Yfirlýsing MP banka: Tengsl stjórnenda við forsætisráðherra hafa engin áhrif á rekstur

MP banki seg­ist ekki geta tjáð sig efn­is­lega um hvort nafn­greindir ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki eru, eða eru ekki, í við­skiptum við bank­ann. Bankinn geti ekki rofið trúnað um við­skipta­vini eða ein­stök við­skipti en full­yrðir að vinnu­lag bank­ans er í öllum til­vikum í fullu sam­ræmi við þau lög sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem bank­inn sendi frá sér vegna frétta um að upp­lýs­ingar sem áttu að koma Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra illa, og hótað var að gera opin­berar í fjár­kúg­un­ar­bréfi sem stílað var á eig­in­konu hans, snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka. Aðal­eig­andi Pressunnar er Björn Ingi Hrafns­son.

Í yfir­lýs­ing­unni er einnig fjallað um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við stjórn­endur MP banka. Þar segir meðal ann­ars: "Í fréttum hefur jafn­framt verið fjallað um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við MP banka. Rétt er að fjöl­skyldu­tengsl eru á milli for­stjóra bank­ans og for­sæt­is­ráð­herra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bank­ans."

Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri MP banka er kvæntur systur Sig­mundar Davíðs. Sigurður Hann­es­son, fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar MP banka, er einn nán­asti ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra í efna­hags­málum og hefur gengt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir hann.

Yfirlýsing MP banka:


MP banki vill koma eft­ir­far­andi á fram­færi í tengslum við rann­sókn lög­reglu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins á til­raun til þess að beita for­sæt­is­ráð­herra Íslands og fjöl­skyldu hans fjár­kúgun:

„Fjöl­miðlar hafa fjallað um tengsl MP banka við rann­sókn lög­reglu á til­raun til að kúga fé út úr for­sæt­is­ráð­herra. Fullyrt hefur verið í fréttum að í bréfi sem sent var á heim­ili for­sæt­is­ráð­herra komi fram að ráð­herr­ann hafi beitt sér fyrir láni frá MP banka til til­greindra fyr­ir­tækja. Bréfið sem um ræðir er sönn­un­ar­gagn í lög­reglu­rann­sókn og hefur ekki verið gert opin­bert. For­svars­menn MP banka hafa ekki séð bréfið og þekkja ekki þær ásak­anir sem þar eru settar fram.

MP banki getur ekki tjáð sig efn­is­lega um hvort nafn­greindir ein­stak­lingar eða fyr­ir­tæki eru, eða eru ekki, í við­skiptum við bank­ann. Bankinn getur ekki rofið trúnað um við­skipta­vini eða ein­stök við­skipti. Við getum þó full­yrt að vinnu­lag bank­ans er í öllum til­vikum í fullu sam­ræmi við þau lög sem gilda um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Í fréttum hefur jafn­framt verið fjallað um tengsl for­sæt­is­ráð­herra við MP banka. Rétt er að fjöl­skyldu­tengsl eru á milli for­stjóra bank­ans og for­sæt­is­ráð­herra. Þau tengsl hafa legið fyrir lengi og hafa engin áhrif haft á rekstur bank­ans. MP banki er starf­ræktur með fag­legum hætti þar sem hagur við­skipta­vina og hlut­hafa bank­ans er hafður að leið­ar­ljósi.

Einnig hefur verið fjallað um þá stað­reynd að starfs­menn bank­ans hafa fengið leyfi frá störfum til að vinna með stjórn­völdum að vanda­sömum úrlausn­ar­efnum sem varða þjóð­ar­hag, þar með talið aflétt­ingu gjald­eyr­is­hafta. Hjá MP banka vinna margir hæfir sér­fræð­ingar. Stjórn­völd hafa leitað eftir því að fá að njóta starfs­krafta þriggja starfs­manna bank­ans vegna tíma­bund­inna verk­efna. Einn þeirra hætti hjá bank­anum til að geta sinnt slíku verk­efni og tveimur þeirra hefur bank­inn veitt leyfi frá störfum til að sinna þessum verk­efnum. MP banki hefur ekki hags­muni af því en lítur á það sem sam­fé­lags­lega skyldu bank­ans að starfs­fólkið fái leyfi frá störfum til að sinna þessum þjóð­hags­lega mik­il­vægu verk­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár