Harpa heldur áfram að tapa

Frá því að Harpa hóf starf­semi hefur rekstr­ar­fé­lag hennar tapað 2,5 millj­örðum króna. Til við­bótar hafa ríki og borg greitt fimm millj­arða króna í fjár­magns­kostnað og 500 millj­ónir í rekstr­ar­styrki.

Harpa hóf starfsemi árið 2011.
Harpa hóf starf­semi árið 2011. Mynd: Kjarninn.

Harpa tón­listar- og ráð­stefnu­hús ohf., sem er rekstr­ar­fé­lag Hörpu, hefur sam­tals tapað 2.564 millj­ónum króna frá byrjun árs 2011 og fram að síð­ustu ára­mótum. Tapið í fyrra nam 443 millj­ónum króna. Þá er búið að taka til­lit til sér­staks fram­lags sem ríki og Reykja­vík­ur­borg, eig­endur Hörpu greiða ann­ars vegar vegna fjár­mögn­unar á fast­eign­inni sjálfri og hins vegar vegna fram­lags til rekstrar Hörpu. Frá árinu 2011 hefur fram­lag vegna fjár­mögn­unar kostn­aðar við bygg­ingu Hörpu numið 4.926 millj­ónum króna. Þær greiðslur munu standa yfir til árs­ins 2046 og aukast í krónum talið ár frá ári.

Til við­bótar ákváðu eig­endur Hörpu að greiða rekstr­ar­fram­lag vegna hennar frá byrjun árs 2013 og út þetta ár, 2016. Samtals hefur fram­lag eig­end­anna til rekstrar Hörpu numið 510 millj­ónum króna á þeim þremur árum tíma­bils­ins sem liðin eru.

Sam­an­lagt nemur því tap Hörpu, fram­lög ríkis og borgar vegna skulda hennar og rekstr­ar­fram­lag ríkis og borgar því sléttum átta millj­örðum króna frá byrjun árs 2011.

Tóku yfir Hörpu 2009

Íslenska ríkið og Reykja­vík­ur­borg sam­þykktu að taka yfir og klára bygg­ingu Hörpu snemma árs 2009. Þá höfðu fram­kvæmdir við bygg­ingu húss­ins, sem Eign­ar­halds­fé­lagið Portus stóð fyrir, stöðvast í kjöl­far banka­hruns­ins. Ástæðan var sú Portus og dótt­ur­fé­lög þess, sem voru í eigu Lands­banka Íslands og Nýsis, fóru í þrot.

Eftir yfir­töku ríkis og borgar á verk­efn­inu, sem var gerð þegar Katrín Jak­obs­dóttir var mennta­mála­ráð­herra og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir borg­ar­stjóri í Reykja­vík, var tekið sam­banka­lán hjá íslensku bönk­unum til að fjár­magna yfir­tök­una. Í skrif­legu svari Katrínar Jak­obs­dóttur við fyr­ir­spurn þing­manns­ins Marðar Árna­sonar um Hörpu, sem birt var í mars 2011, kom mjög skýrt fram að ekki ætti að setja meira fé en þar var umsamið í Hörpu.

Þar sagði orð­rétt að „for­sendur fyrir yfir­töku verk­efn­is­ins voru þær að ekki þyrftu að koma til önnur fram­lög frá ríki og borg en gert var ráð fyrir í samn­ingi Aust­ur­hafnar-TR og Portusar frá 9. mars 2006".

Íslenska ríkið á 54 pró­sent í Hörpu en Reykja­vík­ur­borg 46 pró­sent hlut.

Umfangsmikil skuldabréfaútgáfa

Í lok árs 2011 leit­uðu for­svars­menn Hörpu-sam­stæð­unnar til eig­enda sinna eftir brú­ar­láni, þar sem upp­haf­legt sam­banka­lán dugði ekki fyrir stofn­kostn­aði. Lánið átti að end­ur­greið­ast þegar Harpa gæfi út skulda­bréfa­flokk, og í síð­asta lagi í des­em­ber 2012. Lands­bank­inn, sem var langstærsti lán­veit­and­inn í sam­banka­lán­inu, fékk umsjón með skulda­bréfa­út­boð­inu og sölu­tryggði það.

Skulda­bréfa­út­gáfan var upp á 19,5 millj­arða króna og ber 3,55 pró­sent verð­tryggða vexti. Samkvæmt árs­reikn­ingi Hörpu voru skuldir vegna útgáf­unnar 19,7 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Skulda­bréfin eru tryggð með veði í fram­lagi ríki og borgar, fyrsta veð­rétti í Hörpu auk hand­veð­réttar í bankainn­stæðum félags­ins.

Rekstrartekjur meira en tvöfaldast

Rekstur Hörpu hefur batnað mikið síð­ustu ár ef horft er til aukn­ingar á rekstr­ar­tekjum. Árið 2011 voru þær 482 millj­ónir króna en í fyrra voru rekstr­ar­tekj­urnar 1.066 millj­ónir króna. Þær hafa því meira en tvö­fald­ast á fimm árum og hækkað ár frá ári.

Rekstr­ar­gjöld hafa að sama skapi vaxið. Árið 2012 voru þau um 1.229 millj­ónir króna. Í fyrra voru þau 1.349 millj­ónir króna.

Skuldir rekstr­ar­fé­lags Hörpu voru 20,3 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þær eru aðal­lega ofan­greindur skulda­bréfa­flokkur sem byrjað var að greiða af í maí 2013. Síðasti gjald­dagi hans er 15. febr­úar 2046.

Eigendur Hörpu greiða afborg­anir vegna skulda­bréfa­flokks­ins. Áætluð heild­ar­greiðsla láns­ins með vöxtum og verð­bótum er 1.067 millj­ónir króna á árinu 2016. Til við­bótar greiðir ríki og borg fram­lag til rekstrar Hörpu á árunum 2013 til 2016. Árið 2014 var það fram­lag 168 millj­ónir króna en í fyrra var það 170 millj­ónir króna. Árið 2013 var það 172 millj­ónir króna.

Eiga inni fasteignagjöld

Einn helsti óvissu­þátt­ur­inn í rekstri Hörpu und­an­farin ár hefur snú­ist um greiðslu fast­eigna­gjalda. Í maí 2011 var Harpan tekin í notk­un. Í sama mán­uði til­kynnti Þjóð­skrá Íslands rekstr­ar­fé­lagi Hörpu um að fast­eigna­mat tón­list­ar- og ráð­stefnu­húss­ins væri reiknað 17 millj­arðar króna, og var þar miðað við bygg­ing­ar­kostnað þess. Það mat gerði það að verkum að fast­eigna­gjöld sem Harpa þurfti að greiða Reykja­vík­ur­borg voru 355 millj­ónir króna vegna þess árs. Árið 2012 úrskurð­aði yfir­fast­eigna­mats­nefnd að rekstr­ar­fé­lag Hörpu ætti að greiða þá upp­hæð í slík gjöld vegna þess árs. Síðan hefur félag­inu verið gert að greiða sam­bæri­lega upp­hæð á ári í slík gjöld.

Harpa vildi ekki una nið­ur­stöð­unni, og skaut henni til dóm­stóla, enda ljóst að þorri rekstr­ar­tekna Hörpu fyrstu árin myndi renna ein­vörð­ungu til greiðslu fast­eigna­gjalda. Það sem gerði stöð­una enn sér­kenni­legri er að fast­eigna­gjöldin greið­ast til Reykja­vík­ur­borgar, ann­ars eig­anda Hörpu.

Í maí í fyrra hafn­aði hér­aðs­dómur Reykja­víkur kröfu Hörpu um að úrskurður yfir­fast­eigna­mats­nefndar yrði ógildur. Halldór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu, sagði við Kjarnann við það til­efni að álagn­ingin væri mjög órétt­lát. „Það er alveg jafn ljóst nú og var áður, þótt veltan hjá Hörpu hafi auk­ist mik­ið, að þessi rekstur stendur ekki undir þessum álög­um.“

Í febr­úar 2016 ógilti Hæsti­réttur Íslands síðan matið. Það leiddi til þess að fast­eigna­skattar Hörpu vegna árs­ins 2015 lækk­uðu umtals­vert á milli ára. Þeir voru 366 millj­ónir króna árið 2014 en 135 millj­ónir króna árið 2015. Dómur Hæsta­réttar var auk þess aft­ur­virkur og nær aftur til árs­ins 2011. í árs­reikn­ingi Hörpu segir að of snemmt sé að segja til hversu háar þær fjár­hæðir sem muni skila sér aftur til Hörpu verði en lík­legt sé að heild­ar­á­hrifin verði að minnsta kosti 950 millj­ónir króna án vaxta. „Einungis er búið að færa áhrifin vegna árs­ins 2015 í efna­hags­reikn­ing, en þau nemur 242 millj­ónum króna. Í ljósi þess­arar stöðu er það mat stjórn­enda að sam­stæðan geti staðið við allar sínar skuld­bind­ingar sem falla til næstu 12 mán­uði. Ef mat stjórn­enda gengur ekki eftir ríkir veru­legur vafi um rekstr­ar­hæfi sam­stæð­unnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár