QuizUp í baksýnisspeglinum: Upphafið, endirinn og leitin að tekjum

Aðkoma stærstu nýsköp­un­ar­sjóða heims að Plain Vanilla hefur haft sýni­leg áhrif á íslensku nýsköp­un­ar­sen­una. Hall­grímur Oddsson rekur ris og fall Plain Vanilla síð­ustu þrjú árin.

QuizUp þótti góður leikur strax þegar hann var settur á markað haustið 2013. Erfiðlega hefur hins vegar gengið að halda notendum og hafa af þeim tekjur.
QuizUp þótti góður leikur strax þegar hann var settur á markað haustið 2013. Erf­ið­lega hefur hins vegar gengið að halda not­endum og hafa af þeim tekjur.

Í síð­ustu viku varð ljóst að íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Plain Vanilla, sem fram­leiðir spurn­inga­leik­inn QuizUp, mun hætta starf­semi. Endalok fyr­ir­tæk­is­ins urðu ljós í kjöl­far ákvörð­unar NBC-sjón­varps­stöðv­ar­innar um að fram­leiða ekki spurn­inga­þætti eins og til stóð. Nota átti QuizUp til að etja saman þátt­tak­endum í sjón­varps­sal og áhorf­endum heima í stofu. En þótt slit á sam­starfi við NBC reynd­ist vera síð­asti naglinn í kistu Plain Vanilla, þá vógu aðrir þættir þungt. Frá útgáfu QuizUp hefur erf­ið­lega gengið að skapa tekjur af leiknum, þrátt fyrir marg­vís­legar til­raunir, auk þess sem illa gekk að halda not­endum í leiknum.

Þessar tvær helstu áskor­anir Plain Vanilla, þ.e. að afla tekna og við­halda not­endum, eru auð­vitað ekki ein­stakar. Fyr­ir­tæki og vöru­línur standa frammi fyrir sömu grund­vallar spurn­ingum: Hvernig er hægt að fá fólk til að prófa vör­una, hvernig er hægt að fá fólk til að nota vör­una áfram og hvernig er hægt að hafa tekjur af vör­unni? Plain Vanilla átti í engum vand­ræðum með að fá not­endur til að nið­ur­hala leiknum, eins og frægt er. QuizUp sló met í Apple App Store þegar hann kom út í nóv­em­ber 2013. Erlendir fjöl­miðlar sýndu QuizUp mik­inn áhuga, leik­ur­inn þótti skemmti­legur og vel gerður, og var settur í loftið sam­hliða miklu og vel heppn­uðu mark­aðs­starfi þar sem ein­blínt var á Banda­ríkja­markað.

Hélt ekki notendum

Upp­lýs­ingar aðrar en um fjölda nið­ur­hala hafa aldrei verið gerðar opin­berar, t.d. tölur um hversu margir spila QuizUp aftur og aftur. En ljóst er að margir not­endur höfðu ein­ungis áhuga á leiknum í skamman tíma, og upp­lifðu það sama hjá fólki í kringum sig. Margir sóttu leik­inn og spil­uðu nokkrum sinnum eða í nokkra daga, en hættu svo. Breyt­ingar sem síðar voru gerðar á leiknum, og fjallað er um hér að neðan, snéru að stórum hluta að lausn þessa vanda­máls: Hvernig er hægt að fá not­endur til að spila leik­inn meira og lengur?

Tekju­módel QuizUp var ekki til staðar þegar leik­ur­inn fór í loftið. Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi og for­stjóri Plain Vanilla, benti á þessum tíma á að það væru helst íslenskir fjöl­miðlar sem spurðu hvernig leik­ur­inn ætti að skapa tekjur. Í Banda­ríkj­unum séu þær vanga­veltur minni eða ekki til staðar. Þor­steinn vís­aði þar til þeirrar stefnu sem var ríkj­andi innan nýsköp­un­ar­geirans á þessum árum. Það var algengt við­horf að upp­bygg­ing nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja fælist á upp­hafs­stigum fyrst og síð­ast í eins mik­illi fjölgun not­enda og hægt var. Þessi stefna var undir miklum áhrifum frá vel­gengni Facebook og náði ákveðnum hátindi um það leyti sem QuizUp kom út í lok árs 2013. Þetta við­horf er ekki nærri jafn ríkj­andi í nýsköp­un­ar­geir­anum í dag.

Mán­uð­irnir eftir útgáfu QuizUp ein­kennd­ust af þess­ari stefnu. Kapp var lagt á að fjölga not­endum, án þess að sér­stök áhersla væri lögð á að hafa af þeim tekjur. Auk „nátt­úru­legrar“ fjölg­unar not­enda sem lásu um leik­inn, heyrðu af honum eða sáu hann á topp­listum App Store, var leik­ur­inn þýddur á fleiri tungu­mál og unnið að útgáfu fyrir Android-stýri­kerfi. Allt var þetta mögu­legt í krafti ríf­lega 20 millj­óna dala við­bót­ar­fjár­fest­ingar frá hlut­höfum, þ.á.m. voru fjár­fest­inga­sjóð­irnir (e. venture capital funds) Sequioa Capital og Tencent Holdings, tveir risar í nýsköp­un­ar­heim­inum.

Aukið fé gerði fyr­ir­tæk­inu kleift að skapa vinnu­að­stæður og stemn­ingu sem tekið var eftir. Plain Vanilla óx hratt á alla kanta, hvort sem litið er til not­enda eða starfs­fólks, sem fljót­lega taldi um 80 manns í nýjum höf­uð­stöðvum á Lauga­vegi, vopnað öllum þeim græjum sem það þurfti og gerði sér glaðan dag á hinum ýmsu þema­dögum. Fá ef nokkur önnur íslensk fyr­ir­tæki buðu upp á sam­bæri­legar vinnu­að­stæður.

Vildi aðra lausn en auglýsingar

Fyrir tveimur árum, í sept­em­ber 2014, skrif­aði ég grein sem bar yfir­skrift­ina Hvernig ætlar QuizUp að græða pen­inga? Greinin var ákveðin yfir­ferð yfir rekstur leiks­ins frá útgáfu og einnig vanga­veltur um stöðu og fram­tíð fyr­ir­tæk­is­ins. Plain Vanilla stóð á tíma­mótum. Breyta átti umhverfi leiks­ins í átt að sam­skipta­miðli. Hug­myndin byggði á því að QuizUp gæti tengt saman fólk með sömu áhuga­mál, ekki ein­göngu til að keppa í spurn­inga­leikjum um áhuga­mál sín heldur einnig á dýpri grunni innan sam­skipta­mið­ils. Vonir stóðu til að nýtt umhverfi myndi skapa grund­völl til að hafa af leiknum tekjur. Breytt útgáfa QuizUp fór í loftið í maí 2015, eftir nokkrar tafir, og þannig lítur leik­ur­inn út í dag.

Þor­steinn tal­aði lengi gegn því að birta aug­lýs­ingar í QuizUp en samn­ingar voru þó gerðir við nokkur fyr­ir­tæki, m.a. Coca-Cola og Google, um að ger­ast styrkt­ar­að­ilar ákveð­inna spurn­inga­flokka. Leik­ur­inn gerði heldur aldrei mikið úr svoköll­uðum „in-app purchases“, þar sem not­endur geta keypt ýmis­legt inn í leiknum, þótt leik­ur­inn sjálfur sé ókeypis. Það var að litlu leyti í boði í QuizUp, not­endur gátu t.d. keypt „boost“ til að auka stiga­gjöf og þannig klifið hraðar upp stiga­töflur. En kaupin í leiknum voru aldrei nauð­syn­leg til að auka ánægju af spilun. Fyrir not­endur var spilun leiks­ins að öllu leyti ókeypis. Þetta breytt­ist þó þegar leið á og rík­ari kröfur voru gerðar um tekju­öflun. Tekjur er nú sóttar bæði með aug­lýs­ingum og „in-app“ kaupum.

Tregðan við að reiða sig á aug­lýs­ingar leiddi Plain Vanilla á aðrar og ótroðnar slóðir. Utan sam­fé­lags­miðla-til­raun­ar­innar var búin til sér­stök vara fyrir fyr­ir­tæki. Hún kom út í ágúst 2015 og hét QuizUp at Work. Tólinu var ætlað að „fræða, þjálfa og skapa góðan starfsanda“ að því er sagði í frétta­til­kynn­ingu um QuizUp at Work. Skömmu síðar var önnur vara kynnt til leiks, þar sem not­endum leiks­ins var leyft að búa til sínar eigin spurn­ingar og spurn­inga­flokka í leiknum. Fram að þeim tíma hafði allt slíkt ferli farið í gegnum höf­uð­stöðv­arnar, þótt spurn­ing­arnar hafi verið búnar til af hinum og þessum.

Sjónvarpið síðasta tilraunin

Haustið 2015 var síðan til­kynnt um sam­komu­lagið við NBC sjón­varps­stöð­ina um gerð spurn­inga­þátta byggða á QuizUp. Eins og fram kom í fréttum síð­ustu viku, þá var mikið lagt undir hjá Plain Vanilla. Þor­steinn sagði að þar hafi of mörg egg verið sett í sömu körfu. Horft í bak­sýn­is­speg­il­inn, þá var veð­málið um vin­sælan sjón­varps­þátt þó eflaust besti kost­ur­inn í stöð­unni haustið 2015. Aðrar leiðir til að festa leik­inn í sessi og hafa af honum nægi­legar tekjur skil­uðu ekki til­ætl­uðum árangri. Aðrar tekju­leiðir en aug­lýs­ingar í leiknum og „in-app“ kaup voru ekki aug­ljósar. Sterk tengsl við sjón­varps­þátt NBC hefði sýni­lega getað orðið mikil lyfti­stöng fyrir QuizUp og aukið vin­sældir hans. Á sama tíma er ljóst að gerð sjón­varps­efnis er brot­hætt ferli og ekk­ert öruggt að af þátt­unum yrði, eins og þekkt er í sjón­varps- og kvik­mynda­geir­anum.

Plain Vanilla hefur frá ára­mótum farið í gegnum hag­ræð­ing­ar­ferli. Starfs­mönnum hefur fækkað og áherslur breyst, en tölvu­leikja­fram­leið­and­inn Glu Mobile kom að rekstr­inum í jan­úar 2016 með yfir­töku í náinni fram­tíð í huga. Áfram verður hægt að spila leik­inn og hann lík­leg­ast seldur öðrum, að því er Plain Vanilla greindi frá í síð­ustu viku. Leik­ur­inn á sér því mögu­lega fram­halds­líf, sem hluti af stærra leikja­fyr­ir­tæki eða rek­inn og þró­aður áfram með lít­illi yfir­bygg­ingu.

Þótt ekki hafi tek­ist að búa til sjálf­bært fyr­ir­tæki í kringum QuizUp, þá er engin ástæða til að gera lítið úr þeim árangri sem náð­ist. Að búa til svo vin­sælan leik er öfunds­verð staða fyrir aðra fram­leið­endur. Traustið sem stærstu nýsköp­un­ar­sjóðir heims sýndu Plain Vanilla, með millj­arða króna fjár­fest­ingum, er til marks um hvað QuizUp hefði getað orðið. Sjóðir eins og Sequioa veðja á að virði fjár­fest­inga þeirra marg­fald­ist. Flestar verða þó að litlu eða engu, og það vita sjóð­irnir best allra. Aðkoma þeirra að Plain Vanilla og árangur fyr­ir­tæk­is­ins hefur haft sýni­leg áhrif á íslensku nýsköp­un­ar­sen­una og mun vafa­laust gera það áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár