Hvernig ætlar QuizUp að græða peninga?

Í nokkra daga í nóv­em­ber á síð­asta ári pípti sím­inn minn stans­laust. Facebook-vinir mínir, einn af öðrum, hlóðu niður QuizUp, spurn­inga­leik Plain Vanilla, rétt eins og ég hafði sjálfur gert, og sím­inn lét mig vita í hvert ­ein­asta sinn sem ein­hver sótti leik­inn. Pípið ein­skorð­að­ist ekki við Ísland. Eins og frægt er varð QuizUp gríð­ar­lega vin­sæll og sló met í App Store-versl­un­inni.
Nýverið hélt Þor­steinn B. Frið­riks­son, stofn­andi og for­stjóri Plain Vanilla, erindi á haust­ráð­stefnu Advania, þar sem hann fór meðal ann­ars yfir sögu félags­ins og þann lær­dóm sem hann hefur dregið af ferl­inu öllu. Yfirferð Þor­steins er áhuga­verð fyrir margra hluta sakir og má sjá í heild sinni hér.

Meðal ann­ars nefnir hann stutt­lega þær áætl­anir um að færa leik­inn, eða umhverfi hans, nær því að verða sam­fé­lags­mið­ill. Hann tekur þó fram að á þessu stigi gæti hann fátt sagt opin­ber­lega um fyr­ir­ætl­anir Plain Vanilla.

Margt hefur breyst hjá Plain Vanilla á því tæpa ári sem liðið er frá útgáfu leiks­ins. Starfs­fólki hefur fjölgað úr 12 í nærri 80, um 26 millj­ónir manns hafa sótt QuizUp og fyr­ir­tækið er fjár­hags­lega í stakk búið undir verk­efnið sem bíður; Að festa QuizUp í sessi meðal not­enda og finna út hvernig má hafa ­tekjur af leiknum, þannig að rekstur Plain Vanilla standi undir sér. Hér er ætl­unin að reifa þessa stöðu fyr­ir­tæk­is­ins, séð utan frá.

Margir sótt en færri notendur

Stefna Plain Vanilla var í upp­hafi ein­föld og þekkt meðal nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja í sömu sporum, að fjölga not­endum eins ört og mikið og mögu­legt er. Aðrir þættir, eins og tekju­streymi, var séð sem fram­tíð­ar­músík. Strax við útgáfu leiks­ins sagði Þor­steinn að nokkrir mögu­leikar væru í stöð­unni til að sækja tekjur síðar meir, en sló strax út af borð­inu þá leið að selja aug­lýs­inga­borða í leik­inn. Má segja að það sé þrennt sem talað hefur verið um, og að hluta eða að öllu leyti verið hrint í fram­kvæmd; Að þýða leik­inn á fleiri tungu­mál en ensku, að fá styrkt­ar­að­ila á bak­við ein­staka spurn­inga­flokka og nú að gera leik­inn að sam­fé­lags­miðli eða ein­hvers konar sam­fé­lags­neti.

Ef litið er til skráðra not­enda blasa vin­sæld­irnar við. Um 26 millj­ónir manna hafa sótt leik­inn. Í júní síð­ast­liðnum, þegar sama tala var 22 millj­ónir, upp­lýsti Plain Vanilla að með­al­tals­notkun hvers not­anda hafi verið um 30 mín­útur dag hvern og að fjöldi spil­aðra spurn­inga­ein­víga hafi verið 6 millj­ónir á hverjum degi. Töl­fræðin fyllti vafa­laust margan snjall­síma­tölvu­leikja­fram­leið­and­ann öfund, ekki síst á ­tímum þar sem snjall­síma­tölvu­leikja­spil­arar eru þekktir fyrir að færa sig úr einum leik í annan á áður óþekktum hraða.

Ljóst er þó að með­byr QuizUp er í dag ekki jafn mik­ill og hann var í upp­hafi. Ef ég lít á þann hóp sem ég teng­ist í QuizUp (í gegnum Facebook), og færi þá hegðun yfir á heild­ina, þá má álykta að fæstir skráðra not­enda opni leik­inn lengur. Með öðrum orðum þá virð­ast fáir verða hel­teknir af leiknum. QuizUp þarfn­ast sinna Vigdísa, alveg eins og CandyCrush, og von­andi eru þær nógu margar af þeim 26 millj­ónum sem hafa skráð sig. Það er erfitt að átta sig á „raun­veru­legri“ notkun í dag, en hún er ekki nálægt 26 millj­ónum manns.

Þýða á önnur tungumál

Í kjöl­far vin­sælda í Banda­ríkj­unum og víðar var ákveðið að þýða QuizUp á fleiri tungu­mál, meðal ann­ars þýsku, spænsku og portú­gölsku. Það var ein leið Plain Vanilla til að við­halda fjölgun not­enda. Í dag stendur félagið frammi fyrir því að breyta um kúrs og halda í not­endur frekar en að fjölga þeim. Vafa­laust er hægt að þýða leik­inn á fjöl­mörg tungu­mál, enda félagið gríð­ar­lega vel fjár­magnað eftir síð­asta hluta­fjár­út­boð í des­em­ber síð­ast­liðnum, þar sem 22 millj­ónum doll­ara var safnað af fjár­festum, eða um 2.600 millj­ónum króna. En meðan tekju­streymið er ekki aug­ljóst þá er erfitt að sjá hvernig það borgar sig, auk þess sem færa má rök fyrir því að ensku­mæl­andi mark­aður sé nægi­lega stór, og gott betur.

Sú fram­tíð­ar­sýn stjórn­enda að leik­ur­inn verði teng­ing inn í sam­fé­lags­miðil er ekki galin. Leik­ur­inn er eitt stórt safn ýmiss konar braut­ar­palla (það eru spurn­inga­flokk­arnir) sem tengja saman fólk með sömu áhuga­mál. Á móti má benda á að það gera spjall­borð á net­inu líka (e. forum), sem finna má auð­veld­lega með Google eða öðrum leiðum, þess utan að Facebook býður upp á svip­aða þjón­ustu, það er ótelj­andi hópa um afmark­aða hluti, bæði opna og lok­aða. Sam­keppnin er mikil, væg­ast sagt.

Samið við fyrirtæki – á þeirra forsendum

Áætlanir um sam­fé­lags­miðla­teng­ingu svara ekki þeirri spurn­ing­unni hvernig Plain Vanilla ætlar að afla tekna af vör­unni sinni. QuizUp glímir við þessar stóru spurn­ingar í dag því leik­ur­inn fór á markað án þess að spurn­ing­unni væri svarað, fyrir utan þá stað­reynd að leik­ur­inn gerir ekki sér­stak­lega út á að not­endur versli inn í leiknum (e. in-app purchases), þá eru mögu­leikar til þess í dag fáir og nærri ósýni­legir not­endum.

Helsta boð­aða tekju­leiðin hefur verið sú að fá fyr­ir­tæki eða stofn­anir til þess að styrkja ákveðna spurn­inga­flokka (e. sponsor). Það hafa t.d. Google og Coca Cola gert. Leiðin er gam­al­kunn í her­búðum Plain Vanilla, sem byrj­aði á því að gefa út sér­stakt spurn­inga­leikja­app í tengslum við Twilight-vam­p­íru­mynd­irnar.

Þessi leið til tekju­öfl­unar er aug­ljós­lega tíma­frek­ari og flókn­ari en að ein­fald­lega setja aug­lýs­inga­borða í leik­inn. Hversu góð hún raun­veru­lega er veltur alfarið á fyrir­tækj­unum, hvort þau séu til­bú­inn að taka þátt og sjái hag sinn í að styrkja efni. Í ein­faldri spurn­ingu þá má setja dæmið upp svona: Hvað kostar að eiga í samn­inga­við­ræðum við tíu fyr­ir­tæki um að ger­ast bak­hjarlar efnis, ef aðeins eitt þeirra gengur til samn­inga að lokum? Þessi tekju­leið getur verið brot­hætt.

„Þróastu ellegar deyðu“

Þær rúmu 2.500 millj­ónir sem runnu til rekst­urs­ins um síð­ustu ára­mót, í vel heppn­uðu hluta­fjár­út­boði, geta lengi dugað sem rekstr­arfé. En eins og hjá sam­bæri­legum fyr­ir­tækjum er stefnan að sækja fram, enda það eina í stöð­unni á mark­aði snjall­símafor­rita og tölvu­leikja. „Þróastu ellegar deyðu“ er lög­málið. Fjár­hags­leg staða félags­ins til að sækja fram er góð, en stjórn­endur keppa engu að síður við tím­ann. Plain Vanilla veit hvernig á að fjölga not­endum. Núna þarf það að finna út hvernig hægt er að halda sem flestum í heljar­greipum þeirrar snilldar sem tölvu­leikir geta verið.

Í raun ætti Plain Vanilla að vera alveg sama hvort ­not­end­urnir séu orðnir 26 millj­ónir eða 106 millj­ónir. Hlutfall þeirra sem opnar leik­inn aftur og aftur er tekju­lindin. Virkustu ­not­end­urnir munu borga, en það þarf að gera þeim það kleift. Sam­fé­lags­mið­ill getur togað í fjöld­ann allan af hlið­hollum not­endum, en upp­bygg­ingin verður erfið, ekki síst vegna þess að upp­haf­leg hugsun að baki QuizUp var spurn­inga­leikur, ekki sam­fé­lags­mið­ill. Ef QuizUp nær ekki að halda í not­endur né hafa af þeim tekjur, þá gæti QuizUp verið best borgið sem hluta af annarri, viða­meiri vöru.


Gefa ekki upp hversu margir eru virkir notendur

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn á Þorstein B. Frið­riks­son, for­stjóra og stofn­anda Plain Vanilla, og spurð­ist fyrir um hversu margir af þeim 26 millj­ónum manna sem sótt hafa QuizUp-appið spili leik­inn dag­lega, viku­lega eða mán­að­ar­lega.

Í svari Þor­steins kemur fram að Plain Vanilla hafi ekki gefið út opin­berar tölur um dag­lega eða mán­að­ar­lega not­endur. Hann sagði fyr­ir­tækið hafa stækkað mikið und­an­farna mán­uði og starfs­menn í starfs­stöð þess á Lauga­vegi 77 séu nú tæp­lega 80. Fyr­ir­huguð sé mjög stór upp­færsla á QuizUp sem verði hleypt í loftið síðar á þessu ári og sú upp­færsla sé helsta ástæða þeirrar stækk­unar sem fyr­ir­tækið hefur gengið í gegnum und­an­farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár