Sjónvarpsstöðin NBC gerir spurningaþætti með QuizUp

Banda­ríska sjón­varps­stöðin NBC hefur ákveðið að fram­leiða tíu þátta sjón­varps­s­eríu sem byggir á íslenska spurn­inga­leiknum QuizUp. Þetta verður gert í sam­starfi við Plain Vanilla, fyr­ir­tækið sem þró­aði og rekur QuizUp, en þætt­irnir munu heita sama nafni og leik­ur­inn.

Þátt­ur­inn verður eðli máls­ins sam­kvæmt spurn­inga­þáttur, þar sem þátt­tak­endur í upp­töku­veri munu keppa við sjón­varps­á­horf­endur sem sitja heima, um öll Banda­ríkin. Ef þátt­tak­endur í mynd­veri vinna átta spurn­inga­lotur gegn átta ólíkum keppi­nautum geta unnið. Þeir sem sitja heima geta unnið þá upp­hæð sem í boði er fyrir hverja lotu ef þeir vinna. Sig­ur­veg­arar munu fá allt að eina milljón doll­ara í verð­laun, eða um 130 millj­ónir íslenskra króna.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Plain Vanilla er sagt að búist sé við að fleiri sjón­varps­stöðvar víða um heim muni fram­leiða sínar útgáfur af þætt­inum. Þar er einnig haft eftir Paul Telegdy, sem er fram­kvæmda­stjóri kvöld­dag­skrár NBC, að sjón­varps­þátt­ur­inn sé eðli­leg fram­leng­ing á leiknum. Þetta sé við­bót við við­skipta­mód­elið, „sjón­varps­konsept sem höfðar til allra og er frá­bær afþrey­ing á hvaða tungu­máli sem er. Þessi þátta­röð mun breyta vin­sælasta spurn­inga­appi í heim­inum í skemmti­legan sjón­varps­við­burð.“

Þor­steinn B. Frið­riks­son, for­stjóri og stofn­andi QuizUp segir þátt­inn frá­bært næsta skref. Síðustu mán­uði hafi verið unnið að því að færa leik­inn nær því að vera líka sam­fé­lags­mið­ill. „Með til­komu My QuizUp við­bót­ar­innar, sem fór í loftið í síð­ustu viku, þá geta not­endur nú búið til sitt eigið efni og spurn­ingar. QuizUp sjón­varps­þátt­ur­inn mun gera okkur kleift að færa nálgun Plain Vanilla á þetta sammann­lega áhuga­mál fólks, að keppa í að svara spurn­ingum rétt, beint inn í stofu til millj­óna sjón­varps­á­horf­enda. Við erum afskap­lega spennt fyrir því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár