Saka Hafnarfjarðarbæ um ólögmæta ríkisaðstoð

Í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn eru að hefj­ast fram­kvæmdir við að byggja við­legu­kant fyrir upp­töku og sjó­setn­ingu stærri skipa. Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur telur hins vegar fram­kvæmd­irnar vera brot á EES- samn­ing um rík­is­að­stoð.

Hafnarfjarðarhöfn
Hafn­ar­fjarð­ar­höfn Mynd: Kjarninn

Fram­kvæmdir eru að hefj­ast þessa dag­ana í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn en þær snúa að bættri aðstöðu í höfn­inni fyrir upp­töku og sjó­setn­ingu stærri skipa og báta. Til stendur að byggja við­legu­kant fyrir fær­an­lega upp­töku­vagna eða rólu.

Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur hefur hins vegar gagn­rýnt þessa fram­kvæmd harð­lega og segja bæinn standi í fram­kvæmd­inni til að auka sam­keppn­is­stöðu eins fyr­ir­tækis í Hafn­ar­firði. Í bréfi til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar segir stöðin Hafn­ar­fjarð­ar­höfn vera að brjóta á reglum EES-samn­ings­ins en í ákvæðum samn­ing­ins kemur fram að fram­lag rík­is­sjóðs megi ekki raska ótil­hlýði­lega sam­keppni milli hafna.

Segja framkvæmdirnar aðeins nýtanlegar einum aðila

Í svari Hafn­ar­fjarð­ar­hafnar við bréfi Skipa­smíða­stöðvar Njarð­víkur kemur fram að höfnin hafi lengi stefnt að því að bæta þá aðstöðu sem er í höfn­inni til að taka upp og setja niður skip og báta en í dag tak­mark­ist hún við ská­braut fyrir ská­braut­ar­vagna.

Lúðvík Geirsson, hafn­ar­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar­hafnar, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að á und­an­förnum árum hafi krafan um bætta aðstöðu orðið hávær­ari. Samkvæmt bréf­inu eru fær­an­legir upp­töku­vagnar nýjasta tækni sem völ er á og tryggja góða með­ferð skipa og báta. Hafn­ar­fjarð­ar­höfn telur þess vegna að með því að bjóða aðstöðu fyrir fær­an­lega upp­töku­vagna sé höfnin í far­ar­broddi í fram­þróun og muni sam­keppn­is­staða hafn­ar­innar batna til muna.

Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur sendi tvö bréf til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar varð­andi málið í októ­ber, í öðru bréf­inu ítrekar stöðin að lyk­il­at­riði máls­ins sé hvort þær fram­kvæmdir í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn séu öllum nýt­an­legar eða hvort þær séu ein­ungis nýt­an­legar einum aðila. Samkvæmt upp­lýs­ingum Skipa­smíða­stöðvar Njarð­víkur getur aðeins einn aðili notað umræddan við­legu­kant fyrir skipa­lyftu. Sá aðili sé Trefjar ehf. sem er með höf­uð­stöðvar sínar í höfn­inni í Hafn­ar­firði. Trefjar ehf. fjár­festu á síð­asta ári í 75 tonna upp­töku­vagni.

Skipa­smiða­stöð Njarð­víkur bað skipa­tækni­fræð­ing að greina hvort mis­mun­andi upp­töku­vagnar þurfi ólíkar hafn­ar­að­stöður. Í nið­ur­stöðu skipa­tækni­fræð­ings­ins kemur fram að það sé grund­vall­ar­munur á þeim hafn­ar­mann­virkjum sem þessar ólíku gerðir vagna nota, ekki sé hægt að nota ská­brauta­vagna við hafn­ar­að­stöðu sem ætluð er fyrir upp­tökur­ólu og öfugt. Upp­töku­vagn Skipa­smíða­stöðvar Njarð­víkur sem og aðrir upp­töku­vagnar í eigu eink­að­ila í land­inu eru allir ská­braut­ar­vagnar. Í svar­inu kemur fram að upp­tökur­óla Trefja í Hafn­ar­firði er eini vagn sinnar teg­undar á land­inu en í dag er hins vegar engin höfn á Íslandi með aðstöðu fyrir slíka skipa­lyftu.

Í svar­bréfi Hafn­ar­fjarð­ar­hafnar til Skipa­smíða­stöðv­ar­innar segir að það sé vilji hafn­ar­innar að skapa aðstöðu fyrir þá sem vilja standa straum af kostn­aði við kaup og rekstur skipa­lyfta eða upp­töku­vagna. Trefjar ehf. er sam­kvæmt hafn­ar­stjóra Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar einn fjöl­margra aðila sem talið hafa þörf á bættri aðstöðu í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn. Samkvæmt bréfi Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar lýsti Trefja ehf. sig reiðu­búið til að kaupa og starf­rækja upp­töku­vagn fyrir allt að 75 tonna báta við höfn­ina. Það var á þessum grund­velli sem Hafn­ar­fjarð­ar­höfn ákvað að ráð­ast í þær fram­kvæmdir sem um ræðir.

Í svari Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar segir jafn­framt að öllum sé heim­ilt að nýta aðstöð­una og að fyr­ir­tækið Trefjar hafi ekki einka­rétt á hafn­ar­að­stöð­unni. Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur segir það hins vegar ekki fara á milli mála að fram­kvæmd­irnar séu sér­sniðnar bæði í lögun, í lengd og í breidd fyrir upp­tökur­ólu Trefja ehf. „Enginn annar upp­töku­vagn á land­inu getur haft nokkur not af þessu mann­virki.“ segir í bréf­inu Skipa­smíða­stöðv­ar­innar.

Telja framkvæmdirnar brjóta gegn ákvæðum EES- samnings um ríkissstyrki

Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur telur að með því að kosta umræddar fram­kvæmdir sé Hafn­ar­fjörður að brjóta gegn ákvæðum 61.gr. EES-samn­ings um rík­is­styrki. Í 1.mgr. 61 gr. EES-samn­ings er kveðið á um annað í samn­ingi þessum er hvers kyns aðstoð, sem aðild­ar­ríki EB eða EFTA-ríki veitir eða veitt er af rík­is­fjár­munum og raksar eða er til þess fallin að raska sam­keppni með því að ívilna ákveðnum fyr­ir­tækjum eða fram­leiðslu ákveð­inna vara, ósam­rým­an­leg fram­kvæmd samn­ings þessa að því leyti sem hún hefur áhrif á við­skipti milli samn­ings­að­ila.

Í fyrsta bréfi Skipa­smíða­stöðv­ar­innar til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar segir að Skipa­smíða­stöðin telji að fram­kvæmdin í Hafn­ar­fjarð­ar­höfn­upp­fylli skil­yrði EES um rík­is­að­stoð. Í bréf­inu segir að í fyrsta lagi sé fram­kvæmdin fjár­mögnum af fjár­munum sveit­ar­fé­lags­ins. Annað skil­yrði rík­is­að­stoðar er að ráð­stafnir ívilni ákveðnum fyr­ir­ækjum og fram­leiðslu ákveð­inna vara, þ.e. að ákveðnir aðilar fái ívilnun umfram aðra aðila í sömu stöðu og að ívilnun leiði til þess að aðilar þurfi ekki að greiða kostnað sem þeir undir venju­legum kring­um­stæðum þyrftu að greiða. Í bréf­inu segir að í þessu til­viki sé ljóst að fjár­mögnum Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar á við­legu­kanti nýt­ist ein­ungis Trefjum ehf. og ekki hafi verið samið við félagið um end­ur­gjald eða greiðslu fyrir aðstöð­una.

Þriðja skil­yrðið er að aðstoðin hafi áhrif á sam­keppni með því að styrkja stöðu eins fyr­ir­tækis í sam­an­burði við sam­keppn­is­að­ila fyr­ir­tæk­is­ins. Í þessu til­viki segir Skipa­stöð Njarð­víkur að ljóst sé að þeir fjár­munir sem sveit­ar­fé­lagið notar til gerðar við­legu­kants veiti Trefjum ehf. for­skot í sam­an­burði við aðra aðila á sama mark­aði sem hafa þurft að kosta sam­bæri­legar fram­kvæmdir sjálfir. Fjórða skil­yrðið til að aðstoð telj­ist rík­is­að­stoð er að við­kom­andi gern­ingur hafi áhrif á við­skipti á milli aðila EES-samn­ings­ins. Í bréf­inu segir að þetta skil­yrði sé í raun náskylt skil­yrð­inu um röskun á sam­keppni en dóm­stólar hafa talið að ef skil­yrðið um röskun á sam­keppni er upp­fyllt hafi slík röskun á sam­keppni nær und­an­tek­ing­ar­laust áhrif á við­skipti á milli aðila EES samn­ings.

Í bréf­inu segir að Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur hafi sjálf kostað kaup og gerð slíkra upp­töku­mann­virkja í Njarðvík árið 2006. Stöðin hafi þurft að byggja ská­braut, laga hafn­ar­garða og byggja flota­bryggju fyrir sinn upp­töku­vagn. Þessu hefur félagið þurft að standa kostnað af, sinna við­haldi og sam­kvæmt bréf­inu borið þungan fjár­magns­kostnað af. Í bréf­inu segir jafn­framt að skipa­stöðin ætli því að leita réttar síns: „ Í ljósi alls fram­an­greinds íhugar Skip­smíða­stöð Njarð­víkur nú að leita réttar síns vegna ólög­mætrar rík­is­að­stoðar Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar meðal ann­ars með því að senda erindi til Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA vegna máls­ins. Þá áskilur Skipa­smíða­stöð Njarð­víkur sér rétt til stöðv­unar á fram­kvæmdum á meðan málið er til með­ferðar hjá Eft­ir­lits­stofnun EFA.“

Í svari Hafn­ar­fjarð­ar­kaup­staðar við bréfi Skipa­smíða­stöðv­ar­innar segir að bær­inn sé alger­lega ósam­mála því að fram­kvæmdin brjóti í bága við reglu um rík­is­s­að­stoð í EES-samn­ingum. Í svar­inu segir að aug­ljóst sé að skil­yrðin séu ekki upp­fyllt:. „Í þessu sam­bandi verður að líta til þess að þeir aðilar sem nota aðstöð­una þurfa að greiða gjald fyrir hana sam­kvæmdt gjald­skrá hafn­ar­innar og að gjald­skráin bygg­ist á því að fram­kvæmd­irnar standi undir sér. Útilokað er því að líta svo á að aðstaðan feli í sér styrk eða aðstöð enda eiga hér við sjón­ar­mið um venju­legar mark­aðs­að­stæður. Þá verður að líta til þess að ekki er um að ræða einka­rétt eins aðila til að nota aðstöð­una heldur er öllum heim­ilt að nota hana. Ekkert kemur því í veg fyrir að aðrir aðilar fjár­festi í bún­aði til að nota aðstöð­una eða að Hafn­ar­fjarð­ar­höfn ákveði í fram­tíð­inni að bjóða aðstöð­una út. Er því hvorki um að ræða fram­kvæmd sem er til þess fal­inn að raska sam­keppni né til íviln­unar ákveðnum fyr­ir­tækjum. Þvert á móti er fram­kvæmdin til þess fallin að auka sam­keppni á mark­aði þar sem brýn þörf er fyrir bætta þjón­ustu við skipa- og báta­eig­endur,“ segir í svar­inu.

Gagnrýna að Hafnarfjarðarbær veðji á samkeppni

Skipa­smíða­stöðin segir í öðru bréfi sínu til Hafn­ar­fjarð­ar­bæjar að þessi fram­kvæmt sé ekki ein­ungis tækni­leg hindrun fyrir aðra aðila sem myndu frekar vilja nýta ská­braut­ar­vagna heldur segja þeir algjör­lega ljóst að hafn­ar­mann­virkið sé sér­stak­lega hannað og teiknað fyrir stærð, þyng, lengd og breidd upp­tökur­ólu Trefja. Ef aðrir aðilar ætli að nýta sér mann­virkið seinna, yrðu þeir að kaupa eins upp­tökur­ólu og Trefjar eiga.

Skipa­smíða­stöðin gagn­rýnir einnig að sam­þykkt hafi verið að ganga í fram­kvæmd­irnar án samn­inga og án trygg­inga og veða. Stöðin segir í bréf­inu að var­kár aðili á mark­aði myndi aldrei ganga slíka fram­kvæmdir áður en þeir semja við eina mögu­lega kaup­anda þjón­ust­unni um afnot af mann­virk­inu. Þegar jafn­framt að þegar þegar kemur að slíkri fjár­festn­ingu á hafn­ar­mann­virkjum á frjálsum mark­aði þá væri ákveð­inn fastur kostn­aður ákveð­inn til borga upp fram­kvæmd­ina óháð notkun. Í bréf­inu segir að hið eðli­lega í stöð­inni hefði verið að gera samn­ing við eina við­skipta­vin hafn­ar­innar í upp­tökum og að gjald­skráin hefði áttað vera föst upp­hæð á ári óháð notkun. Í bréf­inu segir að annnars sé Hafn­ar­fjarð­ar­höfn að taka áhættu með fjár­muni bæj­ar­búa í Hafn­ar­firði og veðja á að Trefjar ehf. gangi vel í sam­keppni við aðrar skipa­smíða­stöðvar.

Hafnarstjóri hafnar ásökunum

Samkvæmt Skipa­smíða­stöð­inni hefur ekki enn borist svar við seinna bréfi stöðv­ar­innar þar sem m.a. var óskað var eftir upp­lýs­ingum um heild­ar­kostnað fram­kvæmd­ar­innar. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir Lúðvík hafn­ar­stjóri að efn­is­kostn­aður og vinna verk­taka sé upp á rúmar 33,2 millj­ónir. Aðspurður segir hann við­halds­kostnað til­heyra höfn­inni enda stál­þilið í eigu hafn­ar­innar en hafn­ar­stjóri segir við­halds­kostnað af stál­þili vera hverf­andi.

Í svari við ásök­unum Skipa­smíða­stöðv­ar­innar segir hann að Hafn­ar­fjarð­ar­höfn muni ekki semja um einka­rétt um afnot af aðstöð­unni heldur muni allir hafa aðgang að henni sem vilja veita þar þjón­ustu. Engir samn­ingar hafi því verið gerðir um aðstöð­una eða greiðslur fyrir afnot af henni. Þeir sem nýta aðstöð­una til að taka upp eða sjó­setja skip eða báta muni greiða sér­stakt lyftu­gjald sam­kvæmt gjald­skrá Hafn­ar­fjarð­ar­hafnar. Hann segir að gengið sé út frá því að gjaldið standi undir kostn­aði við upp­bygg­ingu, rekstur og við­hald á eðli­legum afskrift­ar­tíma fyrir stál­þil sem er 30 ár.

„Að því er snertir þá stað­hæf­ingu að aðeins einn aðili geti haft not af aðstöð­unni skal áréttað að öllum er heim­ilt að nota aðstöð­una. Er ekk­ert sem kemur í veg fyrir að aðstaðan sé notuð fyrir mis­mun­andi gerðir upp­töku­vagna frá ólíkum fram­leið­endum. Þegar um nýja tækni er að ræða tekur hins vegar eins og ávallt tíma fyrir mark­aðs­að­ila að bregð­ast við. Við blasir að ástæða þess að í dag er ekki fyrir að fara fleiri slíkum upp­töku­vögnum er að ekki hefur verið til staðar aðstaða fyrir þá,“ segir Lúðvík enn­fremur.

Lúðvík segir það rétt að aðeins einn aðili hafi þegar fjár­fest í upp­töku­bún­aði, Trefjar ehf. en hann segir fyr­ir­tækið hyggj­ast nýta fyr­ir­hug­aðan við­legu­kant í tölu­verðu mæli fyrir sína starf­semi. Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans segir hann að fleiri aðilar hafi lýst yfir áhuga að koma sér upp lyftu­bún­aði, þar á meðal Sigl­inga­klúbb­ur­inn Þytur í Hafn­ar­firði.

Hafn­ar­stjóri segir að með þeirri aðstöðu sem verður útbúin fyrir skipa­lyftu muni sjó­lag á þessu svæði batna, auk þess sem flot­bryggja fyrir drátt­ar­báta verði sett út langsum í skjóli frá nýjum stál­kanti. Það séu því góð sam­legð­ar­á­hrif í þessum fram­kvæmdum til að bæta úr við­legu fyrir drátt­ar­bát­ana og bæta þjón­ustu á hafn­ar­svæð­inu með nútíma upp­töku­að­stöðu, án þess að tapa nokkrum metrum í bryggju­plássi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár