Segir Framsóknarmenn hafa viljað DV og að stór sameining sé í vændum

Ólafur M. Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri mjólk­ur­bús­ins Kú og fyrrum stjórn­ar­for­maður DV, segir að Hrólfur Ölvisson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi þrí­vegis fundað með sér undir því yfir­skini að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórn­ar­for­maður DV, en hann sagði sig úr stjórn­inni í maí í fyrra. Kjarninn sendi Hrólfi fyr­ir­spurn um málið í gær­morgun en svar hefur ekki borist. Þá svar­aði ekki á skrif­stofu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar hringt var þangað.

[quote font="0" align="right"]Hann segir að í kjöl­farið hafi Þor­steinn sagt honum að í bígerð væri stór sam­ein­ing DV við annan fjöl­miðil[/quote]

Ólafur var beð­inn um að taka sæti í stjórn DV að nýju eftir að nýir eig­endur, undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar, tóku við miðl­inum í sept­em­ber. Hann segir að í kjöl­farið hafi Þor­steinn sagt honum að í bígerð væri stór sam­ein­ing DV við annan fjöl­miðil. Heim­ildir Kjarnans herma að fjöl­miðl­arnir sem Þor­steinn hafi áhuga á að sam­ein­ast séu Vef­pressan (sem rekur m.a. Eyjuna, Bleikt og Pressuna), Frétta­tím­inn og/eða Útvarp Saga. Ein­hverjar við­ræður hafa átt sér stað við að minnsta kosti hluta þess­arra fjöl­miðla. Kjarninn hefur ítrekað reynt að ná sam­bandi við Þorstein sím­leiðis síð­ustu tvo daga en án árang­urs.

Mikil átök um DV


Síð­sum­ars hófust mikil átök um eign­ar­hald DV þegar hópur undir for­ystu Þor­steins Guðna­sonar vildi fá meiri­hluta í stjórn í takt við eign sína.

Á starfs­manna­fundi sem hald­inn var dag­inn eftir að Þor­steinn og sam­starfs­menn hans náðu yfir­tökum á DV, og ráku Reyni Trausta­son fyrrum aðal­eig­anda og rit­stjóra úr starfi, kom fram að Þor­steinn ætl­aði sér ekki að eiga hlut sinn í DV lengi. Kjarninn komst yfir upp­töku af fund­inum þar sem Þor­steinn full­yrðir þetta.

Þor­steinn sagði einnig á fund­inum að eign­ar­hald hans væri að mestu til­komið vegna þess að Gísli Guð­munds­son, kenndur við B&L, hefði lánað Reyni Trausta­syni fé fyrir tveimur árum og fram­selt kröfu vegna þess láns til Þor­steins. Kaup Þor­steins á öðrum hlutum í DV, meðal ann­ars hlut Lilju Skafta­dóttur, voru fjár­mögnuð með eigin fé og lánsfé. Allt í allt segir Þor­steinn að hann og við­skipta­fé­lagar hans hafi sett 85 millj­ónir króna í DV.

Stór sameining í bígerð


Ólafur M. Magn­ús­son átti hlut í DV um skeið og sat sem stjórn­ar­for­maður í eign­ar­halds­fé­lagi mið­ils­ins þar til í maí 2013. Í sam­tali við Kjarnann seg­ist hann hafa verið beð­inn, af Þor­steini, að koma aftur inn í stjórn eftir að nýir eig­endur voru teknir við. „Þeir vildu vita hvort ég væri til­bú­inn að koma og taka til í þessum rekstri eins og ég hafði gert með Reyni og félögum með ágætis árangri. Ég sagði fyrst að ég væri svo sem alveg til í að skoða þetta, en það væri hins vegar mikið að gera hjá mér. Síðan er ég kos­inn í stjórn DV, og það til­kynnt opin­ber­lega, án þess að það hafi verið rætt neitt frekar við mig.“

[caption id="attachment_10786" align="alignnone" width="624"] Ólafur M. Magn­ús­son hefur verið staðið í deilum við Mjólk­ur­sam­söl­una und­an­farin ár. Vegna fjár­hags­vanda neydd­ist hann meðal ann­ars til að selja Mjólku, fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði og stýrði, til Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er auk þess á meðal eig­enda Mjólk­ur­sam­söl­unnar.[/caption]

Í kjöl­farið hafði Þor­steinn Guðnason, sem þá var orð­inn stjórn­ar­for­maður DV, sam­band við Ólaf og bað hann um að taka að sér for­manns­sæti í nefnd sem átti að taka rekstur DV í gegn. Ólafur seg­ist strax hafa séð að hann gæti ekki tekið að sér svo mikla auka­vinnu. „Ég var mjög upp­tek­inn í mínum rekstri og sagði Þor­steini það. Hann sagði á móti að þetta myndi ekki standa yfir mjög lengi. Hann væri að biðja mig um að taka þetta starf í einn og hálfan til tvo og hálfan mánuð. Í bígerð væri stór sam­ein­ing. Þá vissi ég hvað bjó að baki og sagði mig frá þessu.“

Segir Framsóknarflokkinn vilja DV


Aðspurður um hvað hann eigi við með ummælum sínum seg­ist Ólafur hafa grun­semdir um að sterk pen­inga­öfl, sem teng­ist Fram­sókn­ar­flokknum, séu að kom­ast yfir DV. Vilji til þess hafi staðið yfir lengi.

[quote font="0" align="right"]Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því hvort að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. [/quote]

Því til stuðn­ings segir Ólafur að Hrólfur Ölvisson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi komið þrí­vegis á sinn fund þegar hann var stjórn­ar­for­maður DV. Til­gang­ur­inn var að kanna hvort menn tengdir Fram­sókn­flokknum gætu keypt sig inn í DV. „Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. Það yrði auð­vitað ekki flokk­ur­inn sjálfur, heldur menn sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga myndi útvega fjár­muni til þess að gera það. Ég ljáði auð­vitað aldrei máls á þessu.“

Samþykktum breytt svo DV gæti sameinast öðrum


Á hlut­hafa­fundi DV, sem fram fór 8. októ­ber síð­ast­lið­inn, voru gerðar breyt­ingar á sam­þykktum félags­ins. Þor­steinn Guðnason sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­farið þar sem sagði meðal ann­ars að DV geti stækkað innan frá, til dæmis með yfir­töku eða sam­ein­ingu við önnur félög á fjöl­miðla­mark­aðnum. „Senni­lega mun hvoru tveggja ger­ast. Til að renna enn styrk­ari stoðum und­ir fé­lagið hafa for­svars­menn þess átt í við­ræðum við aðra fjöl­miðla um sam­starf eða við­skipti. Vinna við stefnu­mót­un mun m.a. leiða í ljós með hvaða hætti slíkt sam­starf eða við­skipti bera að. Mun frek­ar verða greint frá þessu á næstu dög­um, auk þess sem frek­ari skipu­lags­breyt­ing­ar eru fyr­ir­hug­aðar í ljósi manna­breyt­inga sem urðu ný­verið inn­an fyr­ir­tæk­is­ins.“

Ólafur M. Magn­ús­son hefur staðið í deilum við Mjólk­ur­sam­söl­una und­an­farin ár. Vegna fjár­hags­vanda neydd­ist hann meðal ann­ars til að selja Mjólku, fyr­ir­tæki sem hann stofn­aði og stýrði, til Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Kaup­fé­lag Skag­firð­inga er auk þess á meðal eig­enda Mjólk­ur­sam­söl­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár