Vill binda í lög að horft sé til loftslagssjónarmiða þegar veittar eru ívilnanir til fjárfestingaverkefna

Atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráð­herra mun ekki hafna íviln­ana­beiðnum nema laga­for­sendur standi til þess. Katrín Jak­obs­dóttir hefur lagt fram frum­varp að lofts­lags­sjón­ar­mið fái vægi sem eitt af skil­yrðum íviln­ana til nýfjár­fest­inga.

Vill binda í lög að horft sé til loftslagssjónarmiða þegar veittar eru ívilnanir til fjárfestingaverkefna

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hefur lagt fram frum­varp um að fest verði í lög að horft sé til mark­miða Íslands í lofts­lags­málum þegar veittar eru íviln­anir til nýfjár­fest­inga. Lagt er til að því skil­yrði sé bætt inn í 5. gr. laga um íviln­anir til nýfjár­fest­inga að fjár­fest­ing­ar­verk­efni þurfi að sam­ræm­ast skuld­bind­ingum Íslands og mark­miðum íslenskra stjórn­valda um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda svo að til álita geti komið að veita íviln­anir.

Í stefnu­yf­ir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar sem kynnt var þann 10. jan­úar er því lýst yfir að „ekki verði komið á íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­ingum vegna nýrrar meng­andi stór­iðju“. Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hefur vísað því á bug að laga­breyt­inga sé þörf til að fram­fylgja þess­ari stefnu, en atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neytið hefur hins vegar stað­fest í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið að ráð­herra iðn­að­ar­mála muni ekki fara gegn vilja nefndar um veit­ingu íviln­ana og hafna íviln­ana­beiðnum vegna verk­efna sem upp­fylla skil­yrði laga um íviln­anir til nýfjár­fest­inga nema sér­stakar laga­for­sendur standi til þess.

Frumvarp Katrínar er til þess fallið að tryggja að laga­stoð sé fyrir því að ráð­herra hafni beiðni um íviln­anir á grund­velli umhverf­is­verndar- og lofts­lags­sjón­ar­miða. Lagt er til að í 5. gr. laga um íviln­anir til nýfjár­fest­inga, þar sem skil­yrði til íviln­ana­samn­inga eru talin upp, bæt­ist eft­ir­far­andi atriði: „að sýnt sé fram á að fjár­fest­ing­ar­verk­efnið sam­ræm­ist skuld­bind­ingum Íslands og mark­miðum íslenskra stjórn­valda um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda“.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er bent á að íslensk stjórn­völd hafi lýst því yfir að hér á landi skuli stefnt að því að árið 2030 verði losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda 40% minni en árið 1990. Þetta er sama mark­mið hið sama og Evr­ópu­sam­bands­lönd og Noregur hafa sett sér. „Mik­il­vægt er að umrætt mark­mið náist og ættu því fjár­fest­ing­ar­verk­efni sem njóta íviln­ana af hálfu íslenska rík­is­ins að vera þess eðlis að þau stuðli að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda eða séu hlut­laus gagn­vart þeim,“ segir í grein­ar­gerð­inni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár