„Ég er mjög stolt af því hvert ég er komin“

Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska kvenna­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, lýsir því hvernig hún upp­lifði kvíða, ein í atvinnu­mennsku erlendis. Að lokum lenti hún á vegg og ákvað að leita sér hjálpar, sem skil­aði sér ríku­lega. Á ferl­inum hefur hún tek­ist á við áskor­anir, sem hafa gert hana að sterk­ari mann­eskju og hjálpað henni að finna hvað það er sem gerir hana ham­ingju­sama.

„Ég er mjög stolt af því hvert ég er komin“

„Ég var týpan sem var dálítið stolt af því að þurfa aldrei að leita sér hjálpar og bíta bara á jaxl­inn,“ segir Sara Björk Gunn­ars­dóttir, fyr­ir­liði íslenska kvenna­lands­liðs­ins. Sara hefur opnað sig fyrir landi og þjóð í bók­inni Óstöðv­andi, sem er vænt­an­leg í bóka­búðir í lok mán­að­ar­ins. 

Sífellt áreiti 

„Maður er auð­vitað ekk­ert alltaf ham­ingju­samur,“ segir Sara Björk. „Eins og sam­fé­lagið er í dag þá eru sífelldar trufl­anir og áreiti sem gera það að verkum að maður missir sjónar á því hvað það er sem gerir mann ham­ingju­saman. Þess vegna er svo mik­il­vægt að minna sjálfan sig á það. Fyrir mér eru það ýmsir litlir og stórir hlutir sem auka ham­ingj­una, að spila fót­bolta er þar ofar­lega á lista. Ég hef einnig gaman af því að elda góðan mat og eiga gott kvöld með kærast­anum. Kíkja í kaffi með vinum eða heyra í fjöl­skyld­unni.“

Þá skiptir miklu máli að hugsa …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár