Segir ekki áhuga á að setja eina einustu krónu í borgarlínu í Garðabæ

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra seg­ist ekki finna fyrir miklum áhuga á því í Garðabæ að „setja eina ein­ustu krónu“ úr bæj­ar­sjóði í að láta borg­ar­línu verða að veru­leika.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra seg­ist ekki finna fyrir miklum áhuga á því í Garðabæ að „setja eina ein­ustu krónu“ úr bæj­ar­sjóði í að láta borg­ar­línu verða að veru­leika.

[links]Þetta kom fram í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag, þegar vara­þing­mað­ur­inn Sara Elísa Þórð­ar­dóttir Pírati spurði hann út í fyr­ir­heit rík­is­stjórn­ar­innar í stjórn­ar­sátt­mál­anum þar sem segir að stutt verði við borg­ar­línu í sam­starfi við Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Sara spurði Bjarna út í málið í ljósi ummæla hans í kosn­inga­sjón­varpi RÚV þar sem hann sagði borg­ar­lín­una „til­tölu­lega óskil­greint fyr­ir­bæri“ og vildi vita hvað hann hefði talið að fælist í því að styðja við borg­ar­línu þegar stjórn­ar­sátt­mál­inn var sam­inn af honum sjálfum og öðrum. Sara spurði einnig hvort ráð­herra hafi ekki áform um að veita verk­efn­inu fjár­hags­legan stuðn­ing og ef ekki, í hverju sá stuðn­ingur sem boð­aður er í stjórn­ar­sátt­mál­anum fólst.

Bjarni sagð­ist í annað sinn nú eiga aðild að rík­is­stjórnum sem hafi viljað greiða fyrir betri almenn­ings­sam­göngum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og vilji að að sam­tal sé í sam­ræmi við vænt­ingar sveit­ar­fé­lag­anna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Bjarni sagði að þegar hann hins vegar sett­ist niður með sveit­ar­fé­lög­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þá fái hann alveg óskap­lega ólíka mynd eftir því við hvern hann tal­aði. „Ef maður til dæmis myndi renna sér inn í Garðabæ og tala þar við bæj­ar­full­trúa þá finnur maður ekki fyrir miklum áhuga á því að setja eina ein­ustu krónu úr bæj­ar­sjóði í að láta verk­efnið verða að veru­leika,“ sagði Bjarni.

Ef hann hins vegar færi inn í Hafn­ar­fjörð þá finni hann fyrir allt annarri for­gangs­röðu en í þágu borg­ar­línu, fyrst þurfi að klára mis­læg gatna­mót við Reykja­nes­braut­ina og tvö­falda hana suður í Keflavík áður en Hafna­fjörður vilji fara að setja borg­ar­línu framar í for­gangs­röð­ina.

Í Reykja­vík hins vegar heyri hann að sé fullur kraftur í mál­inu af hálfu borg­ar­stjór­ans, en ekki af hálfu allra flokka í borg­inni. „Þar heyrir maður í fyrsta skipti talað um að það eigi að skatt­leggja borg­ar­búa fyrir verk­efn­inu. Það er ekki það sama uppi á ten­ingnum þegar maður fer í önnur sveit­ar­fé­lög á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði Bjarni.

Hann sagði þetta sam­tal skammt á veg komið. Ekki sé ágrein­ingur á milli flokka um að skyn­sam­legt sé að styðja við almenn­ings­sam­göngur en menn séu komnir fram úr sér með hug­myndir um 35 millj­ónir úr rík­is­sjóði á næst­unni án heild­stæðrar myndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár