Niðurskurður hafi kallað fram „hughrif“ um ótryggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Bjarni Bene­dikts­son flutti fyrstu stefnu­ræðu sína sem for­sæt­is­ráð­herra í kvöld.

Niðurskurður hafi kallað fram „hughrif“ um ótryggt aðgengi að heilbrigðisþjónustu

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra segir að nið­ur­skurður í heil­brigð­is­kerf­inu eftir hrun hafi kallað fram þau „hug­hrif“ hjá stórum hluta þjóð­ar­innar að sam­fé­lags­sátt­máli um tryggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hafi brostið.

Þetta kom fram í stefnu­ræðu Bjarna á Alþingi í kvöld. Sagði hann miklar áskor­anir framundan í heil­brigð­is­þjón­ustu en ekki væri hægt að leysa þær allar með nýju fjár­magni, enda væri fjár­magnið af „of skornum skammti“.

„Sterkar vís­bend­ingar eru um að nið­ur­skurður eftir hrun hafi kallað fram hug­hrif hjá stórum hluta þjóð­ar­innar um að sam­fé­lags­sátt­máli um tryggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hafi brostið. Aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála á síð­ustu árum hafa ekki náð að lækna þessi hug­hrif,“ sagði Bjarni í ræðu sinni og bætti við:

„Rík­is­stjórnin hefur með stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni gert heil­brigð­is­mál að for­gangs­verk­efni. Hluti af því verk­efni er að móta skýr­ari stefnu um hvernig við stýrum síauk­inni eft­ir­spurn og hvert skútan skuli sigla. Þjóðin eld­ist, tækn­inni fleygir fram, verð­mæta­sköpun þjóð­ar­bús­ins – sem standa verður undir heil­brigðis­út­gjöldum – eykst hægar en getan til að vinna á sjúk­dómnum. Og áskor­anir í heibrigð­is­þjón­ustu eru margar, við leysum þær ekki allar með nýju fjár­magni, til þess er fjár­magnið af of skornum skammti.“

Í við­tali við Morg­un­blaðið skömmu fyrir kosn­ingar full­yrti Bjarni Bene­dikts­son að 20 pró­sent sjúk­linga treysti sér ekki til að leita heil­brigð­is­þjón­ustu vegna bágr­ar fjár­hags­stöðu og að lang­ir biðlist­ar hefðu mynd­ast eft­ir lífs­nauð­syn­leg­um aðgerðum eins og hjarta­þræð­ing­um. Í stefnu­ræðu sinni í kvöld vís­aði hann hins vegar til ótryggs aðgengis að heil­brigð­is­þjón­ustu sem „hug­hrifa“ og sagð­ist vilja „lækna þau hug­hrif“. 

 

 

Hér má lesa stefnuræðu forsætisráðherra í heild:

 

Virðu­legur for­seti, góðir lands­menn.

Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar tók við á Bessa­stöðum þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn. Hin nýfædda rík­is­stjórn fær góðar ytri aðstæður í arf. Þannig er staða efna­hags­mála sterk og góðar horfur til fram­tíðar. Ný rík­is­stjórn tekur með sér frá alþing­is­kosn­ingum sterka kröfu um upp­bygg­ingu grunn­þjón­ustu og sam­fé­lags­legra inn­viða.

Stjórn­ar­sátt­mál­inn fjallar um inn­viða­upp­bygg­ingu og stöð­ug­leika. Inn­viða­upp­bygg­ingin er kjarn­inn í sátt­mál­anum, sama hvort litið er til heil­brigð­is­mála, mennta­mála, almanna­trygg­inga, fjöl­skyldu­mála, sam­göngu­mála eða nýsköp­unar. Jafn­framt vill rík­is­stjórnin byggja upp áfram­hald­andi jafn­vægi í efna­hags­málum.

Með hlið­sjón af þessu eru leið­ar­stef, eða gildi, rík­is­stjórn­ar­innar tvö; jafn­vægi og fram­sýni. Jafnvægi skapar nauð­syn­lega festu og aga – síg­andi lukka er best. Framsýni veitir kraft­inn til að byggja upp, kom­ast lengra, gera betur.

Beinum fyrst sjónum að jafn­vægi. Jafnvægi er flókið hug­tak, enda felur það í sér jafn­vægi í ólíkum aðstæðum og ólíkum verk­efnum. Við sækj­umst eftir fram­förum en um leið viljum við að þær færi okkur nýtt jafn­vægi – og aðlögun að bættri útkomu.

Þjóð­fé­lagið er safn þeirra ein­stak­linga sem það byggja, ein­stak­linga með ólíka sýn, hæfi­leika og skap­höfn.

 „En þó eru sumir sem láta sér lynda það, að lifa úti í horni, óáreittir og spakir”“ segir í ljóði Tómasar Guð­munds­sonar. „Því það er svo mis­jafnt sem menn­irnir leita að, og mis­jafn til­gang­ur­inn sem fyrir þeim vakir.“

Jafnvægi í þjóð­fé­lag­inu snýst ekki ein­göngu um ytri gæði. Það snýst einnig um það hvernig við nýtum þau til að rækta það sem býr innra með okkur. Vís­bend­ingar streyma inn sem benda til að við getum gert miklu betur, bæði sem þjóð og ein­stak­lingar, til að láta okkur líða vel. Of margir upp­lifa van­líðan, kvíði og þung­lyndi þjaka marga og því miður ekki síst unga fólkið okkar.Það er ekki létt­vægt í huga ung­lings, ef hann finnur til dep­urðar vegna þess að við­brögð við því sem hann setur inn á sam­fé­lags­miðil standa ekki undir vænt­ingum. Þetta er nýr veru­leiki sem við þurfum að hjálpa börn­unum okkar að fóta sig í.

Rík­is­stjórnin stýrir ekki ham­ingju ein­stak­linga en aðgerðir rík­is­stjórnar hafa vissu­lega áhrif á sigl­ingu þjóð­ar­skút­unnar, hvert hún stefnir, hvort á henni sé slag­síða og hvernig búið er að áhöfn­inni. Svo má leiða líkur að því að umræðan á Alþingi geti einnig haft áhrif á sál­ar­líf þjóð­ar­innar.

Jafn­vægið í þjóð­fé­lags­gerð­inni kemur nefni­lega bæði að ofan og að neðan. Það kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að vinna í því. Það er margt sem hefur þar áhrif. Sterkar vís­bend­ingar eru um að nið­ur­skurður eftir hrun hafi kallað fram þau hug­hrif hjá stórum hluta þjóð­ar­innar að sam­fé­lags­sátt­máli um tryggt aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu hafi brostið. Aukin útgjöld til heil­brigð­is­mála á síð­ustu árum hafa ekki náð að lækna þessi hug­hrif.

Rík­is­stjórnin hefur með stefnu­yf­ir­lýs­ingu sinni gert heil­brigð­is­mál að for­gangs­verk­efni. Hluti af því verk­efni er að móta skýr­ari stefnu um hvernig við stýrum síauk­inni eft­ir­spurn og hvert skútan skuli sigla. Þjóðin eld­ist og tækn­inni fleygir fram. Verð­mæta­sköpun þjóð­ar­bús­ins, sem standa verður undir heil­brigðis­út­gjöldum, eykst hægar en getan til að vinna á sjúk­dómum. Áskor­anir í heil­brigð­is­þjón­ustu eru margar. Við leysum þær ekki allar með nýju fjár­magni. Til þess er fjár­magnið af of skornum skammti.

Góð efna­hags­lega staða Íslands og gott líf­eyr­is­kerfi gera okkur samt sem áður betur í stakk búin en flestar aðrar þjóðir til að takast á við þennan vanda. Fram­leiðsla á hvern Íslend­ing, leið­rétt fyrir kaup­mætti, var ein sú hæsta í heimi árið 2015, um fjórð­ungi hærri en að með­al­tali í Evr­ópu­sam­band­inu. Þetta þýðir að við getum gert kröfu um að lífs­gæði hér á landi end­ur­spegli þessa sterku stöðu.

Jafnvægi felst einnig í að styðja þá til sjálfs­hjálpar sem aðstoðar þurfa við. Rík­is­stjórnin hyggst taka upp starfs­getu­mat og gera örorku­líf­eyr­is­kerfið sveigj­an­legra til að ýta undir þátt­töku á vinnu­mark­aði. Einnig mun hún leit­ast við að fólk með fötlun geti stýrt þjón­ust­unni sem það fær sjálft. Mark­miðið er að auka lífs­gæði og sam­fé­lags­lega virkni.

Ísland er fjöl­menn­ing­ar­sam­fé­lag, ríkt af mannauði sem verður að fá að njóta sín. Rík­is­stjórnin ætlar að auð­velda inn­flytj­endum að verða full­gildir og virkir þátt­tak­endur í íslensku sam­fé­lagi.

Góðir lands­menn,

Hér má enn taka dæmi af því hversu miklu jafn­vægið getur skipt fyrir sam­fé­lags­gerð­ina.  Ein helsta áskor­unin í flóknum heimi íslenskra fjöl­skyldna er jafn­vægið á milli vinnu og einka­lífs. Þar skipta aðgerðir í jafn­réttis- og fjöl­skyldu­málum miklu máli. Svo vitnað sé til Bríetar Bjarn­héð­ins­dóttur: „Vér heilsum glaðar fram­tíð­inni, þar sem karlar og konur vinna í bróð­erni saman að öllum lands­málum, bæði á heim­il­unum og á Alþingi.“ Þessi ald­ar­gamla draum­sýn Bríetar er nær því að verða að veru­leika nú en nokkru sinni áður og kannski nær því í okkar sam­fé­lagi en nokkru öðru. Rík­is­stjórnin mun gera sitt til að stuðla að því.

Síðast en ekki síst snýst jafn­vægi um efna­hags­mál. Það er mikil áskorun fyrir rík­is­stjórn að taka við góðu búi í efna­hags­málum. Það er ekki sjálf­gefið að því sé hægt að við­halda og aldrei gefi á bát­inn. Hér hefur ríkt góður hag­vöxtur í mörg ár og hagsagan kennir að magr­ari ár kunni að vera handan við hornið. Við þurfum að leita leiða til að auka jafn­vægi og minnka sveiflur, t.d. með betri sam­still­ingu pen­inga­stefnu, fjár­mála­stefnu hins opin­bera og vinnu­mark­aðar, með end­ur­skoðun ramma pen­inga­stefnu Seðla­bank­ans, með nýju vinnu­mark­aðslík­ani að nor­rænni fyr­ir­mynd og með nýjum stöð­ug­leika­sjóði sem haldi utan um arð af orku­auð­lindum.

Fjárlög árs­ins 2017 voru sam­þykkt í góðri sátt á Alþingi í des­em­ber. Í þeim er kveðið á um rúm­lega 50 millj­arða króna útgjalda­aukn­ingu frá árinu 2016, eða um 8% af útgjöldum rík­is­ins. Þessi hækkun er fyrst og fremst til vel­ferð­ar­mála og er for­dæma­laus. Hækkunin er til­komin vegna skýrra krafna sam­fé­lags­ins um aukin útgjöld til grunn­þjón­ustu og inn­viða. Aukin útgjöld rík­is­ins á tímum mik­ils hag­vaxtar eru almennt gagn­rýnd af hag­fræð­ingum því hag­kerfið þurfi ekki á inn­spýt­ingu að halda við slíkar aðstæður. Mik­il­vægt er þó að hafa í huga að þessi inn­spýt­ing í grunn­þjón­ustu er svar við ákalli sam­fé­lags sem gekk í gegnum sárs­auka­fullan nið­ur­skurð eft­ir­hrunsár­anna.

Tekist hefur vel að lækka skuldir rík­is­ins, sér­stak­lega með stöð­ug­leika­fram­lögum, en vaxta­gjöld eru þó enn alltof há. Í fjár­lögum er gert ráð fyrir að við greiðum um 70 millj­arða króna í vexti á árinu.   Það er 10 millj­örðum minna en fyrir tveimur árum en við erum samt með hæstu vaxta­gjöld í Evrópu sem hlut­fall af lands­fram­leiðslu. Það er því áfram brýnt verk­efni að lækka skuldir og þar með vaxta­gjöld rík­is­ins. Og það leiðir af sjálfu sér að það er stórt vel­ferð­ar­mál að lækka skuldir því þannig eykst svig­rúm til að gera betur á öllum sviðum. 

Jafn­vægið á milli auk­inna útgjalda í grunn­þjón­ustu og efna­hags­legs stöð­ug­leika er stærsta verk­efni þess­arar rík­is­stjórnar eins og margra ann­arra rík­is­stjórna á undan henni. Verk­efnið krefst ögunar og sam­stillts átaks. Rík­is­stjórnin kemur ekki ein að þessu verk­efni. Sam­still­ing hag­stjórnar er á margra höndum. 

Góðir lands­menn,

Víkjum þessu næst að hinu leið­ar­stefi stjórn­ar­sátt­mál­ans, fram­sýni.

„Fram­tíðin er ekki eins og hún var hér áður fyrr“ segir hnyttið spak­mæli sem mörgum er eignað. Spak­mælið lýsir síbreyti­legum heimi, fram­tíðin á morgun verður örugg­lega öðru­vísi en fram­tíðin í gær.

Ein­stak­lingar búa sig undir óræða fram­tíð með fram­sýni. Þeir reyna iðu­lega að gera það sem þeir telja að muni koma sér og sínum að gagni. Mennta sig, leggja fyrir, koma sér upp þaki yfir höf­uðið og koma börnum sínum sóma­sam­lega til manns.

Sama á við um þjóð­fé­lög. Þau eiga að setja sér mark­mið á grunni bestu fáan­legu upp­lýs­inga og rann­sókna. Vinna síðan af krafti að því að ná settum mark­miðum.

Eitt þess­ara mark­miða er um bætta lýð­heilsu. Nýjar rann­sóknir sýna að við Íslend­ingar erum eft­ir­bátar ann­arra Norð­ur­landa­þjóða þegar kemur að matar­æði og hreyf­ingu. Við sem rík­is­stjórn höfum sett okkur það verk­efni að móta heil­brigð­is­stefnu þar sem haft verður að leið­ar­ljósi að veita góða þjón­ustu þegar eitt­hvað bjátar á, en gera jafn­framt for­vörnum og lýð­heilsu­m­ark­miðum hátt undir höfði. Þannig horfum við til fram­tíðar í þeim til­gangi að bæta heilsu lands­manna og draga úr álagi á heil­brigð­is­kerfið vegna lífstílstengdra sjúk­dóma.

Tökum annað dæmi úr allt annarri átt. Í upp­hafi tíunda ára­tug­ar­ins var mikil umræða um ein­hæfan útflutn­ing. Við fluttum fyrst og fremst út fisk. Eggin voru öll í sömu körf­unni. Talað var um að við þyrftum að stór­auka útflutn­ing til að lífs­kjör okkar gætu stað­ist sam­an­burð við nálægar þjóðir. Við þyrftum jafn­framt að auka fjöl­breytni útflutn­ings. Aðgerðir okkar þyrftu að bein­ast að þessu.

Nú ald­ar­fjórð­ungi síðar hefur verð­mæti útflutn­ings á föstu verð­lagi þre­fald­ast. Okkur hefur tek­ist að halda uppi góðum lífs­gæðum á nær alla mæli­kvarða sem máli skipta.  Það sem meira er, okkur hefur tek­ist að skjóta fleiri og  sterk­ari stoðum undir útflutn­ing. Við sýndum fram­sýni og það skil­aði góðum árangri. 

En við verðum að halda áfram og standa okkur í sam­keppni þjóð­anna. Við þurfum að tvö­falda verð­mæti útflutn­ings á næstu 15 árum. Hvernig gerum við það? Varasamt er að treysta á að okkur tak­ist það með því einu að auka magn útfluttrar vöru, svo sem sjáv­ar­fangs eða málma.  Nær er að leggja áherslu á aukna verð­mæta­sköpun úr því sem við höfum úr að spila.   Og við verðum að byggja á hug­viti til að fram­leiða vörur og þjón­ustu í alþjóð­legri sam­keppni. Þar liggja sókn­ar­færi okkar til auk­ins útflutn­ings til fram­tíðar. Nýsköpun og þróun eru lyk­il­orðin. Rík­is­stjórnin hyggst styðja mynd­ar­lega við rann­sóknir og þróun og hlut­verk sam­keppn­is­sjóða verður víkkað út til rann­sókna á sviði skap­andi greina.

Til að ná þessum árangri og bæta sam­keppn­is­hæfni Íslands þurfum við að bæta menntun. Menntun er lyk­ill­inn að fram­tíð­inni. Hún gerir okkur kleift að skapa það hug­vit sem útflutn­ingur okkar bygg­ist á. Menntun gerir börnin okkar betur fær að stand­ast alþjóð­lega sam­keppni en setur jafn­framt þá pressu á okkur að bjóða ungu kyn­slóð­inni sam­keppn­is­hæf lífs­kjör í alþjóða­væddum heimi. Menntun gerir okkur líka betur í stakk búin að takast á við tækni­breyt­ingar. Ný bylt­ing í atvinnu­háttum er framundan en við vitum ekki hvaða áhrif hún mun hafa á ein­stakar atvinnu­greinar. Eitt dæmi er sjálfa­kandi bílar. Við vitum ekki hvort þeir muni leiða til fjölg­unar eða fækk­unar bíla. Menntun hjálpar okkur að takast á við hið óvænta og óþekkta þótt óljóst sé hvernig hún verði að lokum nýtt. Rík­is­stjórnin mun því beita sér fyrir því að öll skóla­stig verði efld. Það er fram­sýni.

Ein stærsta ógn sam­tím­ans er hlýnun jarðar af völdum gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Við þurfum að axla ábyrgð í sam­fé­lagi þjóð­anna. Svo aftur sé vitnað í Tómas: „En mörgum finnst hún dýr þessi hót­eld­völ, þó deilt sé um hvort hót­elið sjálft muni græða. En við sem ferð­umst eigum ei ann­ars völ. Það er ekki um fleiri gisti­staði að ræða.“ Í aðgerð­ar­á­ætlun í tengslum við Par­ís­ar­sam­komu­lagið hyggst rík­is­stjórnin setja græna hvata og hvetja til skóg­ræktar, land­græðslu og orku­skipta í sam­göngum. Í stjórn­ar­sátt­mál­anum er kveðið á um að ekki verði efnt til nýrra íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna meng­andi stór­iðju.

Ljóð Tómasar á einnig vel við um ferða­þjón­ust­una, hinn nýja burða­rás gjald­eyr­is­tekna í íslenskum þjóð­ar­bú­skap og helstu ástæðu ört vax­andi gjald­eyr­is­forða. Vel­gengni þess­arar atvinnu­greinar bygg­ist á þrot­lausri vinnu og öfl­ugu mark­aðs­starfi. Við þurfum hins vegar að fara að öllu með gát. Við þurfum að hugsa fram á veg­inn og ekki glutra niður ein­stæðu tæki­færi til lang­tíma­hag­sældar með skamm­tíma­sjón­ar­miðum og ein­skipt­is­gróða. Jafn­framt er nauð­syn­legt að öðl­ast betri skiln­ing á áhrifum ferða­þjón­ust­unnar á aðrar atvinnu­greinar, ekki hvað síst á sprota­fyr­ir­tæki í alþjóð­legri sam­keppni.

Ég get ekki látið hjá líða að minn­ast með miklu þakk­læti á þrot­laust starf lög­reglu, björg­un­ar­sveita og land­helg­is­gæslu und­an­farna daga við leit og rann­sókn á máli Birnu Brjáns­dóttur. Með hjálp fjöl­miðla höfum fylgst með þraut­þjálf­uðu fólki leggja nótt við dag til að upp­lýsa þetta átak­an­lega mál sem hefur hreyft við okkur öllum. Í sorg­inni yfir að sjá svo svip­lega á bak ungri konu í blóma lífs­ins hefur verið huggun í þeim sam­hug og sam­stöðu sem þjóðin hefur sýnt, í við­brögðum almenn­ings sem  hefur leitað Birnu, veitt upp­lýs­ingar og sýnt for­eldrum hennar og ást­vinum hlýju og stuðn­ing.

Ég votta fjöl­skyldu Birnu og aðstand­endum inni­lega samúð mína.

Hæst­virtur for­seti, góðir lands­menn.

Rík­is­stjórnin er að hefja nýtt kjör­tíma­bil, nýja veg­ferð sem stendur fram á þriðja ára­tug þess­arar aldar. Á kjör­tíma­bil­inu minn­umst við 100 ára full­veldis Íslands og 75 ára afmælis lýð­veld­is­ins. Við getum verið stolt af for­feðrum okkar og -mæðrum, bar­áttu­þreki þeirra og fram­tíð­ar­sýn. Þau tóku við þröngu búi en með vilja og fram­sýni tókst að bæta kjör þjóð­ar­innar.

Við getum einnig verið stolt af því hvernig við, kyn­slóð­irnar sem á eftir fylgdu, höfum byggt upp vel­ferð­ar­sam­fé­lag í fremstu röð. Við getum verið stolt af land­inu okkar.

Við eigum að halda þessu góða starfi áfram og hlúa vel að umhverfi okkar sem er í sífelldri þróun. Rík­is­stjórnin setur sér þannig það mark­mið að Ísland verði eft­ir­sókn­ar­vert fyrir alla þá sem vilja taka þátt í að byggja upp íslenskt sam­fé­lag til fram­tíðar. Samfélag þar sem mann­rétt­indi, jöfn tæki­færi, fjöl­breytni, frelsi og ábyrgð ásamt virð­ingu fyrir ólíkum lífs­skoð­unum mynda sterkan grunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár