Spyr hvort komið hafi verið í veg fyrir hagsmunaárekstra ráðherra vegna samkomulags við aflandskrónueigendur

Björn Valur Gíslason vara­for­maður Vinstri grænna vill vita hvort Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi spurt ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar um hugs­an­leg fjár­hags­leg hags­muna­tengsl vegna sam­komu­lags við eig­endur aflandskróna og breyt­inga á reglum um fjár­magns­flutn­inga.

Spyr hvort komið hafi verið í veg fyrir hagsmunaárekstra ráðherra vegna samkomulags við aflandskrónueigendur

Björn Valur Gíslason, vara­þing­maður og vara­for­maður Vinstri grænna, vill vita hvort Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra hafi kallað eftir upp­lýs­ingum frá ráð­herrum rík­is­stjórn­ar­innar um hugs­an­lega fjár­hags­lega hags­muni þeirra og tengdra aðila vegna sam­komu­lags við eig­endur aflandskróna og breyt­inga á reglum um fjár­magns­flutn­inga. 

Björn lagði fram fyr­ir­spurn um málið á Alþingi í dag. Þar er spurt hvort ein­hverjir ráð­herrar hafi upp­lýst innan rík­is­stjórnar um fjár­hags­lega hags­muni sína eða tengdra aðila vegna máls­ins og hvort for­sæt­is­ráð­herra telji ástæðu til að kalla eftir frek­ari upp­lýs­ingum um hugs­an­lega fjár­hags­lega hags­muni sam­ráð­herra sinna.

Í grein­ar­gerð sem fylgir fyr­ir­spurn Björns Vals er bent á að í ræðu um afnám gjald­eyr­is­hafta á Alþingi þann 13. mars síð­ast­lið­inn sagði Benedikt Jóhann­es­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að miklir hags­munir væru í húfi við afnám haft­anna. Um þau giltu inn­herja­reglur og mik­il­vægt væri að allir mark­aðs­að­ilar sætu við sama borð.

„Sumir þeirra komu á vett­vang stjórn­mál­anna,
og skömmu síðar í ráð­herra­emb­ætti, beint úr störfum fyrir hags­muna­að­ila“

„Í rík­is­stjórn­inni eiga nú sæti nokkrir ráð­herrar sem haft hafa mikil tengsl í atvinnu- og við­skipta­líf­inu. Sumir þeirra komu á vett­vang stjórn­mál­anna, og skömmu síðar í ráð­herra­emb­ætti, beint úr störfum fyrir hags­muna­að­ila og aðrir rak­leitt frá því að vera virkir aðilar og stjórn­endur í fjár­mála- og við­skipta­líf­inu,“ skrifar Björn Valur.

„Nýlegar ráð­staf­anir í gjald­eyr­is­málum geta varðað miklu fyrir ýmsar greinar atvinnu­starf­semi og við­skipta. Mik­il­vægt er að hafið sé yfir allan vafa að ráð­herrar og aðilar þeim tengdir hafi ekki haft hags­muni af slíkum ákvörð­unum umfram almenn­ing og þær kring­um­stæður sem að framan var lýst krefj­ast þess að um það sé spurt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár