Fyrrverandi dómari ásakar sérstakan um vanhæfni eða óheiðarleika

Sverrir Ólafsson, sem var sér­fróður með­dóm­ari í hér­aðs­dómi Reykja­víkur í hinu svo­kall­aða Aurum-máli, segir að margt bendi til þess að annað hvort van­hæfni eða óheið­ar­leiki hafi átti sér stað hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara með til­liti til með­ferðar gagna í Aurum-mál­inu. Sverrir spyr sig hvort að emb­ættið hafi verið að leyna gögnum í öðrum mik­il­vægum málum og segir að það verði að taka nýlegan áburð Hreiðars Más Sig­urðs­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Kaup­þings sem ákærður hefur verið í fjölda hrun­mála, um slikt alvar­lega.

Það sé skoðun sumra að emb­ættið hafi sýnt af sér for­dæma­lausan ásetn­ing til að sak­fella banka­menn, hvað sem það kostar jafn­vel þótt það krefj­ist þess að ólög­legum vinnu­brögðum sé beitt. Ekki hafi skort á stuðn­ingi frá reiðri þjóð við þessi verk, sem virð­ist telja fang­elsun mik­il­væg­ari en rétt­mæt máls­með­ferð. „Ég hef heyrt þá skoðun setta fram að ef til vill séu sak­fell­ingar í nokkrum banka- eða hrun­málum rangar, en að það sem skipti höf­uð­máli sé að réttir menn voru dæmdir. Maður trúir varla eigin eyrum þegar maður heyrir slíkar athuga­semdir.“

Þetta kemur fram í grein sem Sverrir skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Er bróðir Ólafs Ólafssonar

Sverrir er bróðir Ólafs Ólafs­sonar, sem hlaut þungan dóm í hinu svo­kall­aða Al Thani-máli. Hann var einn þeirra dóm­ara sem sýkn­aði Lárus Weld­ing, fyrr­ver­andi for­stjóri Glitn­is, Magnús Arnar Arn­gríms­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja­sviðs bank­ans, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi aðal­eig­andi Glitn­is, og Bjarni Jóhann­es­son, fyrr­ver­andi við­skipta­stjóri bank­ans í mál­inu sum­arið 2014.

Hann komst í kast­ljós fjöl­miðla þegar hann gagn­rýndi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara harð­lega, eftir að Ólafur Þór Hauks­son hafði látið hafa eftir sér að hann hefði gert athuga­semdir við setu Sverris í fjöl­skip­uðum dómi í Aur­um-­mál­inu, ef hann hefði vitað að hann væri bróðir Ólafs. Sverrir gaf lítið fyrir þessar skýr­ingar Ólafs Þórs og sagði þær bera vott um örvænt­ingu til þess eins að veikja sýknu­dóm­inn í mál­inu. Í apríl í fyrra ómerkti Hæsti­réttur nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms í Aur­um-­mál­inu og vís­aði því aftur til hér­aðs­dóms á grund­velli þess að Sverrir hefði verið van­hæfur til að fjalla um það sökum skyld­leika við bróður sinn.

Áburður um óheiðarleg vinnubrögð

Hreiðar Már, sem hefur hlotið nokkra dóma í hér­aði og Hæsta­rétti fyrir hrun­mál, kærði í byrjun ágúst starfs­menn sér­staks sak­sókn­ara fyrir að hafa haldið mik­il­vægum sönn­un­ar­gögnum frá honum og öðrum sak­born­ingum í CLN-mál­inu svo­kall­aða og þannig brotið gegn saka­mála­lögum, lög­reglu­lögum og almennum hegn­ing­ar­lögum. Hreiðar Már og með­sak­born­ingar hans voru sýkn­aðir í CLN-mál­inu í jan­úar en þeirri nið­ur­stöðu hefur verið áfrýjað til Hæsta­réttar.

Grein Sverris sem birt­ist í morgun er mjög hörð gagn­rýni á emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara, sem nú heitir emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Hann gagn­rýnir harð­lega máls­með­ferð­ina í Aurum-mál­inu, þar sem hann sat sjálfur sem dóm­ari, og sér­stak­lega að ekki hafi verið lagt fram svo­kallað Damas-verð­mat sem hafi sýnt að virði fyr­ir­tæk­is­ins Aurum hafi verið í takti við það verð sem keypt var fyrir, en emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara taldi að hefðu verið sýnd­ar­við­skipti á allt of háu verði til að losa láns­fjár­magn út úr Glitni.

Þar spyr Sverrir sig m.a. hvort emb­ættið hafi kosið að leyna gögnum í öðrum mik­il­vægum málum. „Ef fram kemur áburður um slíkt, eins og núna frá Hreiðari Má, verður að taka hann mjög alvar­lega í ljósi þess sem á undan er gengið. Þar sem margt bendir til að annað hvort, van­hæfi eða óheið­ar­leiki, hafa átt sér stað með til­liti til með­ferðar gagna í Aurum-mál­inu, er engan veg­inn hægt að úti­loka að slíkir atburðir hafi end­ur­tekið sig í öðrum málum.“

Ekki til þess fallið að auka virðingu fyrir réttarkerfinu

Sverrir segir til­fellin þar sem áburður sé um óheið­ar­leg vinnu­brögð hjá emb­ætt­inu séu fleiri en þau sem hann nefnir í grein sinni. „Mér sýn­ist þetta vera alvar­leg van­ræksla af hálfu þeirra aðila sem ættu að veita ákæru­vald­inu aðhald og fylgj­ast með vinnu­brögðum þess. Nú er sú staða komin upp að önnur stofnun, þ.e. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu, hefur sett máls­ferð nokk­urra dóms­mála undir smá­sjána og krafið íslensk stjórn­völd um svör við atriðum sem tengj­ast þeim.[...] Það er skoðun sumra að mögu­leg ástæða fyrir því sé for­dæma­laus ásetn­ingur ákæru­valds­ins að sak­fella banka­menn, hvað sem það kostar, og koma þeim á bak við lás og slá í eins mörg ár og mögu­legt er, jafn­vel þó það krefj­ist þess að beitt sé ólög­legum vinnu­brögðum, eins og síma­hler­unum eða aft­ur­haldi mik­il­vægra gagna. Svo hefur heldur ekki skort á stuðn­ing frá reiðri þjóð, sem stundum virð­ist telja fang­elsun mik­il­væg­ari en rétt­mæta máls­með­ferð. Ég hef heyrt þá skoðun setta fram að ef til vill séu sak­fell­ingar í nokkrum banka- eða hrun­málum rangar, en að það sem skipti höf­uð­máli sé að réttir menn voru dæmdir. Maður trúir varla eigin eyrum þegar maður heyrir slíkar athuga­semdir.“

Hann segir að þrátt fyrir útbreidda andúð á banka­mönnum sé mik­il­vægt að hún yfir­bugi ekki virð­ing­una sem flestir vilji bera fyrir rétt­ar­kerfi lands­ins. „ Því miður virð­ist vera ýmis­legt í hátt­erni ákæru­valds­ins upp á síðkastið, sem er ekki til þess fallið að við­halda, hvað þá auka, virð­ingu fólks fyrir rétt­ar­kerf­inu í land­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár