Plain Vanilla fækkar um 27 stöðugildi - Krafa um hagnað á árinu

Þorsteinn B. Friðriksson er forstjóri Plain Vanilla.
Þor­steinn B. Frið­riks­son er for­stjóri Plain Vanilla. Mynd: Kjarninn.

Íslenska tölvu­leikja­fyr­ir­tækið Plain Vanilla hefur fækkað stöðu­gildum hjá sér um 27 og ráð­ist í end­ur­skipu­lagn­ingu á starf­semi sinni hér á landi. Í breyt­ing­unum var 23 manns sagt upp störfum en fjórir hætta að eigin frum­kvæði um næstu mán­að­ar­mót. Starfs­menn verða eftir breyt­ing­arnar rúm­lega 40 en voru þegar mest lét 86 tals­ins. Plain Vanilla flutti í stærra hús­næði við Laugaveg 77 árið 2014 og starf­semin verður þar áfram til húsa, en starfs­manna­fjöld­inn verður nú aftur svip­aður og þegar fyr­ir­tækið flutti inn.

Í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu kemur fram að það ætli að auka umsvif sín í Los Angeles í Banda­ríkj­unum og kröfur verða gerðar á það að skila hagn­aði á árinu 2016. Stefnt er að því að Plain Vanilla sam­ein­ist banda­ríska fyr­ir­tæk­inu Glu Mobile á næstu tólf mán­uðum, en það keypti stóran hlut í Plain Vanilla í byrjun árs.

Þar segir einnig að Plain Vanilla stefni að því að skila hagn­aði á árinu, ann­ars vegar með því að afla meiri tekna í sam­vinnu við tölvu­leikja­fram­leið­and­ann Glu Mobile og hins vegar með sam­rekstri á ákveðnum sviðum sem skila mun sam­legð­ar­á­hrifum. „Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins af QuizUp hafa auk­ist en draga þarf úr rekstr­ar­kostn­aði til að flýta því að fyr­ir­tækið skili hagn­aði. Umhverfi tækni­fyr­ir­tækja hefur breyst mikið und­an­farið og víð­ast hvar í heim­inum er nú áhersla á að þau skili hagn­aði, en meg­in­á­herslan var áður á vöxt óháð tekjum."

Verið er að loka­hönd á spurn­inga­þátt­inn QuizUp í stúd­íói sjón­varps­ris­ans NBC Í Los Angeles um þessar mundir og fór prufu­keyrsla á þætt­inum fram aðfara­nótt fimmtu­dags að íslenskum tíma. Stefnt er að því að fyrsti þátt­ur­inn fari í loftið í sept­em­ber. Nú þegar starfa tíu manns á vegum Plain Vanilla við þróun þátt­ar­ins á vest­ur­strönd­inni og á Íslandi.

Þor­steinn B. Frið­riks­son, for­stjóri Plain Vanilla, segir að það felist spenn­andi tæki­færi í vax­andi umsvifum í Banda­ríkj­unum. „Samhliða áhersl­unni á að nýta tæki­færin sem fylgja munu í kjöl­farið þá þurfum við að end­ur­skipu­leggja fyr­ir­tækið og horfa á eftir dug­legu og hæfi­leik­a­ríku fólki sem hefur unnið hörðum höndum við að koma QuizUp á þann stað sem það er í dag. Ég verð þeim ævin­lega þakk­látur fyrir elj­una og metn­að­inn en veit jafn­framt að þau munu ekki sitja lengi auðum höndum þar sem mikil eft­ir­spurn er hjá íslenskum og erlendum fyr­ir­tækjum eftir hæfi­leik­a­ríku starfs­fólki um þessar mundir.“

Setti milljarð í Plain Vanilla og fékk kauprétt á fyrirtækinu öllu

Í jan­úar fjár­festi Glu Mobile fyrir 7,5 millj­ónir dala, um einn millj­arð íslenskra króna á þeim tíma­punkti, í Plain Vanilla. Glu Mobile er skráð á NASDAQ verð­bréfa­mark­að­inn og þró­aði m.a. appið Kim Kar­dashian: Hollywood. Eins hefur fyr­ir­tækið gert samn­ing við söng­kon­una Britney Spears um að þróa tölvu­leik sem byggir á lífi hennar. Stærstu hlut­hafar Glu eru ýmsir fjár­fest­ing­ar­sjóðir.Kín­verska fyr­ir­tækið Tencent, sem er stærsta net­fyr­ir­tæki Asíu og það fjórða stærsta í heimi, keypti 15% hlut í Glu fyrir um 15 millj­arða króna í apríl í fyrra, en Tencent er einnig á meðal stærstu hlut­hafa í Plain Vanilla.

Við kaupin tók Niccolo de Masi, for­stjóri Glu Mobile, sæti í stjórn Plain Vanilla en þar að auki öðl­ast Glu kaup­rétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyr­ir­fram umsömdu verði. Kaup­rétt­ur­inn gildir í 15 mán­uði frá fjár­fest­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár