Svandís sér um kæru vegna knatthúsa FH í stað Sigurðar Inga

Fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra situr í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar. Kæra vegna knatt­húsa FH mun því verða afgreidd af Svandísi Svav­ars­dóttur.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra mun fara með tvö kæru­mál er varða ákvarð­anir bæj­ar­stjórnar Hafn­ar­fjarðar um fram­kvæmdir og kaup á mann­virkjum í Kaplakrika í stað Sigurðar Inga Jóhanns­sonar ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði þetta til á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun.

„Þar sem fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Sigurðar í emb­ætti sem ráð­herra, sem nýlega lét af störfum sem slíkur, situr í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar, ákvað ráð­herra að víkja sæti. Ég ákvað að óska eftir því við heil­brigð­is­ráð­herra að hún tæki að sér að fara með málin. Málið fer bara yfir til þessa ráð­ehrra og hún skoðar það og úrskurðar. Þetta er nákvæm­lega eins og ég gerði um dag­inn þegar ég óskað eftir því að fjár­mála­ráð­herra yrði minn stað­geng­ill í stóra þjóð­söngs­mál­inu,“ segir Katrín í sam­tali við Kjarnann.

Minni­hluti í bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar kærði sam­þykktir meiri­hluta bæj­ar­stjórn­ar­innar til ráðu­neyt­is­ins, sem sner­ust um ramma­sam­komu­lag sem milli bæj­ar­ins og FH, sem mun byggja og eiga knatt­hús en Hafn­ar­fjarð­ar­bær í stað­inn kaupa eldra knatt­hús FH af félag­inu auk íþrótta­hús félags­ins í Kaplakrika.

FH mun sem sagt byggja, eiga og reka knatt­húsið í stað þess að bær­inn geri það. Bærinn kaupir þess í stað íþrótta­mann­virki í Kaplakrika og eign­ast þau að fullu, fyrir 790 millj­ónir króna. FH notar kaup­verðið til bygg­ingar á knatt­hús­inu og skuld­bindur sig til að klára fram­kvæmdir á eigin kostnað og ábyrgð fari kostn­aður fram yfir áætlun félags­ins. Bærinn greiðir kaup­verðið svo í áföngum sam­kvæmt fjár­hags­á­ætlun bæj­ar­ins og eftir því hvernig fram­kvæmdum vindur fram.

Minni­hlut­inn er ósáttur við hvernig staðið var að afgreiðslu máls­ins sem var tekið fyrir í bæj­ar­ráði, en minni­hlut­inn telur að málið sé svo stórt og þess eðlis að leiða eigi það til lykta á vett­vangi bæj­ar­stjórnar þar sem allir bæj­ar­full­trúar hafi mögu­leika á að koma að afgreiðslu máls­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár