Björn Ingi Hrafnsson keypti DV að stórum hluta með seljendaláni

Stór hluti kaup­verðs­ins sem Pressan ehf., sem er að mestu í eigu Björns Inga Hrafns­sonar, greiddi fyrir um 70 pró­sent hlut í DV ehf. var fjár­magn­aður með láni frá selj­endum hlut­ar­ins. Sá hópur er leiddur af Þor­steini Guðn­a­syni og tók yfir DV í haust eftir harð­vítug átök við Reyni Trausta­son, fyrrum rit­stjóra DV og minni­hluta­eig­anda, og hóp sem honum teng­ist. Átökin end­uðu með að Þor­steinn og við­skipta­fé­lagar hans tóku yfir DV og sögðu Reyni upp störfum.

Upp­lýs­ingar um selj­enda­lánið komu fram í frétt á Eyjunni, sem er í eigu Pressunnar, í dag þar sem til­kynnt var að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi heim­ilað sam­runa Pressunnar og DV að lok­inni rann­sókn. Það mun ekk­ert aðhaf­ast frekar í þeim málum. Samkvæmt frétt Eyjunnar hefur sam­run­inn ekki með sér í för röskun á sam­keppni og því sé ekki þörf á íhlutun eft­ir­lits­ins í formi ógild­ingar eða með setn­ingu skil­yrða.

Pressan á vef­miðl­anna Eyjan.is, Pressan.is og Bleikt.is. Við sam­runan bæt­ist blaðið DV og vef­ur­inn DV.is í safnið.

[caption id="attachment_11029" align="alignnone" width="1024"] Björn Ingi Hrafns­son, stjórn­ar­for­maður og útgef­andi DV og Pressunnar.[/caption]

Nýir hluthafar koma inn


Í frétt Eyjunnar er haft eftir Birni Inga að nýir hlut­hafar muni koma inn í Pressuna í tengslum við kaupin auk þess sem stór hluti kaup­verðs­ins sé fjár­magn­aður með láni frá selj­endum. Tilkynnt verður um hvernig eign­ar­hald félags­ins sé háttað fyrir ára­mót.

Kjarninn greindi frá því á mið­viku­dag að ný stjórn DV hefði verið kjörin á hlut­hafa­fundi sem hald­inn var á skrif­stofu mið­ils­ins í þann dag. Björn Ingi Hrafns­son tók þá við sem stjórn­ar­for­maður félags­ins. Auk hans voru Arnar Ægisson, fram­kvæmda­stjóri Vef­pressunnar, og lög­mað­ur­inn Sigurvin Ólafsson kjörnir í þriggja manna stjórn. Vara­maður í stjórn verður Jakob Hrafns­son, bróðir Björns Inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár