Þáði gjöf frá Hreyfingu og kom fram í umfjöllun þar sem þjónusta fyrirtækisins var kynnt

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, þiggur aðstoð, leið­bein­ingar og lík­ams­mæl­ingar í boði Hreyf­ingar. Um leið kom hann fram í umfjöllun á Smartlandi þar sem kostir þjón­ust­unnar eru kynntir. Eig­in­kona utan­rík­is­ráð­herra er fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins.

Þáði gjöf frá Hreyfingu og kom fram í umfjöllun þar sem þjónusta fyrirtækisins var kynnt

Brynjar Níelsson, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis, hefur þegið gjald­frjálsa þjón­ustu hjá lík­ams­rækt­ar­stöð­inni Hreyf­ingu. Frá þessu greinir hann í við­tali við RÚV í dag, en eins og Stundin fjall­aði um í gær kemur Brynjar fram í umfjöllun Smartlands þar sem þjón­usta fyr­ir­tæk­is­ins er kynnt. Umfjöll­unin er aug­lýs­ingu lík­ust og texta­út­gáfa hennar hefst með því að Ágústa Johnson, fram­kvæmda­stjóri Hreyf­ingar og eig­in­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra, segir frá kostum svo­kall­aðrar Boditrax–tækni sem fyr­ir­tækið býður upp á. 

Stundin sendi Mörtu Maríu Jón­as­dóttur, rit­stjóra Smartlands, tölvu­póst um helg­ina og spurði hvort umfjöll­unin væri kostað efni eða hefð­bundin umfjöllun. „Þetta er hefð­bundið lífs­stíls­efni, ekki kostað,“ svar­aði hún.

Í við­tali við Brynjar á RÚV kemur fram að Ágústa Johnson hafi boð­ist til að veita honum aðstoð við að koma sér í form. Aðstoðin felist í því að fá leið­bein­ingar og mæl­ingar og það sé í boði Hreyf­ingar. „Ég fæ þarna bara aðstoð og ef menn vilja líta á það sem hlunn­indi, þá kemur það bara í ljós. Þetta er ekk­ert öðru­vísi en að ein­hver bjóði þér í mat. Okkur þing­mönnum eru boðnir alls konar hlutir sem öðrum eru ekki boðnir alla jafna. En þetta eru ekki slík gæði að þetta sé orðin spurn­ing um brot á siða­reglum,“ er haft eftir Brynjari. „Okkur er stundum boðið í mat. Eitt­hvert eitt skipti skiptir ekki öllu máli. En það eru auð­vitað mörk á þessu.“

Hann telur sig ekki hafa farið á svig við siða­reglur þing­manna, en þar er meðal ann­ars kveðið á um að þing­menn skuli forð­ast hags­muna­á­rekstra í starfi sínu og ekki taka við óvið­eig­andi greiðslu eða gjöf.  Jafn­framt skuli þing­menn ekki nota aðstöðu sína til þess að vinna að eigin hags­munum eða hags­munum ann­ars aðila þannig að ekki sam­rým­ist siða­regl­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár