Umsóknir um vernd hafa nærri fjórfaldast það sem af er ári

Heild­ar­fjöldi umsækj­enda um vernd á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins er orð­inn 235 en á sama tíma­bili í fyrra var hann 64. Þetta þýðir að 367 % fjölgun er á milli ára eða tæp­lega fjór­föld. Þetta kemur fram í frétt Útlend­inga­stofn­unar.

„Ef horft er til síð­ustu mán­aða árs­ins 2015 sést að fjöldi umsókna er í takt við þró­un­ina sem hófst síð­ast­liðið haust. Sú þróun átti sér ekki bara stað á Íslandi heldur um alla Evrópu,“ segir Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi Útlend­inga­stofn­unar. Hún segir að allt eins megi gera ráð fyrir að umsóknum um hæli muni fjölga eftir því sem líður á árið en spá Útlend­inga­stofn­unar geri ráð fyrir á bil­inu 600 til 1000 umsóknum á árinu.

Kjarninn fjall­aði um ný útlend­inga­lög á dög­unum en gert var grein fyrir nýjum lögum um útlend­inga og mark­miðum þeirra á hádeg­is­fundi í Háskóla Íslands. Frum­mæl­endur fjöll­uðu efn­is­leg um lögin, kosti og galla. Lögin voru sam­þykkt þann 2. júní síð­ast­lið­inn en þau taka gildi um næstu ára­mót 2016-2017.

Flestir umsækjendur frá Balkanlöndunum

Athygli vekur að flestir umsækj­endur í maí komu frá Albaníu og Makedóníu en alls voru 60% umsækj­enda frá Balk­an­lönd­unum. Karlar voru 66% umsækj­enda og full­orðnir ein­stak­lingar 77%.

„Útlend­inga­stofnun hefur ekki greint ástæð­urnar að baki fjölgun hæl­is­leit­enda frá Albaníu og Makedóníu en þær eru vafa­lítið marg­þættar,“ segir Þór­hildur. Hún segir að rík­is­borg­arar Albaníu og Makedóníu þurfi til dæmis ekki vega­bréfs­á­ritun til að ferð­ast til Íslands og eigi því til­tölu­lega auð­velt með að ferð­ast hingað. Skortur á vinnu­afli á Íslandi eigi síðan eflaust sinn þátt í því hvers vegna margir leita hingað en stór hluti umsækj­enda frá löndum Balkanskag­ans komi hingað í leit að atvinnu og bættum efna­hags­legum kjörum.

„Umsóknir á slíkum grunni eru þó til­hæfu­lausar enda er hæl­is­kerfið neyð­ar­kerfi, ætlað fólki sem ótt­ast um líf sitt og frelsi og á ekki mögu­leika á við­un­andi vernd og úrræðum í heima­land,“ segir hún.

Margar umsóknir í maí

56 ein­stak­lingar frá 17 löndum hafa sótt um vernd hér­lendis í maí síð­ast­liðnum. Það kemur einnig fram hjá Útlend­inga­stofnun að nið­ur­staða hafi feng­ist í 75 mál á sama tíma. 44 mál voru tekin til efn­is­legrar með­ferðar og 18 mál voru afgreidd með end­ur­send­ingu á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar. Fjórir umsækj­endur höfðu þegar fengið vernd ann­ars staðar og níu umsækj­endur drógu umsóknir sínar til baka.

Af þeim 44 málum sem tekin voru til efn­is­legrar með­ferðar lauk níu málum með ákvörðun um veit­ingu verndar, við­bót­ar­verndar eða dval­ar­leyfis af mann­úð­ar­á­stæðum, en 35 lauk með synjun. 14 efn­is­mál voru afgreidd á grund­velli for­gangs­með­ferðar í maí.

Þann 31. maí síð­ast­lið­inn voru 153 umsóknir um vernd í vinnslu hjá Útlend­inga­stofnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár