Hlín: Fjárhagserfiðleikar ástæða fjárkúgunar - kröfðust átta milljóna króna af Sigmundi Davíð

Hlín Ein­ars­dóttir, sem hefur játað að hafa reynt að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra, skrif­aði fjár­kúg­un­ar­bréfið á tölvu, stíl­aði það á Sigmund Davíð Gunn­laugs­son sjálfan og systir hennar prent­aði það út á skrif­stofu Morg­un­blaðs­ins, þar sem hún starf­aði. Hlín segir systur sína hafa tekið fullan þátt í fjár­kúg­un­inni og að ástæðan fyrir henni hafi verið fjár­hags­vand­ræði þeirra systra. Þetta kemur fram í við­tali við Hlín í DV í dag. Þar kemur einnig fram að þegar syst­urnar voru hand­teknar hafi þær ætlað að sækja tösku sem inni­hélt átta millj­ónir króna í reiðufé. Hlín segir í við­tal­inu að hún hafi glímt við miklar geð­rask­anir á þessum tíma og að hún hafi verið lögð inn á geð­deild í kjöl­far atburð­anna.

Þar vill hún ekki greina frá inni­haldi fjár­kúg­un­ar­bréfs­ins og segir að sú ákvörðun hafi verið tekin í sam­ráði við lög­fræð­ing sinn. Hlín segir þó að fyrstu fréttir af inni­hald­inu, sem frétta­vef­ur­inn Vísir birti, hafi verið bók­staf­lega fabúler­aðar. "Frétta­flutn­ingur um að það tengd­ist yfir­töku á DV er upp­spuni frétta­manna." Aðspurð um hvort seinni tíma frétta­flutn­ingur af inni­hald­inu, að það snú­ist um að for­sæt­is­ráð­herra hafi átt að hafa beitt sér fyrir ein­hvers­konar fjár­hags­legri fyr­ir­greiðslu fyrir Björn Inga Hrafns­son, fyrrum sam­býl­is­mann Hlínar og aðal­eig­anda DV, vill hún ekki svara því fyrr en rann­sókn máls­ins lýkur.

Segir Malín hafa tekið fullan þátt í fjárkúguninni


Hlín segir systur sína, Malín Brand, hafa komið að báðum þeim málum sem henni tengj­ast og hafa verið í umræð­unnni und­an­farnar vikur. Hitt málið snýst um meinta nauðgun sem Hlín hafi átt að hafa orðið fyrir. Sá sem hefur verið kærður fyrir nauðg­un­ina, fyrrum sam­starfs­maður hennar, hefur kært syst­urnar fyrir fjár­kúgun en hann greiddi þeim nokkur hund­ruð þús­und krónur fyrir að kæra sig ekki. Maðurinn neitar sök.

Malín hefur, í við­tölum og yfir­lýs­ingu sem hún sendi á fjöl­miðla, varpað sök­inni í þessum málum yfir á Hlín. Hlín segir hins vegar að systir sín hafi komið jafn mikið að báðum mál­unum og hún sjálf. "Það eru hrein ósann­indi af hennar hálfu að ég hafi ein staðið í þessu og að hún hafi ein­hvern veg­inn dreg­ist inn í þetta út af mér. Það segir sig bara sjálft þegar hún kemur með mér í Hafn­ar­fjörð að sækja tösk­una,“ en í fjár­kúg­un­ar­bréf­inu báðu þær um að pen­ing­arnir sem þær vildu að for­sæt­is­ráð­herra greiddi yrðu afhentir í Hafn­ar­firði.

Hug­myndin að fjár­kúg­un­inni hafi kviknað eina kvöld­stund þegar Malín gisti hjá Hlín. "Malín átti í miklum fjár­hags­erf­ið­leikum og ég líka. Þessi hug­mynd kom út frá þess­ari stöðu sem við vorum í. Malín gisti hjá mér eitt kvöldið og þessi hug­mynd kvikn­aði."

Skrifað á tölvu og prentað út í Hádegismóum


Hlín segir margt í frétta­flutn­ingi af bréf­inu einnig vera rangt. Það hafi ekki verið búið til úr útklipptum bók­stöfum úr gömlum frétta­blöðum heldur verið skrifað í tölvu. Bréfið hafi ekki verið stílað á eig­in­konu Sig­mundar Davíðs heldur hann sjálfan þó að nafn eig­in­konu hans hafi verið ritað á umslagið sem bréfið var sent í og það var prentað út á skrif­stofum Morg­un­blaðs­ins þar sem Malín starf­aði. Hlín segir að syst­urnar hafi skrifað bréfið í sam­ein­ingu, keyptu frí­merki og umslag og sent bréfið. "Systir mín tók þátt í þessu öllu og því var mér brugðið þegar hún kom fram í fjöl­miðlum og skellti skuld­inni á mig og minn sjúk­dóm". Syst­urnar hafa ekki talað saman síðan þær voru hand­teknar í hraun­inu í Hafn­ar­firði þann 29. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár