Píratar sökkva mánuði fyrir kosningar en Sjálfstæðisflokkurinn fer á flug

Bjarni Benediktsson, Ólöf Nordal og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir fara fyrir Sjálfstæðisflokkinum í kosningunum í lok mánaðar.
Bjarni Bene­dikts­son, Ólöf Nordal og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir fara fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inum í kosn­ing­unum í lok mán­aðar. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar með stuðn­ing 25,3 pró­sent kjós­enda. Píratar hafa tapað nokkru fylgi und­an­farið og mæl­ast nú með aðeins 21,9 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni sem gerð var 28. sept­em­ber.

Til sam­an­burðar má geta þess að fyrir um hálfum mán­uði mæld­ust Píratar með 25,8 pró­sent. Stuðn­ingur við fram­boð Pírata nú er jafn­framt minni en hann hefur nokkru sinni verið á þessu ári í Kosn­inga­spánni.

Síðan kosn­inga­spáin var birt síð­ast á vef Kjarnans, laug­ar­dag­inn 24. sept­em­ber hefur mest breyt­ing verið á fylgi stærstu fram­boð­anna; Sjálf­stæð­is­flokks og Pírata. Stuðn­ingur við önnur fram­boð er nán­ast óbreyttur frá frá því síð­ast, en tvær nýjar kann­anir liggja nýj­ustu spánni til grund­vallar síðan hún var gerð síð­ast.

Vinstri græn mæl­ast nú með 12,7 pró­sent stuðn­ing, Framsókn með 11,2 pró­sent og Viðreisn með 11,1 pró­sent. Sam­fylk­ingin mælist með 8,2 pró­sent fylgi og Björt fram­tíð með 3,9 pró­sent. Tveir nýir lista­bók­stafir fá sína eigin súlu í Kosn­inga­spánni í þetta sinn, það er E fyrir Íslensku þjóð­fylk­ing­una og T fyrir Dögun. Til þess að fram­boð fái sér súlu þurfa þau að hafa meira en eitt pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni. Önnur fram­boð eru dregin saman undir „Aðrir“.

Upplýsingar settar í samhengi

Kosn­inga­spáin er birt viku­lega hér á vef Kjarnans og á vefnum kosn­inga­spa.is. Hún byggir á reikni­lík­ani Baldurs Héð­ins­sonar þar sem nýj­ustu kann­anir á fylgi fram­boða til Alþingis eru teknar saman og settar í sam­hengi við þær upp­lýs­ingar sem þegar liggja fyrir um fylgi fram­boða. Aðeins kann­anir sem stand­ast grunn­skil­yrði fag­legrar aðferða­fræði eru teknar gildar.

[adspot]

Kosn­inga­spá Baldurs Héð­ins­sonar miðar að því að setja upp­lýs­ing­arnar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar í lok mán­að­ar­ins munu birt­ast fjöld­inn allur af skoð­ana­könn­unum sem byggja þó ekki allar á sömu aðferða­fræði. Sumar kann­anir eru gerðar yfir lengra tíma­bil en aðrar, og ein­hvers staðar eru nið­ur­stöður í könn­unum byggðar á svörum fleiri en ann­ars staðar. Það getur þess vegna verið rugl­ings­legt fyrir hinn almenna neyt­anda frétta af stjórn­málum að átta sig á lands­lag­inu.

Í reikni­lík­an­inu eru kann­an­irnar sem gerðar eru opin­berar settar í sam­hengi við hvor aðra á hlut­lægan hátt. Stærri könnun mun hafa meira vægi en minni könnun vegna þess að fleiri svör búa að baki. Eldri könnun mun hafa minna vægi en sú sem er nýrri enda lýsir ný könnun stjórn­mála­lands­lag­inu eflaust betur. Einnig mun sú könnun sem gerð er yfir lengra tíma­bil hafa meira vægi en sú sem gerð er á styttri tíma.

Fjórar mismunandi kannanir

Kosn­inga­spáin sem er til umfjöll­unar í dag (gerð 28. sept­em­ber 2016) byggir á nið­ur­stöðum fjög­urra nýj­ustu kann­an­anna sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boða í alþing­is­kosn­ing­unum. Allar fá þær mis­mun­andi vægi eftir þeim breytum sem taldar voru upp hér að ofan. Kann­an­irnar eru:

Kann­an­irnar fjórar eru gerðar af þremur könn­un­ar­að­ilum; Frétta­blað­inu, MMR og Gallup. Þessir aðilar styðj­ast við mis­mun­andi aðferða­fræði við gagna­öflun og birt­ast ákveðnir þættir þess­ara ólíku hátta í kosn­inga­spánni.

Ein­fald­ast er að sjá hvernig lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins hefur áhrif á vægi kann­anna í kosn­inga­spánni. Könnunin sem gerð er á einum degi (Frétta­blaðið 26. sept­em­ber) fær minnst vægi í hópi þess­ara fjög­urra kann­anna, jafn­vel þó hún sé nýjasta könn­unin.

Næst kemur næst nýjasta könn­unin (MMR 20.-26. sept­em­ber) var gerð á sjö dögum og er með mest vægi í hópi þess­ara fjög­urra kann­ana. Elsta könn­unin (Gallup 31. ágúst - 14. sept­em­ber) vegur næst þyngst, en sú könnun var gerð yfir tveggja vikna tíma­bil og í henni var fleiri svörum safnað en í hinum könn­unum. Aðrar aðferðir við gagna­öflun, ss. úthring­ingar, net­kann­anir eða spurn­inga­listar, eru ekki vegnar í Kosn­inga­spánni.

Sam­an­lagt eru kann­an­irnar tvær frá MMR gerðar á svipað löngu tíma­bili og Gallup-könn­unin. Sam­an­lagt hafa kann­anir MMR meira en helm­ings vægi í Kosn­inga­spánni eða 51,4 pró­sent. Þegar þessar kann­anir eld­ast minnkar vægi þeirra og að lokum verða þær ekki teknar með, því nýjar kann­anir liggja til grund­vallar nýjum Kosn­inga­spám.

Fyrst í sveitarstjórnarkosningum 2014

Kosn­inga­spár­líkanið sem stuðst er við hér var fyrst keyrt fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2014 og reynd­ist sú til­raun vel. Á vefnum kosn­inga­spá.is má lesa nið­ur­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­vik kann­ana miðað við kosn­inga­úr­slitin. Í ár var kosn­inga­spáin svo gerð í aðdrag­anda for­seta­kosn­inga og nú í aðdrag­anda alþing­is­kosn­ing­anna. Lesa má um kosn­inga­spána og hverja kosn­inga­spá hér.

Spálíkanið sem Baldur hefur útbúið byggir að veru­legu leyti á aðferðum Nate Silver. Um það má lesa hér. Vefurinn FiveT­hir­tyEight.com fjallar nú um for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum og dregur saman, á sama hátt og Kosn­inga­spáin gerir hér á landi, allar mark­tækar kann­anir stuðn­ingi fram­bjóð­enda. Í Banda­ríkj­unum eru kann­an­irnar vit­an­lega æði­margar og mis­mun­andi þannig að hægt er að varpa ítar­legri mynd af stuðn­ingi fram­bjóð­end­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Skýringkosningaspá

Sjö flokkar gætu náð inn á þing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi,...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár