QuizUp setur á markað nýja vöru fyrir fyrirtæki

Fyr­ir­tækið Plain Vanilla, sem rekur spurn­inga­leik­inn QuizUp, hefur samið við Íslands­banka um að bank­inn taki nýja vöru QuizUp í gagnið, „QuizUp at work“ að nafni. Varan er sér­stak­lega ætluð fyr­ir­tækjum og er Íslands­banki fyrsta fyr­ir­tækið til þess að nota inn­leiða hana. Þessu nýja tóli er ætlað að vera tól til að fræða, þjálfa og skapa góðan starfsanda, segir í til­kynn­ingu frá QuizUp.

Erlendir fjöl­miðlar hafa fjallað um QuizUp at Work á síð­ustu dögum, meðal ann­ars TechChrunch og The Next Web. Í til­kynn­ing­unni segir að í kjöl­far umfjöll­unar erlendis hafi nokkur hund­ruð beiðnir frá fyr­ir­tækjum borist um að fá kynn­ingu á mögu­leikum QuizUp at Work.

„QuizUp at Work verður alger­lega til hliðar við QuizUp sam­fé­lagið sjálft og munu starfs­menn við­kom­andi fyr­ir­tækja fá aðgang að lok­uðu sam­fé­lagi þar sem þeir geta kynnst hver öðrum, spreytt sig á sér­sniðnum spurn­ingum er varða starf sitt eða vinnu­stað­inn og komið ábend­ingum á fram­færi. Sam­fé­lags­hluti býður upp á margar leiðir til að efla menn­ingu og starfsanda fyr­ir­tækja. Þar er hægt að setja í gang litla leiki í kringum við­burði innan fyr­ir­tækj­anna og byggja upp stemmn­ingu hjá starfs­fólki fyrir þeim. Þá er hægt að nota appið til að kynna og upp­lýsa starfs­menn um mark­aðs­her­ferðir sem eru að fara í gang eða kynna þeim nýjar vörur og þjón­ustu fyr­ir­tækj­anna. Einnig getur þetta verið góð leið til að kynna nýja starfs­menn, þjálfa þá og hjálpa þeim að kynn­ast vinnu­fé­lögum sínum,“ segir um nýja vöru QuizUp.

Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri QuizUp, segir að það hafi ekki beint verið fyr­ir­séð að þróuð yrði sér­stök vara fyrir fyr­ir­tæki. „Það er samt stundum þannig að óvæntir mark­aðir opn­ast þar sem að eig­in­leikar nýrrar tækni nýt­ast mjög vel. Símenntun og þjálfun er orð­inn mjög stór þáttur í starf­semi fyr­ir­tækja, en um leið þá eru aðferð­irnar sem er beitt frekar gam­al­dags. Þess er kraf­ist að fólk sitji og hlusti á fyr­ir­lestra heilu og hálfu dag­ana eða setj­ist niður og lesi langar hand­bækur. Fólk hefur minni þol­in­mæði gagn­vart slíku í dag og þarna eru kostir QuizUp at Work aug­ljósir. Í raun gætum við þróað QuizUp í fleiri slíkar áttir t.d. sem kennslu­stól fyrir skóla en við ætlum samt að byrja á stórum fyr­ir­tækjum. Við sjáum að þörfin er mjög mikil fyrir tól sem hjálpa til við þjálfun starfs­fólks.“

Haf­steinn Bragason, mannauðs­stjóri Íslands­banka, segir að hag­ræði felist í vöru QuizUp. „Við leggjum mikla áherslu á að vera stöðugt að efla starfs­fólk Íslands­banka með því að bjóða upp á ýmis konar fræðslu og þjálfun. Tækninni fleygir fram og í nútímaum­hverfi þarf fólk ein­fald­lega sífellt að vera að mennta sig. Við sjáum hins vegar á rann­sóknum að mik­il­vægt er að nýta fjöl­breytt­ari kennslu­að­ferðir nú en áður og við teljum QuizUp at Work henta vel í okkar fræðslu­starf. Alls konar hag­ræði fylgir QuizUp at work. Það þarf t.d. engin nám­skeiðs­gögn og fólk spilar QuizUp á sínum síma, í sínu umhverfi og á þeim tíma sem hentar. Þar fyrir utan er þetta mjög fersk nálgun í fræðslu með mikið skemmt­ana­gildi. Starfs­fólk bank­ans mun án efa taka þess­ari nýj­ung fagn­andi sem mun nýt­ast okkur vel.“

Athuga­semd rit­stjórnar: Í fyrri útgáfu frétt­ar­innar stóð að fyr­ir­tækið Plain Vanilla héti í dag QuizUp, eins og leik­ur­inn. Það er ekki rétt, félagið heitir Plain Vanilla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár