Sjö flokkar gætu náð inn á þing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð.

Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi, en það var árið 1987. Þá voru klofn­ings­fram­boð frá bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki í fram­boði og fengu menn inn á þing. Borg­ara­flokk­ur­inn, undir for­ystu Alberts Guð­munds­sonar, náði sjö mönnum inn á þing. Þá fengu Samtök um jafn­rétti og félags­hyggju einn mann kjör­inn í eina kjör­dæm­inu sem boðið var fram í, Norð­ur­landi eystra, en það var Stefán Val­geirs­son. Samtök um jafn­rétti og félags­hyggju var sér­fram­boð hans, en hann hafði áður verið lengi þing­maður fyrir Fram­sókn­ar­flokk­inn, rétt eins og Albert hafði lengi verið þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Í þessum kosn­ingum náði Kvenna­list­inn einnig að tvö­falda fylgi sitt frá kosn­ing­unum 1983, og fékk sex þing­konur inn.

Sjálfstæðisflokkur og Píratar áfram stærstir

Engin breyt­ing er á því, frekar en öllum kosn­inga­spám þessa árs, að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar eru vin­sæl­ustu flokk­arnir. Fylgi Pírata og Sjálf­stæð­is­flokks­ins fylgd­ist nokkurn veg­inn að í sept­em­ber, og var nokkuð svipað í öllum kosn­inga­spám, þannig að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mæld­ist alltaf aðeins fyrir ofan Pírata. Í lok sept­em­ber breytt­ist þetta hins vegar, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur haldið svip­uðu fylgi og er nú með 24,1 pró­senta fylgi, en Píratar hafa lækkað flugið og farið úr 25,8 pró­sentum í byrjun sept­em­ber niður í 20,3 pró­sent nú.

Á sama tíma hefur fylgið við Vinstri græn þok­ast upp á við á ný og stendur nú í 14,3 pró­sentum.

Fylgi Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins hefur verið á svip­uðum slóðum und­an­farna tvo mán­uði eða svo, en flokk­arnir eru þeir einu sem hafa á þessu tíma­bili haft sæta­skipti í kosn­inga­spánni. Viðreisn mælist nú á ný með meira fylgi en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða sem fjórða stærsta fram­boðið. Viðreisn mælist með 11,3 pró­sent á meðan Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með 10,1 pró­sent. Yrðu þetta úrslit kosn­ing­anna yrði árangur Við­reisnar lík­lega besti árangur nýs flokks. 

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist hvorki hafa grætt né tapað á því að hafa verið aðal­við­fangs­efni frétta í kringum flokks­þing flokks­ins í byrjun mán­að­ar­ins. Í síð­ustu kosn­inga­spánni fyrir flokks­þingið mæld­ist flokk­ur­inn með 10,5 pró­senta fylgi og nú mælist fylgið sem fyrr segir 10,1 pró­sent. Nýr for­maður og for­ysta flokks­ins hefur því ekki haft mikil áhrif á fylgis­tölur flokks­ins fyrstu vik­una í emb­ætti, en nei­kvæðar fréttir og ásak­anir um svik frá gamla for­mann­inum.

Sam­fylk­ingin virð­ist ekki heldur vera að upp­skera nokkurn skap­aðan hlut í sinni kosn­inga­bar­áttu hingað til, hvað sem líður kosn­inga­lof­orðum um að gefa fólki allt að þrjár millj­ónir króna í fyr­ir­fram­greiddar vaxta­bætur til að kaupa sér hús­næði. Flokk­ur­inn hefur verið fastur í rúm­lega átta pró­senta fylgi í um það bil tvo mán­uði.

Fjórflokkurinn farinn

Flokka­kerfið á Íslandi hefur oft verið nefnt fjór­flokka­kerfi, en miðað við allar spár þá er slíkt kerfi á und­an­haldi á Íslandi. Vin­sældir rót­gró­inna stjórn­mála­flokka hafa minnkað veru­lega og eins og staðan er í dag er útlit fyrir að þeir flokkar fái minni stuðn­ing en nokkru sinni fyrr í kosn­ing­unum í lok mán­að­ar­ins.

Sam­an­burður á nið­ur­stöðum kosn­inga við nýj­ustu kosn­inga­spána renna stoðum undir þessa til­gátu. Árið 1963 fengu flokk­arnir sem þá skip­uðu fjór­flokk­inn sam­tals 99,8 pró­sent atkvæða. Árið 1987, þegar einn vin­sæl­asti fimmti leik­ar­inn, Borg­ara­flokk­ur­inn, steig fram á sviðið hlaut fjór­flokk­ur­inn 74,6 pró­sent atkvæða. Í kosn­ing­unum árið 2009, fáeinum mán­uðum eftir banka­hrun­ið, hlaut fjór­flokk­ur­inn 90 pró­sent atkvæða. Sam­kvæmt kosn­inga­spánni í dag mun fjór­flokk­ur­inn hins vegar ein­ungis fá 56,7 pró­sent atkvæða.

Um kosningaspána 7. október

Nýjasta kosn­inga­spáin tekur mið af fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í Alþing­is­kosn­ing­unum í haust. Í spálík­an­inu eru allar kann­anir vegnar eftir fyrir fram ákveðnum atrið­um. Þar vega þyngst atriði eins og stærð úrtaks, svar­hlut­fall, lengd könn­un­ar­tíma­bils og sögu­legur áreið­an­leiki könn­un­ar­að­ila. Kann­an­irnar sem kosn­inga­spáin tekur mið af eru:

  • Þjóð­mála­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 23. sept­em­ber – 5. októ­ber (24,8%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 3 – 4. októ­ber (21,5%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 16. – 29. sept­em­ber (32,2%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 20. sept­em­ber – 26. sept­em­ber (21,5%)

Kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­­­lýs­ing­­­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spá Bald­­­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­­­ar­­­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­­­­­ar­­­­­­­­kosn­­­­­­­­ing­­­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­­­inga­­­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­­­ur­­­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­­­leiki könn­un­­­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Skýringkosningaspá

Píratar sökkva en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer á flug

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar með stuðn­ing 25,3 pró­sent kjós­enda. Píratar hafa tapað nokkru fylgi und­an­farið og mæl­ast nú með aðeins 21,9 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni sem gerð var 28. sept­em­ber. Til sam­an­burðar má geta þess að fyrir um hálfum mán­uði mæld­ust Píratar með 25,8 pró­sent. Stuðn­ingur við fram­boð Pírata nú er jafn­framt minni en...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár