Reyfarakennd saga um fjárkúgun, ástir og eignarhald á fjölmiðli

Búið er að ákæra syst­urnar Malín Brand og Hlín Ein­ars­dóttur fyrir að reyna að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni sum­arið 2015. Málið er reyfara­kennt og minnir mun meira á skáld­sögu en íslenskan raun­veru­leika.

Systur á fer­tugs­aldri eru hand­teknar í úthverfi Hafn­ar­fjarðar fyrir að reyna að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra þjóðar. Önnur þeirra er fyrrum ást­kona umsvifa­mik­ils fjöl­miðla­eig­enda sem á sér langa póli­tíska for­sögu. Svo virð­ist sem þær hafi ætlað að not­færa sér upp­lýs­ingar sem þær höfðu undir höndum, og þær töldu að sýndu fram á að for­sæt­is­ráð­herr­ann hefði tekið þátt í fjár­mögnun á kaupum á fjöl­miðli án þess að slík kaup væru gerð opin­ber, til að hafa af for­sæt­is­ráð­herr­anum átta millj­ónir króna. Þetta hljómar eins kvik­mynda­hand­rit, en er íslenskur veru­leiki. Og í dag var greint frá því að rann­sókn máls­ins sé lokið og að það fari inn á borð rík­is­sak­sókn­ara í vik­unni.

Til að skilja sam­hengi atburð­anna almenni­lega þarf að fara aðeins aftur í tíma, nánar til­tekið til ágúst 2014.

Ásakanir um að Framsókn hafi ráða yfir DV

Síð­sum­ars 2014 hófust mikil átök um eign­ar­hald DV þegar hópur undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar vildi fá meiri­hluta í stjórn í takt við eign sína. Eign­ar­haldið var að mestu til­komið vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, hefði lánað Reyni Trausta­syni, þáver­andi aðal­eig­anda og rit­stjóra DV, fé fyrir tveimur árum og fram­selt kröfu vegna þess láns til Þor­steins. Allt í allt sagði Þor­steinn að hann og við­skipta­fé­lagar hans hefðu sett 85 millj­ónir króna í DV.

Eftir að hóp­ur­inn í kringum Þorstein hafði náð yfir­ráðum í DV ráku þeir Reyni og flestir aðrir stjórn­endur mið­ils­ins hættu störfum í kjöl­farið.

Þann 29. októ­ber 2014 hafði Kjarninn eftir Ólafi M. Magn­ús­syni, fram­kvæmda­stjóra mjólk­ur­bús­ins Kú og fyrrum stjórn­ar­for­manni DV, að Hrólfur Ölvisson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins hefði fundað þrí­vegis með sér undir því yfir­skini að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma þegar Ólafur var enn stjórn­ar­for­maður DV, en hann sagði sig úr stjórn­inni í maí 2013. Orðrétt sagði Ólafur: „Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. Það yrði auð­vitað ekki flokk­ur­inn sjálfur, heldur menn sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga myndi útvega fjár­muni til þess að gera það. Ég ljáði auð­vitað aldrei máls á þessu.“

Hrólfur hafn­aði því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi viljað eign­ast hlut í DV. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér sagði: „Hvorki ég fyrir hönd flokks­ins, né Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur farið þessa á leit og full­yrð­ingar Ólafs Magn­ús­sonar þar um eru rangar. Ólafur Magn­ús­son kom nokkrum sinnum á minn fund til að ræða ýmis per­sónu­leg mál­efni, bæði fjár­hags­leg og önnur. Aldrei var einu orði minnst á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði hug á að eign­ast hlut í blað­inu, en Ólafur hafði orð á því að fyrra bragði að DV væri í fjár­þröng og þyrfti á auknu hlutafé að halda.“

Pressan kaupir 70 prósent í DV

Ólafur var síðan beð­inn um að taka sæti í stjórn DV að nýju eftir að nýir eig­endur, undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar, tóku við miðl­inum í sept­em­ber 2014. Hann sagði að í kjöl­farið hafi Þor­steinn sagt honum að í bígerð væri stór sam­ein­ing DV við annan fjöl­miðil.

Þann 21. nóv­em­ber 2014 var svo til­kynnt að Pressan ehf., móð­ur­fé­lag Vef­pressunnar og vef­miðl­anna Pressunnar, Eyjunnar og Bleikt, hefði náð sam­komu­lagi við eig­endur meiri­hluta hluta­fjár í útgáfu­fé­lag­inu DV ehf. um kaup á ráð­andi hlut í félag­inu, um 70 pró­sent eign­ar­hlut. Björn Ingi Hrafns­son er aðal­eig­andi Pressunnar, en hann er marg­reyndur fjöl­miðla­maður sem starf­aði auk þess sem aðstoð­ar­maður ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins um skeið og sat í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fyrir hönd flokks­ins. Björn Ingi varð skömmu síðar stjórn­ar­for­maður og útgef­andi DV. Í skrif­legu svari til Kjarnans sama dag vildi Björn Ingi ekki gefa upp hvernig kaupin á DV voru fjár­mögnuð. Hann vildi heldur ekki upp­lýsa um hvað hafi verið greitt fyrir þann hlut sem félög tengd honum keyptu í DV.

Þann 20. des­em­ber 2014, var til­kynnt um að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hefði heim­ilað sam­runa Pressunnar og DV að lok­inni rann­sókn. Sama dag var greint frá því að stór hluti kaup­verðs­ins á um 70 pró­sent hlut í DV ehf. hefði verið fjár­magn­aður með láni frá selj­endum hlut­ar­ins.

Í lok árs voru loks gerðar breyt­ingar á stjórn­endum DV. Þá voru Eggert Skúlason og Kolbrún Berg­þórs­dóttir ráðin aðal­rit­stjórar DV og Hörður Ægisson ráð­inn við­skipta­rit­stjóri mið­ils­ins.

Reynt að fjárkúga forsætisráðherra

Aldrei hefur verið upp­lýst um hvaðan kaup­verð Pressunnar ehf. á tæp­lega 70 pró­sent hlut í DV kom að öðru leyti en að hluti þess hafi verið greiddur með selj­enda­láni. Í ljósi þeirra ásak­ana sem Ólafur M. Magn­ús­son setti fram í fyrra­haust, um að sá stjórn­mála­flokkur sem leiðir sitj­andi rík­is­stjórn, hafi viljað kom­ast yfir mið­ill­inn, hafa allskyns óstað­festar sögu­sagnir verið um hvernig fjár­mögn­un­inni sé háttað.

Í byrjun júní 2015 fengu þær sögu­sagnir vængi þegar Vísir greindi frá því að tvær konur hefðu verið hand­teknar fyrir að reyna að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra. Konurnar heitar Hlín Ein­ars­dóttir og Malín Brand og eru systur. Samkvæmt reifara­kenndri frá­sögn fjöl­miðla áttu þær að hafa sent hand­skrifað bréf heim til Sig­mundar Davíðs þar sem þess var kraf­ist að hann greiddi þeim um átta millj­ónir króna. Annars myndu upp­lýs­ingar sem áttu að vera við­kvæmar fyrir hann að verða gerðar opin­berar.

Málið var strax til­kynnt til lög­reglu sem réðst í umfangs­miklar aðgerðir sem leiddu til þess að syst­urnar voru hand­teknar í Hafn­ar­firði, sunnan Valla­hverfis, á föstu­dag. Í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu stóð að for­sæt­is­ráð­herra ætti að skilja pen­ing­ana sem þær vildu fá á þeim stað.

Í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kom fram að þær hefðu báðar játað verkn­að­inn við yfir­heyrslur og þeim sleppt að þeim loknum. Syst­urnar geta átt yfir höfði sér allt að sex ára fang­elsi fyrir fjár­kúg­un­ina sem þær hafa játað á sig. Rannsókn máls­ins er nú lokið, um fimm mán­uðum eftir að það kom upp.

DV greindi frá því í jún­í­byrjun 2015 að bréfið frá Hlín og Malín hafi haf­ist á blíðum nótum en fljót­lega hafi til­gangur þess komið í ljós. Sigmundi Davíð og fjöl­skyldu hans hafi verið veru­lega brugðið þegar hand­skrifað bréf með meintri fjár­kúgun barst á heim­ili þeirra. Í frá­sögn DV sagði að í bréf­inu hafi verið farið fram á ákveðna upp­hæð auk þess sem nákvæm lýs­ing var á því hvar ætti að afhenda fjár­mun­ina. Sá staður var við Krísu­vík­ur­veg, sunnan Valla­hverfis í Hafn­ar­firði. Samkvæmt DV var lögð þung áhersla það í lok bréfs­ins á að afleið­ing­arnar yrðu alvar­legar ef að haft yrði sam­band við lög­reglu.

Björn Ingi neitar

En hvernig teng­ist þessi reyfara­kennda, og for­dæma­lausa, atburð­ar­rás eign­ar­haldi DV?

Í fyrsta lagi þá er Hlín fyrrum rit­stjóri Bleikt.is, vefs sem Pressan ehf. á og rekur. Í öðru lagi var hún sam­býl­is­kona Björns Inga um nokk­urra ára skeið. Því sam­bandi lauk síðla árs 2014. Malín, sem starf­aði sem blaða­maður á Morg­un­blað­inu, er, líkt og áður sagði systir Hlínar.

Upp­lýs­ing­arnar sem hótað var að gera opin­berar snér­ust, að sögn Vísis.is, um fjár­hags­leg tengsl Sig­mundar Davíðs og Björns Inga Hrafns­sonar, aðal­eig­anda og útgef­anda DV. Stundin sagði að upp­lýs­ing­arnar væri tölvu­póstur sem farið hefði á milli for­sæt­is­ráð­herra og Björns Inga í tengslum við kaupin á DV á árinu 2014.Upp­lýs­ing­arnar snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka sem notuð hafi verið til kaupanna.

Björn Ingi birti stöðu­upp­færslu á Facebook sama dag og málið kom upp til að bregð­ast við þessum ásök­unum. Þar sagði hann Sigmund Davíð ekki hafa fjár­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann ætti ekki hlut í blað­inu. Þar sagði hann einnig: „Ég er harmi sleg­inn yfir fregnum dags­ins. Hugur minn er hjá þeim sem um sárt eiga að binda vegna þessa máls. For­sæt­is­ráð­herra fjár­magn­aði ekki kaup Pressunnar á DV. Hann á ekki hlut í blað­inu. Að öðru leyti óska ég eftir því að tekið sé til­lit til þess að hér er mann­legur harm­leikur á ferð­inni og að aðgát skuli höfð í nær­veru sálar.“

Sig­mundur Davíð sendi frá sér yfir­lýs­ingu um málið skömmu síðar. Þar sagði hann að bréf hafi verið sent á heim­ili hans, í umslagi merkt eig­in­konu hans. Þar hafi verið skrifað að ef Sig­mundur Davíð myndi ekki greiða nokkrar millj­ónir króna myndu fjöl­miðlar fá upp­lýs­ingar sem ættu að reyn­ast honum skað­legar. Hann segir að af bréf­inu að ráða virð­ast umræddar upp­lýs­ingar byggja á get­gátum og sögu­sögnum. Í yfir­lýs­ing­unni segir einnig: "Vegna frétta sem birst hafa um málið í dag með vísan til hót­an­anna er rétt að taka fram að ég hef engin fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son, né hef ég komið að kaupum Vef­pressunnar á DV á nokkurn hátt. Fjöl­skyldu minni er veru­lega brugðið vegna þess­ara atburða. Ég vil hvetja til hóf­stilltrar umræðu um málið og minni á að grun­aðir ger­endur eiga ætt­ingja og vini sem liðið geta fyrir umfjöll­un­ina."

MP banki sendi frá sér yfir­lýs­ingu um málið þann 3. júní 2015. Þar sagð­ist bank­inn, sem í dag hefur sam­ein­ast Straumi og heitir Kvika, ekki geta tjáð sig efn­is­lega um hvort nafn­greindir ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki eru, eða eru ekki, í við­skiptum við bank­ann. Bankinn geti ekki rofið trúnað um við­skipta­vini eða ein­stök við­skipti en full­yrðir að vinnu­lag bank­ans er í öllum til­vikum í fullu sam­ræmi við þau lög sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Í yfir­lýs­ing­unni var einnig fjallað um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við stjórn­endur MP banka. Þar sagði meðal ann­ars: „Í fréttum hefur jafn­framt verið fjallað um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við MP banka. Rétt er að fjöl­skyldu­tengsl eru á milli for­stjóra bank­ans og for­sæt­is­ráð­herra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bank­ans.“

Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri Kviku (áðurMP banka) er kvæntur systur Sig­mundar Davíðs. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar MP banka, er auk þess einn nán­asti ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í efna­hags­málum og hefur gengt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir hann. 

Önnur systirin ber af sér sakir

Malín tjáði sig um málið í sam­tali við Vísi sama dag og það rataði í fjöl­miðla.

Þar sagð­ist hún ekki hafa tekið þátt í því að skrifa fjár­kúg­un­ar­bréfið til for­sæt­is­ráð­herra og því hafi hún ekki tekið þátt í fjár­kúg­un­inni. „Kjarni máls­ins er að þarna bland­ast ég inn í atburða­rás sem ég hvorki skipu­lagði né tengd­ist nokkurn hátt nema fjöl­skyldu­böndum,“ sagði Malín.

Hún sagði að Hlín Ein­ars­dóttir, systir hennar og fyrr­ver­andi rit­stjóri Bleikt.is, hefði skrifað og sent bréfið. Hún hafi ekki trúað því að nokkur tæki bréfið alvar­lega. Malín við­ur­kenndi fyrir lög­reglu að hafa haft vit­neskju um málið og að hún keyrði systur sína á vett­vang í Hafn­ar­firði, þar sem for­sæt­is­ráð­herr­ann átti að skilja eftir fjár­muni sam­kvæmt fyr­ir­mælum bréfs­ins. „Ég bíð í bílnum á meðan hún ætlar að athuga hvort sitt ætl­un­ar­verk hafi tek­ist en þegar ég sé í hvað stefnir þá ætla ég bara að keyra í burtu, því þetta var ekki það sem ég hafði hugsað mér.“

Hlín fór í við­tal við DV þann 19. júní 2015. Þar sagði hún systur sína hafa tekið fullan þátt í fjár­kúg­un­inni og að ástæðan fyrir henni hafi verið fjár­hags­vand­ræði þeirra systra. Þar kom einnig fram að þegar syst­urnar voru hand­teknar hafi þær ætlað að sækja tösku sem inni­hélt átta millj­ónir króna í reiðufé. Hlín sagði í við­tal­inu að hún hafi glímt við miklar geð­rask­anir á þessum tíma og að hún hafi verið lögð inn á geð­deild í kjöl­far atburð­anna.

Spurningum ósvarað

Eftir standa ansi margar spurn­ingar um þetta for­dæma­lausa mál. Til dæmis hefur enn ekki verið greint frá því nákvæm­lega hvers eðlis þær upp­lýs­ingar séu sem átti að nota til að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra þjóð­ar­innar. Þ.e. bréfið hefur ekki verið birt.

Það hefur heldur ekki verið greint frá því með nægi­lega skýrum hætti hvernig kaup Pressunnar á DV voru fjár­mögnuð haustið 2014. Kjarninn spurði Elfu Ýr Gylfa­dóttur, fram­kvæmda­stýru Fjöl­miðla­nefndar, um það í júní 2015 hvort kallað hafi verið eftir upp­lýs­ingum um fjár­mögnun þegar kaup á fjöl­miðlum eiga sér stað. Hún sagði að svo væri ekki. Hins vegar hafi verið óskað eftir upp­lýs­ingum um yfir­ráð ef þau eru önnur en skráð eign­ar­hald. „Það telj­ast yfir­ráð ef ein­hver annar en skráður eig­andi getur haft áhrif á rekstur og stjórnun fyr­ir­tækis.“

Fjöl­miðla­nefnd fór yfir sam­runa Vef­pressunnar og DV árið 2014 og kann­aði þá meðal ann­ars mögu­leg yfir­ráð utan skrá­setts eign­ar­halds. Elfa sagði að for­svars­menn hins sam­ein­aða útgáfu­fé­lags hafi stað­fest í tölvu­pósti að ekki væru í gildi hlut­hafa­sam­komu­lag, lána­samn­ingar né annað sem fellur undir skil­grein­ing­una um yfir­ráð. Nefndin fór aftur yfir sam­run­ann í dag í ljósi fregna af fjár­kúg­un­ar­til­raun gagn­vart for­sæt­is­ráð­herra.

Í gær var svo greint frá því að syst­urnar hafi verið ákærðar fyrir fjár­kúgun og að málið verði þing­fest í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur eftir tæpan hálfan mánuð.

Frétta­skýr­ingin var upp­færð 3. nóv­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár