Setur milljarð í Plain Vanilla og fær kauprétt á fyrirtækinu öllu

Íslenski leikja­fram­leið­and­inn Plain Vanilla sækir sér nýtt fjár­magn í banda­ríska fyr­ir­tækið Glu, sem öðl­ast kaup­rétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyr­ir­fram umsömdu verði. Fyr­ir­tækin ætla að leggja áherslu á þróun Quiz Up sjón­varps­þáttar.

Plain Vanilla fær tæpan millj­arð í fjár­magn frá banda­ríska tölvu­leikja­fram­leið­and­anum Glu Mobile Inc. Fyr­ir­tækið sér­hæfir sig í að fram­leiða leiki fyrir snjall­síma og spjald­tölvur og ætlar að fjár­festa í Plain Vanilla fyrir allt að 7,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala sem sam­svarar um 970 millj­ónum króna.

Niccolo de Masi, for­stjóri Glu, tekur sæti í stjórn QuizUp en þar að auki öðl­ast Glu kaup­rétt á öllu hlutafé Plain Vanilla á fyr­ir­fram umsömdu verði. Kaup­rétt­ur­inn gildir í 15 mán­uði frá fjár­fest­ing­unni.

Vill skoða kaup á Plain Vanilla í heilu lagi

Haft er eftir de Masi í til­kynn­ingu sem send var fjöl­miðlum í dag að hann hlakki til að taka sæti í stjórn QuizUp.

„Til við­bótar við þau tæki­færi sem fel­ast í kynn­ing­ar­sam­starfi á milli leikja Glu og sér­hæfðra áhuga­hópa innan QuizUp, þá erum við spennt að sjá þennan spenn­andi, nýja spurn­inga­þátt sem verður til með sam­vinnu Plain Vanilla og NBC," segir hann. „Ef sam­starfið verður far­sælt og tekjur af QuizUp halda áfram að aukast þá mun Glu skoða að nýta þann rétt sem við höfum til að kaupa fyr­ir­tækið í heilu lagi.“

Fyr­ir­tækin tvö munu meðal ann­ars leggja áherslu á þróun QuizUp sjón­varps­þátt­ar­ins, sem til­kynnt var um síð­asta haust. Stærsta sjón­varps­stöð Banda­ríkj­anna, NBC, hefur ákveðið að fram­leiða 10 þátta seríu sem byggir á QuizUp. Í kjöl­farið keypti ITV fjöl­miðl­aris­inn, sem rekur hátt í tíu sjón­varps­stöðvar í Bret­landi, rétt­inn að QuizUp spurn­inga­þætt­inum þar í landi.

Vonir bundnar við sjónvarpið

Standa vonir til þess að QuizUp spurn­inga­þáttur verði sýndur um allan heim en í honum etja þátt­tak­endur í upp­töku­veri kappi við sjón­varps­á­horf­endur sem sitja heima í stofu og eiga sig­ur­veg­arar mögu­leika á að vinna sér inn pen­inga­upp­hæðir.

Plain Vanilla fram­leiðir spurn­inga­leik­inn QuizUp en síðan honum var hleypt af stokk­unum haustið 2013 hafa um 40 millj­ónir not­enda skráð sig til leiks og eyða not­endur í dag að jafn­aði um 30 mín­útum á dag í leiknum.

Glu Mobile Inc er skráð í banda­rísku NASDAQ kaup­höll­ina en stærstu hlut­hafar Glu eru ýmsir fjár­fest­ing­ar­sjóðir. Kín­verska fyr­ir­tækið Tencent, sem er stærsta net­fyr­ir­tæki Asíu og það fjórða stærsta í heimi, keypti 15% hlut í Glu fyrir um 15 millj­arða króna í apríl í fyrra. En Tencent er einnig á meðal stærstu hlut­hafa í Plain Vanilla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár