Harpa þarf að greiða full fasteignagjöld - Getur það ekki lengur segir forstjóri hússins

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði í gær kröfu Hörpu að úrskurður yfir­fast­eigna­mats­nefndar frá 30. maí 2012 verði ógiltur. Samkvæmt úrskurð­inum átti Harpa að greiða 355 millj­ónir króna í fast­eigna­gjöld á árinu 2012. Húsið hefur greitt um einn millj­arð króna í slík gjöld á síð­ustu þremur árum og á að borga yfir 380 millj­ónir króna í þau í ár. Sú álagn­ing, sem gerir það að verkum að rúmur þriðj­ungur af rekstr­ar­tekjum Hörpu fer í fast­eigna­gjöld, mun því standa. Halldór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu, segir húsið ekki geta greitt svo háa upp­hæð í fast­eigna­gjöld lengur.

Fasteignamat miðaði við byggingakostnað


Í maí 2011 var Harpan tekin í notkun. Í saman mán­uði til­kynnti Þjóðskrá Íslands rekstr­ar­fé­lagi Hörpu um að fast­eigna­mat tón­listar- og ráð­stefnu­húss­ins væri reiknað 17 millj­arðar króna, og var þar miðað við bygg­inga­kostnað þess. Það mat gerði það að verkum að fast­eigna­gjöld sem Harpa þurfti að greiða Reykja­vík­ur­borg voru 355 millj­ónir króna vegna þess árs. Tekjur af starf­semi Hörpu voru 492 millj­ónir króna árið 2011 og 645 millj­ónir króna árið 2012. Miðað við fast­eigna­matið var því ljóst að þorri rekstr­ar­tekna sem kæmu inn vegna útleigu á hús­inu myndi fara í fast­eigna­gjöld, sem rynnu auk þess í vasa ann­ars eig­anda Hörpu, Reykja­vík­ur­borgar.

[caption id="attachment_28614" align="align­right" width="150"] Halldór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu.[/caption]

Harpa vildi ekki sætta sig við þetta mat og kærði það til yfir­fast­eigna­mats­nefndar. Í kæru Hörpu kemur fram að stjórn­endur Hörpu telji að fast­eigna­mat húss­ins hefði átt að vera 6,8 millj­arðar króna og fast­eigna­gjöld í sam­ræmi við það. Fast­eigna­matið ætti að taka mið af tekju­mögu­leikum húss­ins, ekki bygg­inga­kostn­aði. Yfir­fast­eigna­mats­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöður fyrir nærri þremur árum síðan að fast­eigna­matið ætti hins vegar að halda, og Harpa ætti að greiða hin háum fast­eigna­gjöld.

Í kjöl­farið ákvað Harpa að leita til dóm­stóla og reyna að fá úrskurð yfir­fast­eigna­mats­nefndar ógildan. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði þeirri kröfu í gær.

Það sem er sér­stakt við málið er að þar var lög­mað­ur­inn Ásgerður Ragn­ars­dóttir,fyrir hönd Hörpu, að stefna rík­is­stofn­un­inni Þjóðskrá Íslands og Reykja­vík­ur­borg. Harpa var því að stefna eig­endum sínum til að reyna að fá að greiða öðrum þeirra minna fé í fast­eigna­gjöld sem hinn eig­and­inn, ríkið, ákvað hversu há ættu að vera. Einar Karl Hall­varðs­son rak málið fyrir hönd Þjóð­skrár og Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar.

Segir Hörpu ekki geta borgað svona há gjöld


Halldór Guð­munds­son, for­stjóri Hörpu, segir að Harpa sé að borga þrisvar til fjórum sinnum meira í fast­eigna­gjöld á fer­meter en Kringlan, Smára­lind og Leifs­stöð, svo dæmi séu tekin. „Okkur fannst þetta mjög órétt­lát álagn­ing og töldum okkur ekki eiga annan kost í stöð­unni en að leita með þetta mál til dóm­stóla. Hér­aðs­dómur hefur nú hafnað því. Í kjöl­farið þurfum við að meta stöð­una en það er alveg jafn ljóst nú og var áður, þótt veltan hjá Hörpu hafi auk­ist mikið, að þessi rekstur stendur ekki undir þessum álögum.“

Halldór segir að það verði skoðað gaum­gæfi­lega hvort dómi hér­að­dóms verði áfrýjað. Nið­ur­staða liggi þó ekki fyrir.

Hann bendir á að Harpa hafi þegar greitt yfir einn millj­arð króna í fast­eigna­gjöld á árunum 2012 til 2014. Veltan í dag sé um 1.100 millj­ónir króna á ári og sam­kvæmt álagn­ingu eigi Harpa að greiða yfir 380 millj­ónir króna í fast­eigna­gjöld á þessu ári. Það geti Harpa ein­fald­lega ekki gert og þeim skila­boðum hafi verið komið til eig­enda húss­ins, rík­is­ins og Reykja­vík­ur­borgar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár