Kannar hvort útvista megi eftirlitsverkefnum hins opinbera í ríkari mæli

„Ráðherra telur að útvistun eft­ir­lits­verk­efna kunni að vera hag­kvæm og hyggst láta kanna hvort útvista megi verk­efnum í rík­ari mæli,“ segir í svari Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar.

Kannar hvort útvista megi eftirlitsverkefnum hins opinbera í ríkari mæli

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, telur að það geti verið hag­kvæmt að útvista starf­semi eft­ir­lits­stofn­ana sem undir hana heyra og ætlar að láta kanna hvort slíkt megi gera í rík­ari mæli en nú tíðkast. Hún vill þó að gerður sé grein­ar­munur á eft­ir­liti sem felst í því að ákvarða hvort aðilar upp­fylli til­tekin hlut­læg við­mið og hins vegar eft­ir­liti sem byggir á mats­kenndum reglum. Þetta kemur fram í svari ráð­herra við fyr­ir­spurn Óla Björns Kára­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem spurði alla ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar á des­em­ber­þingi hvort þeir hefðu látið kanna kosti þess og galla að útvista starf­semi eft­ir­lits­stofn­ana til einka­að­ila að hluta eða öllu leyti. 

„Fyrir utan þau verk­efni sem fyrr greinir hafa ekki verið kann­aðir kostir og gallar þess að útvista starf­semi ein­stakra eft­ir­lits­stofn­ana. Þegar um alger­lega hlut­lægar reglur er að ræða getur verið rétt að kanna að faggiltir aðilar sinni eft­ir­liti. Slíkt hefur t.d. gengið vel varð­andi bif­reiða­skoðun, vottun líf­rænnar mat­væla­fram­leiðslu o.fl.,“ segir í svari sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn­inni. „Ráðherra telur að útvistun eft­ir­lits­verk­efna kunni að vera hag­kvæm og hyggst láta kanna hvort útvista megi verk­efnum í rík­ari mæli, t.d. í sam­bandi við end­ur­skoðun á lögum um MAST. Þó ber að gera grein­ar­mun á eft­ir­liti sem felst í því ann­ars vegar að ákvarða hvort aðilar upp­fylli til­tekin hlut­læg við­mið og hins vegar eft­ir­liti sem byggir á mats­kenndum reglum, sér­stak­lega þegar um er að ræða mats­kenndar hátt­ern­is­reglur eins og getur komið upp í t.d. dýra­vernd­un­ar­málum. Útvistun á síður við í til­fellum þar sem um hug­lægt mat er að ræða.“

Útvistun er þýð­ing á enska orð­inu „outsourcing“ og lýsir því þegar stofnun felur utan­að­kom­andi aðilum, svo sem einka­fyr­ir­tækjum, að sinna til­tek­inni þjón­ustu fyrir sig eða verk­efnum gegn greiðslu. Í útvist­un­ar­stefnu rík­is­ins, sem sam­þykkt var í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins árið 2006, er útvistun lýst sem þjón­ustu „sem ríkið kaupir af utan­að­kom­andi aðilum, þ.e. ein­stak­lingum, fyr­ir­tækjum, sjálfs­eign­ar­stofn­unum, félaga­sam­tökum eða sveit­ar­fé­lögum, hvort sem um er að ræða þjón­ustu sem keypt er vegna verk­efna sem ríkið sinnir sjálft eða þjón­ustu sem verk­taka er falið að veita almenn­ingi og fyr­ir­tækjum“. Markmið stefn­unnar var „gott sam­starf við einka­að­ila um úrlausn opin­berra verk­efna þar sem ríkið er ávallt upp­lýstur kaup­andi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár