Skattayfirvöld geta elt skattsvikara til útlanda

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Mynd: RÚV/Skjáskot

Það að aðilii sé skráður úr landi eftir ætluð skattaund­an­skot breytir engu um heim­ildir skatta­yf­ir­valda til að rann­saka hann. Þetta segir Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri. Í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Svan­dísar Svav­ars­dóttur, þing­manns Vinstri grænna, um árangur af kaupum á gögnum um fjár­muni Íslend­inga í erlendum skatta­skjólum á Alþingi í síð­ustu viku kom fram að 57 ein­stak­lingar sem séu í þeim gögnum verði ekki rann­sak­aðir vegna þess að þeir hafa annað hvort flutt úr landi eða eru látnir.

Bryndís segir að hún ætli að þarna sé átt við aðila sem séu ekki með skatta­lega heim­ils­festi á Íslandi. Það megi ekki skilja svar Bjarna sem svo að í þessum til­vikum sé grunur uppi um und­an­skot en það að aðilar séu fluttir úr landi standi í vegi fyrir að skatta­yf­ir­völd rann­saki mál þeirra. Þá sé ástæða til að nefna líka að þó að aðilar skrái sig úr landi þá er sú skrán­ing sem slík ekki ein og sér nægj­an­leg til að skatta­leg heim­il­is­festi falli niður.

Hún segir að skatta­yf­ir­völd geti leitt í ljós að aðilar séu í reynd búsettir hér á landi þrátt fyrir form­lega skrán­ingu um annað. Heimild sé fyrir því í lögum, t.d. vegna hinnar svoköll­uðu þriggja ára reglu. „ Er það þá rann­sakað sér­stak­lega og þónokkur dæmi eru um það í fram­kvæmd. Þá skal þess líka getið að þessi atriði koma til skoð­unar þegar aðili er skráður úr landi á sama tíma­bili og ætluð und­an­skot varða. Það að aðili sé skráður úr landi ein­hvern tíma síðar eða áður breytir engu um heim­ildir skatt­yf­ir­valda til rann­sóknar.“

Fjöl­margir þeirra Íslend­inga sem opin­beraðir voru í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu eiga lög­heim­ili erlend­is. Þeir eiga það þó allir sam­eig­in­legt að hafa efn­ast mjög á við­skiptum á Íslandi og flutt pen­inga úr íslensku efna­hags­kerfi yfir í erlend eign­ar­halds­fé­lög.

Keypt í fyrrasumar

Gögnin sem Svandís spurði um voru boðin til sölu í fyrra og loks keypt í fyrra­sum­ar. Gögnin komu frá lög­manns­stof­unni Mossack Fon­seca & Co í Panama og eru því, að minnsta kosti að hluta, sömu gögn og fjöl­margir fjöl­miðlar víða um heim birtu fréttir úr í apríl síð­ast­liðn­um. Þegar íslenska ríkið keypti gögnin kom fram að þar væru upp­lýs­ingar um 400 Íslend­inga sem tengd­ust 585 félög­um. Í Panama­skjöl­unum sem lekið var til alþjóð­legu blaðmanna­sam­tak­anna ICIJ voru hins vegar upp­lýs­ingar um tæp­lega 600 Íslend­inga og um 800 félög í þeirra eigu. Því voru þau gögn ítar­legri en gögnin sem íslensk yfir­völd keyptu í fyrra á 38,2 millj­ónir króna.

Á meðal þeirra Íslend­inga sem koma fram í gögn­un­um, og eru með tengsl við aflands­fé­lög, eru Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra og nokkrir stjórn­mála­menn af sveit­ar­stjórn­ar­stíg­inu. Þar var einnig að finna stjórn­endur úr líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu og fjöl­marga ein­stak­linga sem hafa verið áber­andi í íslensku við­skipta­lífi á und­an­förnum árum. Þar á meðal voru Jón Ásgeir Jóhann­es­son, Ingi­björg Pálma­dótt­ir, Lýður og Ágúst Guð­munds­syn­ir, Finnur Ing­ólfs­son, Sig­urður Bolla­son, Hannes Smára­son, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son ofl.

Hluti þessa hóps er skráður með lög­heim­ili erlend­is.

30 mál í rann­sókn

Þegar gögnin sem ­rík­is­sjóð­ur­ keypti voru skoðuð kom í ljós að á fjórða tug þeirra ein­stak­linga sem fjallað er um í þeim hef­ur áður sætt rann­sókn hjá skatt­rann­sókn­ar­stjóra (SRS) vegna ætl­aðra skatta­laga­brota. Eftir grein­ing­ar­vinnu SRS var ákveðið að 30 mál myndu sæta áfram­hald­andi með­ferð þar sem fyrir þá rök­studdur grunur um und­an­skot tekna. Rann­sókn á þeim stendur enn yfir. Í svari Bjarna segir enn frem­ur: „At­hug­un RSK (Rík­is­skatt­stjóri) hefur leitt í ljós að skatt­skil 178 ein­stak­linga sem koma fram í gögn­unum hafa á þessu stigi gefið til­efni til þess að stofnuð hafa verið mál á þessa ein­stak­linga hjá emb­ætt­inu. Þá liggur fyrir að 57 ein­stak­lingar sæta ekki frek­ari skoðun þar sem þeir eru ýmist látnir eða fluttir úr land­i. Enn frem­ur eru 19 lög­að­ilar í gögn­unum sem þarf að skoða betur auk 83 ein­stak­linga sem enn þá eru til athug­un­ar. Óljóst er á þess­ari stundu hversu mörgum málum kann að verða vísað aftur til SRS að lok­inni athug­un RSK.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár