Skattbyrði tekjuhæsta prósentsins er hærri en skattbyrði „alls fjöldans“ en ekki mikið hærri

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Loga Ein­ars­sonar um að tekju­hæsta 1 pró­sent þjóð­ar­innar borgi „minna en allur almenn­ingur í land­inu, allur fjöld­inn“ í skatta.

Logi Einarsson formaður Samfylkingarinnar í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar var gestur For­ystu­sæt­is­ins á RÚV í gær­kvöldi og ræddi þar meðal ann­ars um skatta­stefn­una sem flokk­ur­inn hefur lagt fram í kosn­inga­bar­áttu sinni und­an­farnar vikur. Sam­fylk­ingin hefur talað fyrir stór­eigna­skatti á þá sem eiga yfir 200 millj­ónir króna í hreina eign og Logi var spurður um rök­semd­irnar fyrir slíkri skatt­lagn­ingu.

„Okkar rann­sóknir sýna að efsta 1 pró­sent lag sam­fé­lags­ins, rík­asta 1 pró­sent þjóð­ar­innar, hefur verið að borga minna og minna í skatt und­an­farin 20 ár og borgar minna en allur almenn­ingur í land­inu, allur fjöld­inn. Okkur finnst það rétt­læt­is­mál að jafna þetta og að allir leggi af mörkum,“ sagði Logi í við­tal­inu og bætti því við að flokk­ur­inn teldi hærri skatta á miklar eignir geta haft jákvæð hag­ræn áhrif.

En stenst þessi full­yrð­ing for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar skoðun?

Þegar horft er til tekn­anna sem rík­is­sjóður hefur af ein­stak­lingi sem til­heyrir efsta eina pró­sent­inu hvað tekjur varðar er morg­un­ljóst að sá aðili greiðir fleiri krónur í rík­is­sjóð en með­al­mað­ur­inn í íslensku sam­fé­lagi, enda inn­koman marg­föld á við með­al­mann­inn. Ein­stak­lingur sem til­heyrir rík­asta eina pró­sent­inu greiðir því meira til sam­fé­lags­ins í krónum talið en með­al­maður í sam­fé­lag­inu, ein­hver sem til­heyrir „öllum fjöld­anum“ sem Logi vís­aði til.

Það sem Logi var þó án vafa að ræða um er hlut­falls­leg skatt­byrði rík­asta 1 pró­sents­ins í íslensku sam­fé­lagi, en eins og hefur verið bent á ítrekað á und­an­förnum árum hafa breyt­ingar á skatt­kerf­inu, þá helst afnám auð­legð­ar­skatts­ins, valdið því að skatt­byrði tekju­hæsta 1 pró­sents­ins hefur farið lækk­andi.

Breyt­ing­arnar sem gerðar hafa verið á því hvernig þeir allra rík­ustu í íslensku sam­fé­lagi eru skatt­lagðir hefur valdið því að skatt­byrði þeirra allra tekju­hæstu lækkar eftir því sem tekjur þeirra aukast – og í nýlegri skýrslu frá ASÍ er því haldið til haga að þetta sé and­stætt mark­miði fram­sæk­inna skatt­kerfa, sem byggja á því að skatt­byrðin hækki eftir því sem tekjur aukast.

Í skatt­kerf­inu eins og það er upp­byggt í dag fer skatt­byrðin hækk­andi með auknum tekjum allt þar til ákveðnu marki er náð og komið er alveg í efstu tekju­hópana. Þá sveigir kúrfa skatt­byrð­innar af leið og í stað þess að fara hækk­andi með auknum tekjum greiða þeir sem eru á toppi tekju­stig­ans hlut­falls­lega lægri skatta en þeir sem koma næstir á eftir þeim – og hlut­falls­lega raunar ekk­ert svo mikið meira en Íslend­ingar allir að með­al­tali.

Þeir allra tekjuhæstu fá hærra hlutfall fjármagnstekna

Í umfjöllun Páls Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ings um álagn­ingu Íslend­inga á árinu 2019, sem birt­ist í Tíund frétta­blaði Skatts­ins fyrr á þessu ári, segir að tekju­hæsta eitt pró­sent lands­manna hafi greitt 37 millj­arða króna í skatta og að með­al­skatt­byrði hóps­ins hafi verið 26 pró­sent.

Skatt­byrði þess­ara rúm­lega þrjú þús­und ein­stak­linga var því aðeins meiri en með­al­skatt­byrði allra Íslend­inga á árinu 2019 – sem var 23 pró­sent að teknu til­liti til bóta – og sömu­leiðis ögn meiri en skatt­byrði tekju­hærri helm­ings lands­manna, sem var 25,5 pró­sent.

[adspot]

Hún var þó minni en t.d. næsta pró­sents fyrir neðan það í tekju­stig­anum, sem greiddi 27,2 pró­sent tekna sinna í skatta og langt undir með­al­skatt­byrði tíu pró­sent rík­ustu Íslend­ing­anna, sem greiddu 35,2 pró­sent tekna sinna í skatta. Alls greiddu tekju­hæstu fimm pró­sentin síðan 27,9 pró­sent í skatt af tekjum sínum, eða hlut­falls­lega nokkuð meira en tekju­hæsta pró­sentið.

Í umfjöllun Páls í Tíund segir að ástæða þess að skatt­byrði tekju­hæsta eina pró­sents lands­manna hafi verið lægri en skatt­byrði tekju­hæstu fimm pró­sent­anna sé sú að fjár­magnstekjur vegi þyngra í tekjum þeirra sem eru tekju­hærri á hverjum tíma.

Skattur af fjár­magnstekjum er 22 pró­sent en stað­greiðsla tekju­skatts og útsvars af launum, líf­eyri og trygg­inga­bótum yfir 11.125 þús­und krónum á ári er 46,24 pró­sent.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Ríkasta 1 pró­sent lands­manna greiðir meira af tekjum sínum í skatta en með­al­mað­ur­inn í íslensku sam­fé­lagi – „almenn­ingur“ og „allur fjöld­inn“ – sem Logi hlýtur að hafa verið að vísa til með orðum sínum. Það er hins vegar rétt hjá Loga að á und­an­förnum ára­tug hefur skatt­byrði þeirra sem hæstar tekjur hafa farið lækk­andi.

Það eina pró­sent lands­manna sem mestar tekjur hafði árið 2019 greiddi svo ein­ungis um hálfu pró­sentu­stigi meira af tekjum sínum en þeir sem voru í tekju­hærri 50 pró­sent­unum gerðu að með­al­tali og um þremur pró­sentu­stigum meira en íslenskur almenn­ingur að með­al­tali gerði heilt yfir.

Að þessu sögðu er það mat Stað­reynda­vakt­ar­innar að Logi Ein­ars­son hafi sett fram hálf­sann­leik er hann full­yrti í For­ystu­sæt­inu að rík­asta eina pró­sentið væri að greiða „minna en allur almenn­ingur í land­inu, allur fjöld­inn,“ í skatta af tekjum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár