Sterk hagsmunatengsl styrkveitenda Sjálfstæðisflokksins

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk fimm millj­ónir frá félögum sem hafa hags­muni af úthlutun lóða og bygg­ingar­verk­efna. Til sam­an­burðar fær flokk­ur­inn sjö millj­ónir frá útgerð­inni. „Borg­ar­skipu­lag og fram­kvæmdir, tengdar lóða­skipu­lagi og fleira, er þar sem mark­að­ur­inn og stjórn­málin mæt­ast á sveit­ar­stjórn­ar­stigi,“ segir stjórn­sýslu­fræð­ingur.

Sterk hagsmunatengsl styrkveitenda Sjálfstæðisflokksins
Bæj­ar­stjóri Kópavogs Ármann Kr. Ólafsson kemur víða við sögu. Mynd: Kristinn Ingvarsson

Bygginga-, verk­taka- og fast­eigna­­félög styrktu Sjálf­stæðis­flokk­inn um ríf­lega fimm millj­ónir í fyrra. Það gerir um tutt­ugu pró­sent af heild­ar­upp­hæð styrkja flokks­ins frá fyr­ir­tækjum. Til sam­an­burðar styrktu útgerð­ar­fé­lög flokk­inn um sjö millj­ónir króna. Þessi félög hafa mikla hags­muni af góðu sam­starfi við sveit­ar­fé­lög, fyrst og fremst á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, enda fá þau bæði lóðir og verk­efni úthlutuð frá bæj­ar­yf­ir­völdum. Athygli vekur að flest öll félögin hafa kom­ist í fréttir und­an­farin ár vegna verk­efna í Kraganum en sjálf­stæð­is­menn hafa verið meira og minna við völd í Kópavogi, Garðabæ, Sel­tjarn­ar­nesi og Mos­fellsbæ á tíma­bil­inu.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær lang­­mest allra flokka í styrki frá bygg­inga-, verk­taka- og fast­eigna­félögum. Til sam­an­burðar fær Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn um þrjár millj­ónir frá slíkum félögum og Sam­fylk­ingin um 900 þús­und krónur. Aðrir flokkar fá ekk­ert frá umræddum félögum.

Þar sem markaður og stjórnmál mætast

Stundin ræddi við Sig­ur­björgu Sig­ur­geirs­dóttur, dós­ent í opin­berri stjórn­sýslu við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, og segir hún að borg­ar­skipu­lag og fram­kvæmdir sé þar sem stjórn­mál og mark­aður mæt­ast. „Eitt er að draga beina ályktun af ein­hvers konar orsök og afleið­ingu og hitt er að sjá ein­hvers konar sam­band þarna á milli. Það verður að segja eins og er að borg­ar­skipu­lag og fram­kvæmdir, tengdar lóða­skipu­lagi og fleiru, er þar sem mark­að­ur­inn og stjórn­málin mæt­ast á sveit­ar­stjórn­ar­stigi. Þetta á ekki bara við á Íslandi heldur líka erlendis. Það sem maður getur full­yrt er að hagn­aður er mik­ill og hvat­arnir sömu­leiðis. Ef það er ekki nægi­legt gagn­sæi þá er hægt að segja að við svona tengsl hringi allar bjöllur hjá spill­ing­ar­vökum,“ segir Sig­ur­björg.

Hvað almenna styrki til stjórn­mála­flokka varðar segir Sig­ur­björg að almennt megi líta á ákveðna vænt­ingu inn­byggða í styrkjum. „Það eru skila­boð með vænt­ingum um það sé liðkað til eða það séu ákveðin skil­yrði, að það sé búið í hag­inn fyrir mála­flokka hags­muna, ákveðna vel­vild til að tryggja kring­um­stæður handa þessum hags­munum.“

Sonur eiganda byggingafélags keypti húsið

Bygg­inga­fé­lag Gylfa/Gunnars styrkti Sjálf­stæð­is­flokk­inn um 400 þús­und krónur, sem er hámark þeirrar upp­hæðar sem fyr­ir­tæki mega styrkja flokk með. Í sumar fjall­aði Stundin um tengsl félags­ins við Ármann Kr. Ólafsson, bæj­ar­stjóra Kópavogs og sjálf­stæð­is­manns, sem hefur lagt áherslu á að bæj­ar­skrif­stofur Kópavogs flytj­ist í Norð­ur­turn Smára­lindar sem er að hluta í eigu félags­ins. Starfs­maður Byggs og sonur eig­and­ans keypti ein­býl­is­húsið af Ármanni Kr. sem einnig hefur þegið styrk frá fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fjármál stjórnmálaflokka

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár