Píratar safna fyrir kosningabaráttunni með hópfjármögnun

Píratar hafa hrint af stað söfnun fyrir kosn­inga­bar­áttu sína í sam­starfi við hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­una Karolina­fund. Þetta er í fyrsta sinn sem stjórn­mála­flokkur á Íslandi fjár­magnar kosn­inga­bar­áttu sína með þessum hætti. Þegar þetta er skrifað hafa safn­ast 175.500 krónur í kosn­inga­sjóð flokks­ins. Það fé hefur komið fram 36 ein­stak­lingum og einu fyr­ir­tæki eða sam­tökum. Framlag frá ein­stak­lingi eða lög­að­ila má að hámarki vera 400.000kr sam­kvæmt lögum um fjár­mál stjórn­mála­flokka.

Í til­kynn­ingu frá Pírötum vegna þessa segir að um sögu­legan atburð sé að ræða. „Píratar ákváðu að velja þessa leið þar sem að flokk­ur­inn vill sækja styrk sinn til þjóð­ar­innar og vera óháður sér­hags­muna­öflum, nú sem endranær. Við óskum því eftir stuðn­ingi þjóð­ar­innar til þess að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu okkar til þess að við getum komið skila­boðum okkar skýrt á fram­færi og breytt sam­fé­lag­inu okkar til hins betra.“

Samkvæmt nýj­ustu Kosn­inga­spá Kjarnans, sem gerð var 2. sept­em­ber, eru Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar stærstu stjórn­mála­öfl á Íslandi. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur nú meira fylgis en Píratar sem hafa átt meira fylgi að fagna und­an­farna mán­uði og verið vin­sælasta stjórn­mála­aflið á Íslandi í könn­un­um. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist með 25,6 pró­sent og Píratar með 24,9 pró­sent. Mun­ur­inn á fylgi þess­ara fram­boða er innan vik­marka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolina fund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár