Skipulögð hverfi fyrir 1.100 íbúðir á Akranesi

Fjöldi íbúða verður byggður á Akranesi á næstu árum, ef áætl­anir ganga eftir. Stefn­ir í að íbú­um fjölgi um 3.000 á næstu 6 til 10 árum og verði orðnir yfir 10 þús­und eftir ára­tug

Íbúum Akraness hefur fjölgað á hverju ári síð­ast­liðin ár en áætlað er að þeim muni fjölga mun hraðar á næstu árum. Þegar lokið verður við að byggja í þeim hverfum sem skipu­lögð hafa verið í bænum eða eru á loka­stigi skipu­lags þá mun íbúum Akraness fjölga um þrjú þús­und á næstu sex til tíu árum. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Eftirspurn eftir Sementsreit

Um hund­rað íbúðir eru nú í bygg­ingu á Akranesi og tæp­lega 1.100 íbúðir verða á þremur nýjum bygg­ing­ar­reitum eða hverfum. Sævar Freyr Þrá­ins­son, bæj­ar­stjóri á Akranesi, segir í sam­tali við Morg­un­blaðið að lóðir sem til­búnar eru til bygg­inga séu upp­seldar fyrir utan nokkrar lóðir í Skóga­hverfi sem bær­inn bíður með úthlutun á vegna hug­mynda um upp­bygg­ingu á íbúða­kjarna fatl­aðra.

Á svoköll­uðum Sem­ents­reit, þar sem verk­smiðju­bygg­ingar Sem­ents­verk­smiðj­unnar voru, verða bygg­aðr 368 íbúðir. Bæj­ar­stjóri býst við að mikil eft­ir­spurn verði eftir lóðum á reitnum en auk íbúða verður byggð aðstaða fyrir verslun og þjón­ustu. Reiknað er með að fyrstu lóð­unum verði út­hlutað fyr­ir lok árs­ins.

Á næstu 6 til 10 ára mun íbúum á Akranesi því fjölga um 3000 ef áætl­anir ganga eftir. Íbúar Akraness verða þá yfir 10 þús­und og íbúa­fjöld­inn því tvö­fald­ast á þrjá­tíu árum. Sævar Freyr segir að ætl­unin sé ekki að gera Akranes að dæmi­gerðum svefnbæ þar sem íbú­arnir vinna mest ann­ars staðar. Stórir vinnu­staðir séu í bænum og í næsta nágrenni hans þótt HB Grandi hafi flutt fisk­vinnslu sína annað. Sævar seg­ist hafa áhuga á að efla nýsköpun og þróun í bæj­ar­fé­lag­inu.

Mest hækk­un á Akra­nesi

[links]Fast­eigna­mat ­í­búða hækkar hvergi meira frá­ ­yf­ir­stand­and­i ári en á Akra­nesi, eða um 21,8 pró­sent, sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati fyrir árið 2020 sem Þjóð­skrá Íslands kynnti í byrjun jún­í. Næst mest hækkar matið í Suð­ur­nesja­bæ, eða um 17,7 pró­sent en um 16,6 pró­sent í Vest­manna­eyj­um.

Sé litið til lands­ins alls hækkar fast­eigna­mat íbúða um 6,0 pró­sent milli ára. Þar af hækkar sér­býli um 6,6 pró­sent en fjöl­býli um 5,3 pró­sent. Hækk­unin er meiri á lands­byggð­inni en í höf­uð­borg­inni, eða 9, pró­sent sam­an­borið við 5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár