Fasteignamat hækkar meira á landsbyggðinni

Fast­eigna­mat íbúða hækkar um 5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 9,1 pró­sent á lands­byggð­inni, sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati fyrir árið 2020. Heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi hækkar um 6,1 pró­sent frá yfir­stand­andi ári og verður 9.047 millj­arðar króna.

Akureyri
Akureyri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi hækkar um 6,1 pró­sent frá yfir­stand­andi ári og verður 9.047 millj­arðar króna, sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati fyrir árið 2020 sem Þjóðskrá Íslands kynnti í dag. Þetta er mun minni hækkun en varð milli áranna 2017 og 2018 þegar heild­ar­mat fast­eigna í land­inu hækk­aði um 12,8 pró­sent.

Sam­an­lagt mat íbúða á öllu land­inu hækkar um 6,0 pró­sent á milli ára og verður alls 6.594 millj­arðar króna, þar af hækkar sér­býli um 6,6 pró­sent á meðan fjöl­býli hækkar um 5,3 pró­sent.

Fast­eigna­mat íbúða hækkar um 5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 9,1 pró­sent á lands­byggð­inni. Fast­eigna­mat íbúða hækkar mest á Akranesi en þar hækkar íbúð­ar­matið um 21,6 pró­sent, um 17,7 pró­sent í sam­ein­uðu sveit­ar­fé­lagi Sand­gerðis og Garðs (Suð­ur­nesjabæ) og um 16,6 pró­sent í Vest­manna­eyjum.

Fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis hækkar um 6,9 pró­sent á land­inu öllu; um 5,9 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en um 9,3 pró­sent á lands­byggð­inni.

Fast­eigna­matið byggir á upp­lýs­ingum úr þing­lýstum kaup­samn­ingum auk fjöl­margra ann­arra þátta sem hafa áhrif á verð­mæti fast­eigna. Nýja fast­eigna­matið mið­ast við verð­lag fast­eigna í febr­úar 2019 en það tekur gildi 31. des­em­ber næst­kom­andi og gildir fyrir árið 2020. Frestur til að gera athuga­semdir við nýtt fast­eigna­mat er til 30. des­em­ber 2019.

Mest heildarhækkun á Akranesi

Heild­ar­fast­eigna­mat á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkar um 5,3 pró­sent, um 9,8 pró­sent á Suð­ur­nesjum, um 10,2 pró­sent á Vest­ur­landi, um 6,7 pró­sent á Norð­ur­landi vestra, 7,4 pró­sent á Norð­ur­landi eystra, 6,7 pró­sent á Aust­ur­landi og um 8 pró­sent á Suð­ur­landi. Mats­svæðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur verið fjölgað nokkuð til að matið end­ur­spegli nákvæmar þær verð­breyt­ingar sem orðið hafa á svæð­inu með þétt­ingu byggðar síð­ustu miss­eri.

Af ein­staka bæj­ar­fé­lögum hækkar heild­ar­fast­eigna­mat mest á Akranesi eða um 19,1 pró­sent, um 14,7 pró­sent í Vest­manna­eyjum og um 14,2 pró­sent í Suð­ur­nesjabæ.

Fasteignamat sumarhúsa nær óbreytt

Fast­eigna­mat sum­ar­húsa fyrir árið 2020 hækkar um 0,7 pró­sent á milli ára. Nokkrar breyt­ingar hafa verið gerðar á aðferða­fræði við útreikn­ing á fast­eigna­mati sum­ar­húsa og má þar helst nefna fjölgun mats­svæða yfir allt landið auk þess sem útreikn­ingi lóða­verðs hefur verið breytt þannig að sum­ar­húsa­lóðir undir með­al­stærð lækka en lóðir yfir með­al­stærð hækka. Lóðaverð sum­ar­húsa lækkar því að jafn­aði um 23 pró­sent á milli ára á meðan hús­matið sjálft hækkar um 7,5 pró­sent.

Með fjölgun mats­svæða er hægt að aðgreina betur fast­eigna­mat ólíkra svæða og lækka viss strjál­byggð svæði sem hafa tak­mark­aðar sam­göngur og eru langt frá annarri byggð. Hér má nefna svæði eins og hálendið, Flat­eyj­ar­dal, Norður-Þing­eyj­ar­sýslu, Siglunes, Skaga, Aust­ur­land, Norður- Múla­sýslu, Mjóa­fjörð og fleiri svæði þar sem fast­eigna­mat lækkar um meira en 30 pró­sent. Þau svæði sem hækka mest eiga það sam­eig­in­legt að þar eru sum­ar­húsa­lóðir að jafn­aði stórar og má þar nefna svæði eins og Galt­ar­læk, Eystri Rangá og Hró­arslæk þar sem fast­eigna­mat hækkar um meira en 25 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár