Helgi Seljan um Moggann: „Föndra upp bjarghring utan um nýjan forstjóra Samherja“

Helgi Seljan gagn­rýnir umfjöllun Morg­un­blaðs­ins um Sam­herj­a­málið og segir blaða­mann „eins og barn sem komið hefur að jóla­svein­inum skegg­lausum“.

Helgi Seljan um Moggann: „Föndra upp bjarghring utan um nýjan forstjóra Samherja“
Helgi Seljan Helgi vonar að árétt­ing hans sé ekki of ein­hliða fyrir „hinn ball­anser­aða for­stjóra Samherja“. Mynd: Kveikur

Helgi Seljan segir spurn­ingar Morg­un­blaðs­ins til Björg­ólfs Jóhanns­sonar, nýs for­stjóra Samherja, „meika engan sens“. Á for­síðu blaðs­ins í dag segir Björgólfur að umfjöllun Helga og þátt­ar­ins Kveiks á RÚV um mútu­greiðslur Samherja vegna Namib­íu­veiða fyr­ir­tæk­is­ins hafi verið ein­hliða.

„Það er næsta aðdá­una­vert að vitna hvernig blaða­maður Morg­un­blaðs­ins reynir að föndra upp bjarg­hring utan um nýjan for­stjóra Samherja í blaði dags­ins, þegar hann spyr, eins og barn sem komið hefur að jóla­svein­inum skegg­lausum, hvort Sam­herj­a­menn haldi ekki örugg­lega að það sé engin hætta á öðru en að Skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafi haft öll gögn um afr­íku­starf­sem­ina til rann­sóknar áður, eftir hús­leit frá 2012?“ skrifar Helgi í færslu á Facebook.

„Vonandi er þessi árétt­ing ekki of ein­hliða fyrir hinn ball­anser­aða for­stjóra Samherja“

Í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera upp úr Sam­herj­a­skjöl­unum var fjallað um mútu­greiðslur Samherja vegna Namib­íu­veiða fyr­ir­tæk­is­ins sem hófust árið 2012. „Ég kann illa við að blasta því svona á þá félaga í aðdrag­anda aðvent­unnar, en tvennt gerir það að að verkum að spurn­ingin og svar for­stjór­ans, meika engan sens: Fyrst vegna þess að meg­in­hluti atburð­anna sem um er rætt ger­ast eftir 2012. En svo og ekki síst sú stað­reynd að hús­leitin fór fram á Íslandi og náði ekki til þeirra fyr­ir­tækja sem um ræðir í afr­íku. En það má vona. Vonandi er þessi árétt­ing ekki of ein­hliða fyrir hinn ball­anser­aða for­stjóra Samherja,“ skrifar Helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár