Fylgi við Samfylkinguna aldrei minna á þessu ári

Sam­fylk­ingin mælist með minnsta fylgi á þessu ári þremur dögum fyrir kosn­ingar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn stærstur.

Oddný Harðardóttir er formaður Samfylkingarinnar. Fylgi við flokkinn hefur aldrei mælst minna í kosningaspánni. Þingsætaspá kosningaspárinnar mælir líkur á að formaðurinn nái kjöri eru 13 prósent.
Oddný Harð­ar­dóttir er for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Fylgi við flokk­inn hefur aldrei mælst minna í kosn­inga­spánni. Þing­sæta­spá kosn­inga­spár­innar mælir líkur á að for­mað­ur­inn nái kjöri eru 13 pró­sent. Mynd: Kristinn Magnússon/Samfylkingin

Fylgi við Sam­fylk­ing­una hefur aldrei mælst minna síðan Kosn­inga­spáin fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar 29. októ­ber hófst í byrjun árs. Sam­fylk­ingin mælist nú með 6,8 pró­sent fylgi en hafði verið með um átta pró­sent það sem af er ári. Björt fram­tíð mælist einnig með 6,8 pró­sent fylgi.

Litlar sveiflur eru á fylgi flokk­anna sem bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn. Í kosn­inga­spá sem gerð var mið­viku­dag­inn 26. októ­ber, þremur dögum fyrir kosn­ingar, virð­ast kjós­endur vera á nokkurn veg­inn sömu skoðun og þeir voru síð­ast þegar kosn­inga­spáin var gerð 21. októ­ber.

[adspot]

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er enn vin­sæl­asti stjórn­mála­flokkur lands­ins og mælist með 22,7 pró­sent fylgi á lands­vísu. Píratar eru með 20,6 pró­sent fylgi og hafa hækkað örlítið í síð­ustu kosn­inga­spám eftir að hafa tekið nokkra dýfu um miðjan þennan mánuð.

Vinstri græn eru komin aftur með svipað fylgi og flokk­ur­inn var með í byrjun sum­ars og mælist nú með 16,9 pró­sent fylgi. Fylgi við Vinstri græn tók stökk í byrjun apríl eftir að aflandseignir ráð­herra í rík­is­stjórn­inni voru gerðar opin­berar í Panama­skjöl­unum. Fylgi við flokk­inn hafði minnkað nær stöðugt síðan í maí og var komið niður í 12,7 pró­sent í lok sept­em­ber. Síðan hafa kjós­endur fylkt sér með Vinstri grænum í miklum mæli.

Kosn­inga­spáin byggir á reikni­lík­ani Baldurs Héð­ins­sonar þar sem nýj­ustu kann­anir á fylgi fram­boða til Alþingis eru teknar saman og settar í sam­hengi við þær upp­lýs­ingar sem þegar liggja um fylgi fram­boða. Aðeins kann­anir sem stand­ast grunn­skil­yrði fag­legrar aðferða­fræði eru teknar gildar. Í reikni­lík­an­inu eru kann­an­irnar sem gerðar eru opin­berar settar í sam­hengi við hvor aðra á hlut­lægan hátt. Stærri könnun mun hafa meira vægi en minni könnun vegna þess að fleiri svör búa að baki. Eldri könnun mun hafa minna vægi en sú sem er nýrri enda lýsir ný könnun stjórn­mála­lands­lag­inu eflaust bet­ur. Einnig mun sú könnun sem gerð er yfir lengra tíma­bil hafa meira vægi en sú sem gerð er á styttri tíma.

Af fylgi við aðra flokka en hér hafa þegar verið nefndir þá má benda á að Viðreisn er aftur orðin minni en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn. Viðreisn mælist nú með 9,7 pró­sent fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn með 10,1 pró­sent. Bæði Björt fram­tíð og Sam­fylk­ingin mæl­ast með 6,8 pró­sent fylgi. Flokkur fólks­ins nær í fyrsta sinn inn í kosn­inga­spána og mælist með 3,5 pró­sent fylgi.

Til þess að fá mæl­ingu í kosn­inga­spánni þarf fram­boð að mæl­ast með að minnsta kosti eitt pró­sent fylgi. Íslenska þjóð­fylk­ingin mælist með 2 pró­sent og Dögun með eitt pró­sent fylgi. Önnur fram­boð, þe. þau fram­boð sem mæl­ast með minna en eitt pró­sent fylgi, eru sam­an­lagt með 3,4 pró­sent stuðn­ing.

Um kosn­inga­spána

Nýjasta kosn­inga­spáin tekur mið af þremur nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Í spálík­an­inu eru allar kann­anir vegnar eftir fyr­ir ­fram ákveðnum atrið­­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­fall, lengd könn­un­ar­tíma­bils og sögu­legur áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila. Í kosn­inga­spánni 16. sept­em­ber er það næst nýjasta könn­unin sem hefur mest vægi. Helg­ast það aðal­lega af lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda í könn­un­inni, miðað við hinar tvær sem vegnar eru. Kann­an­irnar sem kosn­inga­spáin tekur mið af eru:

  • Skoð­ana­könnun MMR 19.–26. októ­ber (vægi 37,0%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­­blaðs­ins 24.–25. októ­ber (vægi 31,8%)
  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 13.–19. októ­ber (vægi 31,2%)

Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­­kosn­­­­­­­­­ing­­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­­­­inga­­­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­­­ur­­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár