Hrólfur hafnar því að Framsókn hafi viljað komast yfir DV

Hrólfur Ölvisson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafnar því að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi sóst eftir því að eign­ast hlut í DV. Kjarninn hafði það eftir Ólafi M. Magn­ús­syni, fram­kvæmda­stjóra mjólk­ur­bús­ins Kú og fyrrum stjórn­ar­for­manni DV, að Hrólfur hafi þrí­vegis fundað með sér undir því yfir­skini að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum vildu kaupa DV. Þetta hafi gerst á þeim tíma sem Ólafur var stjórn­ar­for­maður DV, en hann sagði sig úr stjórn­inni í maí í fyrra. Kjarninn sendi Hrólfi fyr­ir­spurn um málið í gær­morgun sem hann svar­aði ekki, Þá svar­aði ekki á skrif­stofu Fram­sókn­ar­flokks­ins þegar hringt var þangað.

Í yfir­lýs­ingu segir Hrólfur „Vegna frétta í Kjarn­anum og öðrum frétta­miðlum í dag um að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafi sóst eftir því að eign­ast hlut í DV, skal upp­lýst að það er rangt. Hvorki ég fyrir hönd flokks­ins, né Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur farið þessa á leit og full­yrð­ingar Ólafs Magn­ús­sonar þar um eru rangar. Ólafur Magn­ús­son kom nokkrum sinnum á minn fund til að ræða ýmis per­sónu­leg mál­efni, bæði fjár­hags­leg og önnur. Aldrei var einu orði minnst á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefði hug á að eign­ast hlut í blað­inu, en Ólafur hafði orð á því að fyrra bragði að DV væri í fjár­þröng og þyrfti á auknu hlutafé að halda.

Í frétt Kjarnans er eft­ir­far­andi haft orð­rétt eftir Ólafi: „Þegar ég var stjórn­ar­for­maður DV á sínum tíma þá kom fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins og hitti mig nokkrum sinnum og spurði hvort ég gæti beitt mér fyrir því að menn tengdir flokknum gætu kom­ist í að kaupa bréf í DV með ein­hverjum hætti. Það yrði auð­vitað ekki flokk­ur­inn sjálfur, heldur menn sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga myndi útvega fjár­muni til þess að gera það. Ég ljáði auð­vitað aldrei máls á þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár