Gögnin sem skattrannsóknarstjóri keypti koma frá lögmannsstofu í Panama

Gögn um 400 til 500 Íslend­inga sem eiga eignir í skatta­skjólum, og skatt­rann­sókn­ar­stjóri keypti nýverið, komu frá starfs­manni lög­manns­stof­unnar Mossack Fonseca & Co í Panama. Íslensku bank­arnir leit­uðu oft til lög­manns­stof­unnar á árunum fyrir hrun í þeim til­gangi að stofna aflands­fé­lög. Þau félög voru síðar seld til íslenskra við­skipta­vina bank­anna. Þetta kemur fram í DV í dag.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Mossack Fonseca & Co, sem rekur 44 skrif­stofur víða um heim, þar á meðal í Lúx­em­borg, og höf­uð­stöðvar í Panama, er til umfjöll­unar í íslenskum fjöl­miðlum. Árið 2010 fjall­aði DV um hafa í tengslum við þriggja millj­arða króna lán­veit­ingu fjár­fest­inga­fé­lags­ins Fons, þá í eigu athafna­mann­anna Pálma Har­alds­sonar og Jóhann­esar Krist­ins­sonar, til félags­ins Pace Associates í apríl 2007. Pace var skráð til heim­ilis í Panama.

RÚV sagði fréttir af því árið 2010 að pen­ing­arnir sem lán­aðir voru til Pace hafi á end­anum runnið í vasa Pálma, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Hannesar Smára­sonar. Jón Ásgeir höfð­aði meið­yrða­mál gegn frétta­mann­inum sem sagði frétt­ina og vann það á end­anum fyrir Hæsta­rétti. Frétta­mað­ur­inn, Svavar Hall­dórs­son, sagði í Facebook-stöðu­upp­færslu í kjöl­far dóms­ins: "Fréttin er sönn, til eru gögn fyrir öllum efn­is­at­riðum umræddrar við­skiptafléttu og málið er til rann­sóknar á fleiri en einum stað í kerf­inu (eins og stað­fest er í yfir­lýs­ingu Sérstaks sak­sókn­ara). Sá hluti frétt­ar­innar sem fjall­aði um hvernig yfir­völd töldu raun­veru­lega í pott­inn búið, byggð­ist hins vegar á trún­að­ar­upp­lýs­ingum frá heim­ild­ar­mönnum sem ekki geta komið fram. Þeirra trún­aði mun ég ekki bregð­ast! Jóni Ásgeiri tókst engan vegin að sýna fram á að neitt rangt við frétt­ina – enda er þetta allt rétt."

Gögnin kostuðu 30 milljónir


Gögnin sem keypt voru, og eiga að sýna skattaund­an­skot Íslend­inga, voru afhent síð­ast­lið­inn föstu­dag. Kaupverð var um 30 millj­ónir króna en í fyrstu vildi selj­and­inn fá 150 millj­ónir króna.


„Næsta skref er að átta sig betur á gögn­unum og fara yfir þau. Gögnin eru í sam­ræmi við það sýn­is­horn sem við höfðum áður séð. En það þarf að greina þau og setja upp áætlun um hvernig unnið verði úr þessu svo far­sæl­ast verði. Þetta er mikið magn,“ sagði Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri í sam­tali við Kjarnann fyrr í vik­unni.


Rík­is­stjórnin sam­þykkti í apríl síð­ast­liðnum auka­fjár­veit­ingu til emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra upp á 37 millj­ónir króna til þess að kaupa gögnin um fjár­hags­legar eignir íslenskra aðila í þekktum skatta­skjólum. Íslensk stjórn­völd hafa aldrei fyrr keypt gögn sem þessi en bæði banda­rísk og þýsk stjórn­völd hafa farið þessa leið með nokkrum ávinn­ingi.


Skatt­rann­sókn­ar­stjóri fékk sýn­is­horn af gögn­unum send í fyrra, og lét fjár­mála­ráðu­neytið vita af mál­inu. Sýn­is­hornin 50 sem emb­ættið fékk bentu sterk­lega til þess að skattaund­an­skot hafi átt sér stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár