Eggert Skúlason annar ritstjóri DV

Stjórn DV ehf hefur ákveðið að ráða Kolbrúnu Berg­þórs­dóttur og Eggert Skúlason sem rit­stjóra DV. Þá hefur Hörður Ægisson verið ráð­inn við­skipta­rit­stjóri blaðs­ins. Verða þau Kolbrún, Eggert og Hörður jafn­framt rit­stjórar dv.is. DV mun næst koma út 9. jan­úar 2015 og í byrjun næsta árs verða kynntar marg­vís­legar breyt­ingar á blað­inu.

Hall­grímur Thor­steins­son hættir sem rit­stjóri DV en starfar áfram á vegum Pressunnar og mun leiða stefnu­mótum á sviði tal­málsút­varps. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem barst fjöl­miðlum rétt í þessu.

Eggert Skúlason starf­aði á árum áður við fjöl­miðlun, meðal ann­ars á Stöð 2. Und­an­farin ár hefur hann rekið eigið almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og meðal ann­ars starfað fyrir kröfu­hafa föllnu bank­ana. Fyr­ir­tæki Eggerts. Franca ehf.,var líka ráðið til að gera úttekt á DV eftir að nýir eig­endur tóku við fjöl­miðl­inum í haust. Starfs­menn DV sendu í kjöl­farið frá sér yfir­lýs­ingu þar sem þeir sögðu úttekt­ina illa unna og að hún virt­ist að mestu byggja á skoð­unum úttekt­ar­höf­unda sjálfra.

Kolbrún Berg­þórs­dóttir starf­aði síð­ast á Morg­un­blað­inu. Hún er þekktur bók­mennta­gagn­rýn­andi og hefur meðal ann­ars starfað sem slíkur í þætti Egils Helga­sonar, Kiljunni, sem sýndur er á RÚV. Hú var á árum áður yfir­maður menn­ing­ar­mála á Frétta­blað­inu og starf­aði einnig á Blaðinu sál­uga.

Hörður Ægisson hefur starfað sem við­skipta­blaða­maður á Morg­un­blað­inu und­an­farin ár.
Í til­kynn­ingu sem Steinn Kári Ragn­ars­son sendi á fjöl­miðla segir að „til þess að ná fram skipu­lags­breyt­ingum og hag­ræða í rekstri var nokkrum starfs­mönnum DV sagt upp í dag. Verða enn­fremur gerðar breyt­ingar á aðkeyptu efni í hag­ræð­ing­ar­skyni. Er það í sam­ræmi við mark­mið nýrrar stjórnar DV að félagið verði rekið með hagn­aði árið 2015. Næsti útgáfu­dagur DV er föstu­dag­ur­inn 9. jan­úar næst­kom­andi. Frétta­vef­ur­inn dv.is verður þó áfram rek­inn allan sól­ar­hring­inn eins og verið hefur.

Í byrjun nýs árs verða kynntar marg­vís­legar breyt­ingar á DV sem ætlað er að fjölga áskrif­endum og auka lausa­sölu blaðs­ins. Jafn­framt verður ráð­ist í ýmsar mark­aðs­að­gerðir til að styrkja stöðu blaðs­ins, en það var stofnað sem dag­blaðið Vísir árið 1910".

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár