Viðreisn með fylgi á pari við rótgróna flokka í tilvistarkreppu

Viðreisn mælist enn með um tíu pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spánni, annan mán­uð­inn í röð. Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar eru enn lang stærstu fram­boðin sem hyggj­ast bjóða fram til Alþingis í haust.

Frá stofnfundi Viðreisnar í Hörpu í lok maí.
Frá stofn­fundi Við­reisnar í Hörpu í lok maí. Mynd: Birgir Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Píratar eru enn stærstu stjórn­mála­öfl á Íslandi sam­kvæmt Kosn­inga­spánni. Ný kosn­inga­spá var gerð föstu­dag­inn 2. sept­em­ber. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur nú meira fylgis en Píratar sem hafa átt meira fylgi að fagna und­an­farna mán­uði og verið vin­sælasta stjórn­mála­aflið á Íslandi í könn­unum. Sjálf­stæð­is­flokkur mælist með 25,6 pró­sent og Píratar með 24,9 pró­sent. Munurinn á fylgi þess­ara fram­boða er innan vik­marka.

Athygli vekur að Viðreisn mælist enn meðal fjög­urra stærstu stjórn­mála­afla sem bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum 29. októ­ber. Síðan í byrjun júlí hefur fram­boðið ítrekað mælst með rétt tæp­lega tíu pró­sent fylgi í kosn­inga­spánni. Á svip­uðum slóðum eru tveir rót­grónir stjórn­mála­flokkar í til­vist­ar­kreppu. Það eru Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin sem virð­ast eiga mjög erfitt með að höfða til meira en tíu pró­sent kjós­enda um þessar mundir.

[adspot]

Vinstri hreyf­ingin grænt fram­boð mælist enn þriðja vin­sælasta fram­boðið til Alþingis. Fylgi við flokk­inn fór á flug í Panama­skjala-vik­unni þegar komið var upp um eign­ar­hald æðstu manna í rík­is­stjórn lands­ins í félögum sem skráð eru í skatta­skjólum. Vinstri græn nutu á tíma­bili stuðn­ings hátt í 18 pró­sent kjós­enda. Í nýj­ustu kosn­inga­spánni mælist fylgi við flokk­inn 14,9 pró­sent.

Önnur fram­boð myndu að öllum lík­indum ekki ná manni á þing, ef gengið yrði til kosn­inga nú. Ætla má að fram­boð þurfi að fá um fimm pró­sent atkvæða á lands­vísu til þess að fá mann kjör­inn á þing. Kosn­inga­spáin mælir ekki stuðn­ing fram­boða í ein­staka kjör­dæmi svo mik­il­vægt er að setja þann fyr­ir­vara að stuðn­ingur við fram­boð gæti mælst mun meiri í einu kjör­dæmi en öðru.

Af öðrum fram­boðum ber helst að nefna Bjarta fram­tíð. Sá flokkur mun að öllum lík­indum þurkast út af þingi enda hefur fylgið ekki farið upp fyrir fimm pró­sent síðan um miðjan apríl, í kjöl­far upp­ljóstrana Panama­skjal­anna, þegar það mæld­ist 5,2 pró­sent í kosn­inga­spánni. Nú mælist fylgið 3,7 pró­sent í kosn­inga­spánni, örlítið meira en sam­an­lagður stuðn­ingur við öll önnur fram­boð sem mæl­ast í könn­unum.

Viðreisn og rótgrónu flokkarnir

Áhuga­vert er að rýna í fylg­is­þróun Við­reisnar í kosn­inga­spánni í þessa fimm mán­uði sem fram­boðið hefur verið mælt. Kosn­inga­spáin skráði Viðreisn í fyrsta sinn 1. apríl, rétt áður en Panama­skjölin voru gerð opin­ber og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra og tók sér frí.

Viðreisn mæld­ist þá með 2,1 pró­sent atkvæða. Þetta var um tveimur mán­uðum áður en farið var að kynna áherslur og fram­bjóð­endur þessa fram­boðs. Þá hafði það staðið til um nokk­urra miss­era skeið að stofna nýtt frjáls­lynt stjórn­mála­afl sem myndi bjóða fram í Alþing­is­kosn­ingum 2017. Um var að ræða óánægðan hóp Sjálf­stæð­is­manna og ann­arra sem ekki höfðu fengið harðan póli­tískan stimpil sem vildi frjáls­lynt stjórn­mála­afl óháð hags­munum „flokks­eig­enda“, inn­vígðra flokks­leið­toga og þar fram­eftir göt­unum.

Fylgi Við­reisnar mæld­ist á bil­inu tvö til fjögur pró­sent allan apríl og maí eða þar til 4. júní þegar kosn­inga­spáin mældi stuðn­ing­inn við Viðreisn vera 5,8 pró­sent. Þá hafði verið hald­inn stofn­fundur og Benedikt Jóhann­es­son kjör­inn for­maður.

Það vekur athygli að Viðreisn virð­ist ekki hafa verið að taka mikið fylgi af Sjálf­stæð­is­flokknum á und­an­förnum mán­uðum. Þvert á móti hefur fylgi hans auk­ist lít­il­lega frá því að stofn­fundur Við­reisnar var hald­inn og mælist nú 25,6 pró­sent. Það er þó í sögu­lega sam­hengi mjög lítið fylgi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann fékk 26,7 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ingum sem var næst versta útreið flokks­ins í slíkum í sögu hans. Einungis í hrun­kosn­ing­unum 2009 hafði hann fengið færri atkvæði. Samt er fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hæstu hæðum miðað við kann­anir um þessar mundir í sam­an­burði við það hvernig það hefur verið á þessu kjör­tíma­bili. Þar hefur það á stundum farið undir 20 pró­sent.

Viðreisn hefur nú haldið um það bil tíu pró­sent fylgi und­an­farna tvo mán­uði. Það er á pari við það sem Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sam­fylk­ingin hafa mælst með á sama tíma­bili. Þar eru á ferð­inni tveir rót­grónir stjórn­mála­flokkar í íslenskri stjórn­mál­sögu, tveir fram­verðir fjór­flokks­ins svo­kall­aða sem hafa báðir átt aðild að rík­is­stjórnum á síð­ustu árum.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins var orðið sögu­lega lítið strax á síð­asta ára­tug en fylg­is­sveifla flokks­ins í aðdrag­anda síð­ustu Alþing­is­kosn­inga undir for­ystu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar fleytti flokknum í for­ystu­sæti í rík­is­stjórn eftir kosn­ing­arnar 2013. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hlaut 24,4 pró­sent greiddra atkvæða. Þegar skammt var liðið af kjör­tíma­bil­inu mæld­ist fylgið aftur minna en 20 pró­sent. Það var svo orðið rétt rúm­lega 10 pró­sent um mitt ár 2014.

Fylg­issaga Sam­fylk­ing­ar­innar hefur öðru­vísi upp­haf, öðru­vísi meg­in­mál en sama endi í um tíu pró­sent fylgi um mán­að­ar­mótin ágúst-sept­em­ber 2016. Eftir kosn­ing­arnar 2009 sem haldnar voru í kjöl­far efna­hags­hruns­ins í októ­ber 2008, mynd­aði flokk­ur­inn rík­is­stjórn með Vinstri grænum. Eftir að hafa hlotið 29,8 pró­sent greiddra atkvæða í kosn­ing­unum hrundi fylgið af flokknum eftir kosn­ing­arnar og hefur haldið áfram að minnka. Í kosn­ing­unum 2013 hlaut Sam­fylk­ingin aðeins 12,9 pró­sent atkvæða. Þá hafði flokk­ur­inn aldrei fengið minna en 26,8 pró­sent greiddra atkvæða í kosn­ingum síðan flokk­ur­inn var stofn­aður sem kosn­inga­banda­lag árið 1999.

Um nýjustu kosningaspána

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 2. sept­em­ber og er byggð á fjórum nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boð­anna sem hyggj­ast bjóða fram í kosn­ing­unum 29. októ­ber. Áður en könnun er bætt við í kosn­inga­spána hlýtur hún vægi gagn­vart öðrum fyr­ir­liggj­andi könn­unum sem byggir meðal ann­ars á lengd könn­un­ar­tíma­bils­ins og fjölda svar­enda. Kann­an­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni 2. sept­em­ber eru eft­ir­far­andi:

  • Þjóð­ar­púls Gallup 26. júlí til 31. ágúst (vægi: 41,4%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 22. ágúst til 29. ágúst (vægi: 28,2%)
  • Þjóð­ar­púls Gallup 30. júní til 29. júlí (vægi: 20,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 15. júlí til 22. júlí (vægi: 10,4%)

Kosn­­­­­­inga­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­lýs­ing­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­inga­­­­­­spá Bald­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­ar­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­kosn­­­­­­ing­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­inga­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­ur­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­leiki könn­un­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Skýringkosningaspá

Sjö flokkar gætu náð inn á þing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi,...
Skýringkosningaspá

Píratar sökkva en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer á flug

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar með stuðn­ing 25,3 pró­sent kjós­enda. Píratar hafa tapað nokkru fylgi und­an­farið og mæl­ast nú með aðeins 21,9 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni sem gerð var 28. sept­em­ber. Til sam­an­burðar má geta þess að fyrir um hálfum mán­uði mæld­ust Píratar með 25,8 pró­sent. Stuðn­ingur við fram­boð Pírata nú er jafn­framt minni en...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár