið jafnað sig síðan, þrátt fyrir að skipt hafi verið um for­mann og Sigurður Ingi Jóhanns­son stýri nú Fram­sókn­ar­skút­unni. Sig­mundur Davíð er þó enn í fram­boði og leiðir flokk­inn í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem hann er öruggur um þing­sæti.

Um kosn­­­inga­­­spána

Nýjasta kosn­­­inga­­­spáin tekur mið af fimm nýj­­­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­­­boða í alþing­is­­­kosn­­­ing­unum í haust. Í spálík­­­an­inu eru allar kann­­­anir vegnar eftir fyr­ir ­fram ákveðnum atrið­­­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­­­fall, lengd könn­un­­­ar­­­tíma­bils og sög­u­­­legur áreið­an­­­leiki könn­un­­­ar­að­ila.

Kann­anir í nýj­ustu kosn­inga­spá fyrir alþing­is­kosn­ingar (28. októ­ber):

  • Þjóð­ar­púls Gallup 24. – 28. októ­ber (28,3%)
  • Skoð­ana­kann­anir MMR 19. – 26. og 26. – 28. októ­ber (24.4%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 20. – 27. októ­ber (27,0%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins, Stöðvar 2 og Vísis 25. – 26. októ­ber (20,3%)

Kosn­­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár