SA segir best að búa í sveitarfélögum þar sem skattheimta er minnst

Í grein­ingu efna­hags­sviðs Samtaka atvinnu­lífs­ins kemur fram að Akranes, Sel­tjarn­ar­nes og Garðabær komi best úr þegar fjár­hags­staða sveit­ar­fé­lag­anna er borin saman. Reykja­vík, Reykja­nes­bær og Hafn­ar­fjörður koma verst út.

Efna­hags­svið Samtaka atvinnu­lífs­ins hefur fram­kvæmd grein­ingu á fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lag­anna. Þar kemur meðal ann­ars fram að þegar rekstur tólf stærstu sveit­ar­fé­laga lands­ins er bor­inn saman kemur í ljós að þau sem koma best út taka hlut­falls­lega minnst til sín í formi skatt­heimtu. Auk þess mælist ánægja íbúa með leik- og grunn­skóla mest í þeim sveit­ar­fé­lögum sem koma best út í rekstr­ar­sam­an­burð­inum.

Í grein­ing­unni segir að Akranes, Sel­tjarn­ar­nes og Garðabær komi best út þegar fjár­hags­staða sveit­ar­fé­lag­anna er borin saman, en Reykja­nes­bær, Reykja­vík og Hafn­ar­fjörður verst. Sel­tjarn­ar­nes, Garðabær og Vest­manna­eyjar inn­heimta hlut­falls­lega lægstu skatt­ana af með­al­tekjum íbúa sinna á sama tíma og Akureyri, Fjarða­byggð og Reykja­vík taka hlut­falls­lega mest til sín.

„Auðvitað er mik­il­vægt að hafa í huga að sveit­ar­fé­lög njóta góðs af því ef með­al­tekjur íbúa eru miklar en að sama skapi má segja að þar sem skatt­heimta er lágt hlut­fall með­al­tekna hafi sveit­ar­stjórnir stað­ist ákveðna freist­ingu. Þær hefðu getað hækkað skatta til jafns við önnur sveit­ar­fé­lög og aukið þannig álögur á íbúa,“ segir SA.

Þá bera sam­tökin saman hvernig skattar og önnur gjöld leggj­ast á sama ein­stak­ling­inn eftir því hvar hann væri búsettur. Miðað við þann mæli­kvarða er sam­kvæmt grein­ing­unni ódýr­ast að búa í Garðabæ en dýr­ast að búa í Árborg. Mis­mun­ur­inn ríf­lega 180 þús­und krónur á ári milli þess­ara tveggja sveit­ar­fé­laga. „Mikil fylgni er á milli fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga og skatt­lagn­ingar. Með öðrum orðum er hag­kvæm­ast að búa í vel reknum sveit­ar­fé­lögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár