Hlutverk stjórnvalda í útlendingamálum skýrt og skilgreint í nýjum lögum

Hádeg­is­fundur fór fram í Háskóla Íslands í gær um ný lög um útlend­inga. Lögin eru afrakstur tveggja ára þverpóli­tískrar sam­vinnu en á fund­inum var sjónum beint að áhrifum nýju lag­anna, kostum og göllum.

Mannúðarmál hafa mikið verið í umræðunni undanfarið vegna flóttamannastraums til Evrópu á síðustu misserum.
Mann­úð­ar­mál hafa mikið verið í umræð­unni und­an­farið vegna flótta­manna­straums til Evrópu á síð­ustu miss­erum. Mynd: EPA

„Við erum að reyna að skýra og skil­greina hlut­verk stjórn­valda sem tengj­ast þessum mála­flokki og stuðla að sam­ræm­ingu lag­anna um útlend­inga og þessi atvinnu­rétt­indi,“ segir Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir, þing­maður og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis. Hún gerði grein fyrir nýjum lögum um útlend­inga og mark­miðum þeirra en þau voru sam­þykkt þann 2. júní síð­ast­lið­inn á Alþingi. Lögin taka gildi um næstu ára­mót 2016-2017. Þetta kom meðal ann­ars fram á hádeg­is­fundi í funda­röð Háskóla Íslands sem ber yfir­skrift­ina Fræði og fjöl­menn­ing.

Unnur Brá segir að lögin snú­ist ekki ein­ungis um flótta­fólk heldur líka um fólk sem vilji flytja til Íslands í leit að nýju lífi eða til að vinna. Hún segir að heim­ur­inn sé alltaf að stækka og að fólk þurfi að taka mið af því. Með lög­unum sé einnig verið að auka mannúð og skil­virkni í kerf­inu. Hún telur að regl­urnar verði að vera skýrar og að þau séu einnig að reyna að gera lögin aðgengi­leg.

Útlendingalög ætluð fyrir alla sem koma til Íslands

Unnur Brá segir að lögin hafi áður fyrr verið samin með það í huga að hafa eft­ir­lit með útlend­ingum en ekki endi­lega til að veita fólki rétt­indi. Umræðan hafi lit­ast af því hversu margir séu á flótta um heim allan. Laga­breyt­ing­arnar snú­ist ekki bara um umsækj­endur um alþjóð­lega vernd heldur líka um útlend­inga almennt sem vilji koma og vinna til styttri eða lengri tíma.

Það fá ekki allir það sem þeir vilja

Þverpóli­tískri þing­manna­nefnd var komið á lagg­irnar til þess að búa til drög að frum­varpi fyrir ráð­herra. Þetta er ekki venju­leg aðferð að sögn Unnar Brár. „Ég held að þetta sé eitt það mik­il­væg­asta sem við gerðum í þessu ferli, að fá full­trúa frá öllum stjórn­mála­flokkum til að setj­ast saman við þetta stóra verk­efni,“ segir hún. Hún segir að þau hafi treyst því að fá góða nið­ur­stöðu með þess­ari nálgun og að verkum hafi ekki verið skipt eftir þing­styrk.

Hún segir að mikið sam­ráð hafi verið haft milli nefnd­ar­innar og þeirra sér­fræð­inga sem vinna að mála­flokknum, atvinnu­lífs­ins, verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, útlend­inga­stofn­unar, lög­regl­unar, ráðu­neyt­is­ins og No Borders. Hún segir að reynt hafi verið að koma til móts við alla en eins og gefi að skilja geti ekki allir fengið nákvæm­lega það sem þeir vilja. Hún telur þetta ágæta mála­miðlun. Fram­tíðin sé þó óráðin og þess vegna er erfitt að segja hvernig ástandið verði eftir fimm ár. Laga­bálkar verði því alltaf að vera í stöðugri end­ur­skoðun.

Biðin verður styttri

Það fyrsta sem breytt verður í lög­gjöf­inni er starf­semi kæru­nefndar útlend­inga­mála. Málin tóku oft langan tíma og margir þurftu að bíða í jafn­vel mörg ár eftir nið­ur­stöðum. Unnur Brá segir að núna þurfi ekki að bíða svo lengi. Útlend­inga­stofnun hefur lagað alla sína vinnu­ferla og er búin að ná betri tökum á sínum verk­efnum, að hennar mati.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála tekur við ef umsækj­endur fá höfnun hjá útlend­inga­stofnun og kæra. Þau mál sem eru komin út úr ráðu­neyt­inu verða komin í hendur sér­fróðra aðila sem eru ein­ungis í þessum verk­efnum. Málin eiga að taka eins skamman tíma og mögu­legt er.

Íslendingar græða

Einnig eru breyt­ingar gerðar á lögum um atvinnu­rétt útlend­inga. Atvinnu­lífið hefur í áraraðir kallað eftir auð­veld­ari afgreiðslu í þeim efnum, segir Unnur Brá. „Ef maður er algjör­lega eig­in­gjarn þá erum við að græða ein­stak­linga fyrir okkur án þess að hafa þurft að kosta þá í gegnum allt grunn­skóla­kerfið,“ segir hún. Þannig að Íslend­ingar fái mikið út úr því að liðka þessar reglur, það er að gera fólki auð­veld­ara fyrir að koma til lands­ins og vinna.

Nefndin leggur til stofnun mót­töku­mið­stöðvar. Unnur Brá segir að það væri grund­vall­ar­breyt­ing að hægt væri að safna á einn stað öllu utan­um­haldi um þá sem eru að sækja um alþjóð­lega vernd. Þar færi fram grein­ing á aðstæðum fólks og hvaða þjón­ustu þyrfti að veita.

Auknir möguleikar á fjölskyldusameiningu

Arndís A. K. Gunn­ars­dóttir, lög­fræð­ingur hjá Rauða kross­inum, lýsir yfir ánægju vegna skýr­ari ákvæða sem varða heim­ildir stjórn­valda til að taka mál til efn­is­með­ferðar. Einnig að það séu auknir mögu­leikar á fjöl­skyldu­sam­ein­ingu fyrir fylgd­ar­laus börn og að réttar­ör­yggi útlend­inga sé tryggt. Hún fjall­aði á fund­inum um sýn Rauða kross­ins en hann vinnur í sam­vinnu við stjórn­völd að mál­efnum flótta­manna og hæl­is­leit­enda og flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Hún bendir á að rétt­ar­staða rík­is­fangs­lausra sé bætt. Því beri að fagna og einnig refsi­leysi vegna ólög­legrar komu eða fals­aðra skil­ríkja. Hún segir að nýju lögin ítar­legri en þau gömlu.

Aðgengi að dómstólum skert

Arndís segir það áhyggju­efni að aðgengi hæl­is­leit­enda að dóm­stólum sé skert. Heim­ildir séu til staðar í nýju lög­unum sem geri for­manni kæru­nefndar kleift að útskurða einn í málum. Hún bendir einnig á að með breyt­ing­unum á lögum útlend­inga árið 2014 hafi kær­anda í máli verið veittur réttur til að koma fyrir nefnd og gera grein fyrir sinni afstöðu. Með þessum nýju lögum hafi þessi réttur verið afnum­inn. Kæru­nefndin ákveði því hvort við­kom­andi komi fyrir nefnd­ina. Hún segir að það sé mjög mik­il­vægt að mati Rauða kross­ins að tryggja að umsækj­endur um alþjóð­lega vernd eigi þess kost að tjá sig munn­lega um eigin mál óski þeir þess.

Einnig var lagt til að heim­ild yrði bætt við til að veita vega­bréfs­á­ritun ein­stak­lingi sem óskar eftir því að koma til Íslands svo að fólk geti sótt um alþjóð­lega vernd. Þessi til­laga hefur ekki kom­ist inn í lögin, segir Arndís.

Þarf lista yfir örugg ríki?

Í lög­unum er á mörgum stöðum vísað í lista yfir örugg ríki. „Hvað þetta varðar þá ítrekar Rauði kross­inn fyrst og fremst sína afstöðu gagn­vart hug­myndum um slíka lista. Þessir listar eru til þess fallnir að koma í veg fyrir að sumar umsóknir um hæli hljóti sömu skoðun og aðrar og telur Rauði kross­inn þessa lista í eðli sínu skerða réttar­ör­yggi fólks á flótta,“ segir Arndís. Þau telja slíka lista vera óþarfa, stjórn­völd ættu að gera greint á milli án þessa lista.

Fagnar því að réttur til fjölskyldusameiningar sé ekki skertur

Arndís fagnar því að nýju lögin skerði ekki rétt til fjöl­skyldu­sam­ein­ingar eins og sum önnur Evr­ópu­lönd hafa farið. Arndís segir að slíkar skerð­ingar leiði til þess að konur og börn fara frekar í bát­ana og leggi upp í erfitt ferða­lag.

Claudie Ashonie Wilson, lög­fræð­ingur hjá lög­manns­stof­unni Rétti, tekur í sama streng og Arndís en hún var einnig frum­mæl­andi á hádeg­is­fund­inum. Hún fjall­aði um áhrif lag­anna á rétt­ar­stöðu flótta­fólks á Íslandi. Hún óskaði þverpóli­tísku nefnd­inni sér­stak­lega til ham­ingju með að hafa náð settu mark­miði að ná að gera heild­ar­skoðun á mál­efnum útlend­inga. Nýju lögin séu skref í rétta átt til að tryggja að rétt­indi þeirra sem lögin gilda um séu virt.

Hún fagnar þeim nýmælum sem eru til rétt­ar­bóta fyrir umsækj­endur um alþjóða­vernd, mót­töku­mið­stöð, ákvæði um rétt­ar­stöðu rík­is­fangs­lausra ein­stak­linga og aukna vernd fyrir fylgd­ar­laus börn.

Áhyggjur af áhrifum laganna

Claudie lýsir þó yfir áhyggjum af ákveðnum laga­á­kvæðum. Í fyrsta lagi nefnir hún áhrif lag­anna á með­ferð umsóknar barna í fylgd með for­eldrum sínum. Í öðru lagi áhrif þeirra á með­ferð umsóknar fylgd­ar­lausra barna sem verða full­orðin á meðan máls­með­ferð stendur. Æskilegt væri að miða við aldur þeirra við komu til lands­ins eða þegar umsóknin er lögð fram.

Í þriðja lagi lýsir hún áhyggjum sínum af for­gangs­með­ferð og áhrifum hennar á rétt til aðgengis að dóm­stólum en hún tekur undir með Arndísi að styðj­ast eigi ekki við lista yfir örugg ríki.

Það verður að taka tillit til þess hvar Ísland er staðsett

Í síð­asta lagi talar hún um refsi­leysi umsækj­enda um alþjóð­lega vernd vegna ólög­legrar komu eða fals­aðra skil­ríkja marka ákveðin tíma­mót í rétt­inda­bar­áttu þeirra sem sækja um alþjóð­lega vernd hér á landi. Aftur á móti eru hnökrar á ákvæð­inu, það er að umsækj­andi verður að koma beint frá land­svæð­inu. „Að teknu til­liti til þess að fjöl­margir umsækj­endur um alþjóð­lega vernd sem koma til Íslands hafa farið í gegnum að minnsta kosti eitt eða fleiri Evr­ópu­ríki áður en þau koma til Íslands,“ bendir hún á. Það sé því ekki raun­hæft að gera þá kröfu til þeirra að þeir komi í óslit­inni för til Íslands. Það verði að tala til­lit til land­fræði­legrar stað­setn­ingar Íslands.

Hvernig vegnar flóttafólki og innflytjendum í íslensku samfélagi?

Við lok fundar var und­ir­rit­aður samn­ingur milli inn­an­rík­is­ráðu­neytis, vel­ferð­ar­ráðu­neytis og Háskóla Íslands um heild­stæða úttekt á því hvernig flótta­fólki og inn­flytj­endum vegnar í íslensku sam­fé­lagi. Ríkið sam­þykkti á fundi nýlega að leggja 10 millj­ónir króna til verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár