Gísli spyr hvort ríkisstjórnin viti virkilega ekki hvað Borgarlína er

Gísli Marteinn Bald­urs­son sjón­varps­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi spyr í pistli á heima­síðu sinni hvort rík­is­stjórnin viti virki­lega ekki hvað Borg­ar­lína er. Hann segir vont fyrir alla að rang­færslum sé haldið á lofti í opin­berri umræðu.

Gísli Marteinn Bald­urs­son sjón­varps­maður og fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi spyr í pistli á heima­síðu sinni hvort rík­is­stjórnin viti virki­lega ekki hvað Borg­ar­lína er. Hann segir vont fyrir alla að rang­færslum sé haldið á lofti í opin­berri umræðu.

„Nú hefur í nokkra daga hver étið upp eftir öðrum að Borg­ar­línan sé á ein­hvers­konar óburða frum­stigi sem geri það ómögu­legt að ræða um hana. Sömu­leiðis er því haldið fram að ekk­ert sveit­ar­fé­lag hafi sett pen­ing í hana. Báðar þessar full­yrð­ingar eru ein­fald­lega rangar, einsog allir geta auð­veld­lega sann­reynt og til dæmis kom fram í morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun,“ skrifar Gísli.

Hann greinir frá því að Borg­ar­línan hafi verið í und­ir­bún­ingi frá því vinnan við Aðal­skipu­lag Reykja­víkur fór fram og skipu­lagður hafi verið sam­gönguás sem gerði ráð fyrir hágæða almenn­ings­sam­göngum. Í aðal­skipu­lagi segir orð­rétt:

„Í nýja aðal­skipu­lag­inu er gert ráð fyrir sam­gönguás sem tengir þétt­ing­ar­svæði við Örfirisey við bland­aða byggð í Elliða­ár­vogi og upp­bygg­ingu atvinnu­kjarna í Keldna­landi. Á þess­ari leið er lögð sér­stök áhersla á almenn­ings­sam­göngur (hrað­leið og for­gangur stræt­is­vagna, fram­tíð­ar­leið fyrir létt­lest), hjóla­stíga og greiðar leiðir fyrir gang­andi veg­far­endur. Þétt­leiki byggð­ar­innar verður mestur við lyk­il­bið­stöðvar stræt­is­vagna.“

Önnur sveit­ar­fé­lög hafi komið að borð­inu mjög fljót­lega og allt síð­asta kjör­tíma­bil hafi verið unnið mark­visst að hönnun, þarfa­grein­ingu, kostn­að­ar­grein­ingu og skipu­lagi alvöru upp­færslu almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu, sem fljót­lega hafi fengið nafnið Borg­ar­lína. „Íslenskir og erlendir verk­fræð­ingar, arki­tektar, hönn­uðir og hag­fræð­ingar hafa unnið að mál­inu und­an­farin ár. Í dag skrifar vand­aður og góður maður og ágætur vinur minn, mjög lélega bak­þanka í Frétta­blaðið. Þar segir hann að Borg­ar­línan „sé ekki einu sinni komin á teikni­borðið“. Það er nú meiri þvælan í Hauki vini mínum. Hún er ekki bara komin á teikni­borðið og búin að vera þar í 4ár, heldur komin út af því aftur og í form­legt skipu­lag! Eftir langan tíma á teikni­borð­inu var sam­þykkt mark­mið um að vinna sam­eig­in­lega að inn­leið­ingu og upp­bygg­ingu hágæða almenn­ings­sam­gangna á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (hér eftir nefnt „Borg­ar­línan“).

Gísli bendir á að sam­komu­lagið sé und­ir­ritað af borgar- og bæj­ar­stjórum allra sveit­ar­fé­lag­anna sex. Eftir und­ir­skrift­ina hafi farið af stað enn meiri vinna sem end­aði með því að sam­þykktar voru breyt­ingar á svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, þar sem sér­stak­lega var gert ráð fyrir Borg­ar­línu.

„En höf­undi Bak­þankanna er vor­kunn, því hann er að éta þetta upp eftir ráða­mönnum þjóð­ar­innar, hvorki meira né minna, sem því miður virð­ast ekki hafa gefið sér tíma til að skilja Borg­ar­línu. Frekar en að setja sig inn í málin slá þeir fram froðu­kenndum frösum um að eng­inn viti hvað Borg­ar­lína sé. Það er bara rangt. Það má vel vera að þeir viti ekki hvað Borg­ar­lína er og væri það ekki í fyrsta skiptið sem stjórn­mála­menn rugl­ast á sjálfum sér og þjóð­inni. En tug­þús­undir íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins vita bara mjög vel hvað Borg­ar­lína er og kusu í unn­vörpum flokka til valda sem styðja Borg­ar­línu. Í öllum sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fengu flokkar sem styðja Borg­ar­lín­una meiri­hluta. Flokkar sem eru á móti henni fengu sum­staðar ágæta kosn­ingu, en eru alls­staðar í minni­hluta,“ segir Gísli Marteinn.

Hann seg­ist viss um að ef ráða­menn myndu kynna sér Borg­ar­línu og hugs­un­ina á bak við hana kæmust þeir að sömu nið­ur­stöðu og sveit­ar­stjórn­ar­menn á öllu höf­uð­borg­ar­svæð­inu úr öllum flokkum, nema Sjálf­stæð­is­flokknum í Reykja­vík, komust á síð­asta kjör­tíma­bili:

„Dýrasta og versta leiðin fyrir okkur öll er að fara ekki í Borg­ar­línu. Við byggjum okkur ekki frá umferð­ar­teppum með gam­al­dags mis­lægum gatna­mótum fyrir bíla. Það mun ekki duga til og við sitjum uppi með tugi millj­arða í slíkar fram­kvæmdir en samt meiri umferð­ar­teppur en við erum með núna. (Hér er ágæt skýrsla um þennan hluta máls­ins). Borg­ar­línan er með öðrum orðum ódýr­ari en áfram­hald­andi óbreytt ástand. Þetta veit sveit­ar­stjórn­ar­fólk í öllum flokkum og hefur þess­vegna ekki bara und­ir­búið í þaula, rann­sakað, látið vinna álit og sam­þykkt borg­ar­línu-breyt­ingar á svæð­is­skipu­lagi — heldur hafa bæði Reykja­vík og Hafn­ar­fjörður þegar eyrna­merkt pen­inga í verk­efnið.“

Gísli Marteinn segir að lokum að þetta geti gengið hratt. Fyrsti hluti Borg­ar­línu geti verið byrj­aður að aka milli aust­ur­hluta Reykja­víkur og Háskóla Íslands, með við­komu í mið­borg­inni, fyrir árið 2025. Fram­kvæmdir ættu því að vera í fullum gangi í næstu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum árið 2022 ef rétt sé haldið á málum á næstu árum.

„Við verðum að gera þá kröfu til okkar besta fólks sem situr á Alþingi og í rík­is­stjórn að það sýni fram­tíð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins áhuga og taki þátt í því með sveit­ar­stjórn­ar­fólki að fara þá leið sem er hag­kvæmust og best fyrir alla, sama hvaða sam­göngu­máta þeir kjósa. Og við verðum líka að gera þá kröfu að þetta sama ráða­fólk standi við lof­orðin sem það sjálft gefur í stjórn­ar­sátt­málum. Það er nú varla til of mik­ils mælst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarlína

ViðtalBorgarlína

Fyrst til að bjóða Betri sam­göngum í kaffi

Bergþóra Þor­kels­dóttir for­stjóri Vega­gerð­ar­innar segir það vera gamla klisju að tala um að Vega­gerðin sé gam­al­dags stofnun. Öllum lyk­il­stjórn­endum hafi verið skipt út frá árinu 2018 og mikil end­ur­nýjun hafi orðið í starfs­manna­hópnum. Hún og Bryndís Frið­riks­dóttir sam­göngu­verk­fræð­ingur sett­ust niður með blaða­manni og ræddu um verk­efni sam­göngusátt­mál­ans. Bergþóra hafnar því að yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar hafi verið ósátt með stofnun félags­ins Betri sam­gangna.

8 mín. lestur

ÚttektBorgarlína

Gam­al­dags Vegagerð sem vill vera aðal

Heim­ildin leit­aði til nokk­urra ein­stak­linga sem hafa með einum eða öðrum hætti komið að verk­efnum sem tengj­ast sam­göngusátt­mála höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og ræddi við þau um Borg­ar­línu, vinnslu verk­efna sátt­mál­ans, fjár­mögnun þeirra og fram­hald. Í sam­töl­unum kom nokkur gagn­rýni kom fram á Vega­gerð­ina fyrir gam­al­dags stofn­anakúltúr og langar boð­leiðir, for­stjór­inn er sagður vilja hafa „putt­ana í öllu“. Yfir­stjórn Vega­gerð­ar­innar er sögð hafa átt erfitt með að sætta sig við að félagið Betri sam­göngur hafi verið stofnað til að halda utan um verk­efni sátt­mál­ans.

8 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár