Theodóra: Sorglegt hvernig lögð er „ofuráhersla“ á að Bjarni hafi setið á skýrslunni

Þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar segir að fólk sé enn að drukkna í skulda­feni vegna mis­taka Sam­fylk­ing­ar­innar og að fyr­ir­tæki hafi verið rekin í gjald­þrot með ólög­mætum hætti. Hún kallar eftir alls­herj­ar­upp­gjöri við stefnu vinstri­st­jórn­ar­innar í skulda­málum heim­ila og fyr­ir­tækja.

Theodóra S. Þor­steins­dóttir, þing­flokks­for­maður Bjartrar fram­tíðar, gagn­rýnir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar fyrir að „leggja ofurá­herslu á hvort“ Bjarni Bene­dikts­son fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra hafi setið á skýrsl­unni um skipt­ingu höf­uð­stólslækk­unar hús­næð­is­lána fram yfir kosn­ingar. 

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hún birti á Facebook í dag. Eins og greint var frá fyrr í mán­uð­inum voru loka­drög að skýrslu um skipt­ingu leið­rétt­ing­ar­innar milli þjóð­fé­lags­hópa til­búin í júní 2016 og vinnslu við hana lokið fyrir kosn­ingar í októ­ber 2016. Hún var hins vegar ekki birt fyrr en 18. jan­úar síð­ast­lið­inn að frum­kvæði Bene­dikts Jóhann­es­sonar, nýs fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Skýrslan varpar ljósi á það hvernig stór hluti af þeim fjár­munum sem varið var til höf­uð­stólslækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána á síð­asta kjör­tíma­bili rann til stór­eigna­fólks.

Theodóra telur að sömu aðilar og gagn­rýna Bjarna Bene­dikts­son fyrir að hafa setið á skýrsl­unni fram yfir kosn­ingar – en slík gagn­rýni hefur einkum heyrst frá þing­mönnum Vinstri grænna, Pírata og Sam­fylk­ing­ar­innar – séu þannig að „kom­ast hjá því“ að ræða um inni­hald skýrsl­unnar. Hún kallar eftir upp­gjöri við þá stefnu sem rekin var í stjórn­ar­tíð Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna að því er varðar skulda­mál heim­ila og fyr­ir­tækja. 

„Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­rétt­ing­unni eða sátu hjá kom­ast hjá því að ræða inni­hald skýrsl­unnar og leggja ofurá­herslu á hvort ráð­herra hafi setið á henni yfir kosn­ingar,“ skrifar Theodóra. Nær allir þing­menn Vinstri grænna, Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata greiddu atkvæði gegn frum­varpi um höf­uð­stólslækkun verð­tryggðra hús­næð­is­lána árið 2014 en Fram­sókn­ar­flokk­inn, sem nú er í stjórn­ar­and­stöðu, stóð að mál­inu ásamt Sjálf­stæð­is­flokknum. 

Theodóra vitnar í bréf Árna Páls Árna­sonar, fyrr­ver­andi for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, til flokks­systk­ina þar sem hann sagði Sam­fylk­ing­una hafa tekið að sér „í of ríkum mæli að útskýra fyrir fólki að það ætti að borga skuldir sínar“ í stað þess að taka sér „stöðu með fólki gegn fjár­mála­kerfi“. 

Theodóra full­yrðir að Sam­fylk­ingin hafi enn tæki­færi til „að leið­rétta þessi mis­tök“. Hún skrifar: „Fólk er enn að drukkna í skuld­ar­feni [sic] og það er óupp­gert tjón hund­ruða heim­ila vegna nákvæm­lega þess­ara mis­taka sem Sam­fylk­ingin gerði. Væri fal­legt að sjá Vinstri græna fara í sam­bæri­lega innri skoðun og jafn­vel fleiri flokka. Þar fyrir utan þurfum við upp­gjör á þeim úrræðum sem flokk­arnir buðu upp á eftir banka­hrunið. Ein skýrsla um "Leið­rétt­ing­una" dugar ekki. Sorglegt að horfa upp á þá sem kusu með leið­rétt­ing­unni eða sátu hjá kom­ast hjá því að ræða inni­hald skýrsl­unar [sic] og leggja ofurá­herslu á hvort ráð­herra hafi setið á henni yfir kosn­ingar. Skýrsla um þau fyr­ir­tæki sem rekin voru í gjald­þrot með ólög­mætum hætti væri gagn­leg, heild­ar­skýrsla um öll þau úrræði sem í boði voru er nauð­syn­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár