Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði og útsvarið hækkar á Seltjarnarnesi

Einn bæj­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Sel­tjarn­ar­nesi lagð­ist á sveif með minni­hluta Sam­fylk­ingar og Við­reisnar/Neslista á bæj­ar­stjórn­ar­fundi í morgun. Útvarspró­sentan á Sel­tjarn­ar­nesi fer úr 13,7 pró­sentum upp í 14,09 pró­sent.

Bæjarstjórnin á Seltjarnarnesi samþykkti skattahækkun á fundi sínum í morgun.
Bæj­ar­stjórnin á Sel­tjarn­ar­nesi sam­þykkti skatta­hækkun á fundi sínum í morgun. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­ness sam­þykkti á fundi sínum í dag að hækka útvars­greiðslur bæj­ar­búa úr 13,7 pró­sentum upp í 14,09 pró­sent. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með fjóra bæj­ar­full­trúa af sjö í bænum en einn þeirra, Bjarni Torfi Álf­þórs­son, sner­ist á sveif með minni­hluta Sam­fylk­ingar og Við­reisnar/Neslista varð­andi hækkun útsvars­ins.

Hann sagð­ist telja rétt að hækka útsvarið, en reyndar ekki jafn mikið og minni­hlut­inn í bæj­ar­stjórn­inni hafði áður lagt til. Breyt­ing­ar­til­laga hans við til­lögu minni­hlut­ans, um hækkun upp í 14,09 pró­sent, var sam­þykkt með fjórum atkvæðum gegn þremur og ætti breyt­ingin að sögn Bjarna Torfa að skila um 80-90 millj­ónum króna í bæj­ar­sjóð á árs­grund­velli.

Sagðist verða að fylgja sannfæringu sinni

„Sann­fær­ing mín stendur þarna, ég veit að þetta er ekki í anda þess sem flokk­ur­inn hefur viljað standa fyrir, en við gerðum þetta líka 2010, á fyrsta ári þess kjör­tíma­bils strax eftir hrun þvert á volg lof­orð úr kosn­inga­bar­átt­unni þá um vorið,“ sagði Bjarni Torfi á bæj­ar­stjórn­ar­fund­inum, en hann hefur verið í bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­ness um langt skeið.

„Ég held að við verðum að vera raunsæ og mér finnst þetta pínu sárt að fara svona á bak við félaga mína með þetta, en þetta er sann­fær­ing mín og ég verð að fylgja henni,“ sagði Bjarni Torfi einnig á fund­inum er hann gerði grein fyrir skoðun sinni. Upptöku af fund­inum má nálg­ast hér.

Bjarni Torfi sagður með hníf í baki samherja sinna

Í kjöl­far sam­þykkt­ar­innar las Magnús Örn Guð­munds­son, sem er for­maður bæj­ar­ráðs, upp bókun þar sem hann sagði skatta­hækk­un­ina algjöra vit­leysu.

Einnig sagði hann Bjarna Torfa sam­flokks­mann sinn hafa svikið kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins á Sel­tjarn­ar­nesi og stungið sam­herja sína í bæj­arpóli­tík­inni í bakið, með því að leggja til hækkun útsvars­ins.

[adspot]

„Hækkun skatta á íbúa á þessum tíma­punkti er svo mikil vit­leysa að engu tali tekur. Engu sveit­ar­fé­lagi dettur slíkt í hug í ljósi ástands­ins. Hjá minni­hlut­anum kveður við sama tón og venju­lega, hækkun skatta á að leysa allan vanda. Þrátt fyrir það er útsvar á hvern Seltirn­ing eitt það hæsta á land­inu. Jafn­framt blasir við tæki­færi til hag­ræð­ingar áður en hækka þurfi skatta. Nýtt er þó að sjá full­trúa meiri­hlut­ans Bjarna Torfa Álf­þórs­son svíkja kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins með þessum hætti og um leið stinga sam­herja sína í bakið,“ sagði Magnús Örn í bókun sinni.

Útsvar­pró­sentan á Sel­tjarn­ar­nesi verður þrátt fyrir þessa hækkun enn ein sú lægsta á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ein­ungis lægri í Garðabæ, þar sem hún er 13,7 pró­sent. Reykja­vík­ur­borg leggur á hámarks­út­var sem 14,52 pró­sent og útsvarspró­sentan í Kópavogi, Hafn­ar­firði og Mos­fellsbæ er 14,48 pró­sent, eða nær alveg við hámarkið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

skattamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár