Þekktur stjórnmálahagfræðingur segir fjármálareglur Íslendinga fráleitar

Mark Blyth, pró­fessor í stjórn­mála­hag­fræði og höf­undur bók­ar­innar Austerity: The History of a Dangerous Idea, segir útgjalda­reglu rík­is­stjórn­ar­innar mjög óskyn­sam­lega.

Þekktur stjórnmálahagfræðingur segir fjármálareglur Íslendinga fráleitar
Mark Blyth Mynd: Skjáskot af Youtube

Mark Blyth, skoskur pró­fessor í alþjóð­legri stjórn­mála­hag­fræði við Brown háskóla í Banda­ríkj­unum, segir fjár­mála­reglur íslenskra stjórn­valda van­hugs­aðar og til þess fallnar að grafa undan sjálf­virkum sveiflu­jöfn­urum rík­is­fjár­mál­anna. Honum finnst sorg­legt að rík­is­fjár­mála­stefna af þessu tagi sé við lýði á Íslandi. 

Blyth er þekkt­astur fyrir bók sína Austerity: The History of a Dangerous Idea sem kom út árið 2012 og vakti heims­at­hygli. Þar er fjallað með ítar­legum hætti um skað­leg áhrif aðhalds- og nið­ur­skurð­ar­stefnu í efna­hags­málum og þá hug­mynda­fræði sem býr að baki slíkri hag­stjórn. 

Stundin hafði sam­band við Mark Blyth og bar undir hann þær fjár­mála­reglur sem kynntar hafa verið til sög­unnar á Íslandi; ann­ars vegar fjár­mála­regl­una sem lög­fest var þegar lög um opin­ber fjár­mál voru sam­þykkt á Alþingi árið 2015 og hins vegar útgjalda­þakið og stefnu­við­miðið um tekjur hins opin­bera í fjár­mála­á­ætlun og fjár­mála­stefnu núver­andi rík­is­stjórnar.

„Maður getur skilið hvatann á bak við svona reglur hjá t.d. Þjóð­verjum, þar sem ótt­inn við skuld­setn­ingu hins opin­bera er gríð­ar­legur og í raun fjar­stæðu­kenndur en á sér þó djúpar sögu­legar rætur, og t.d. í Brasilíu þar sem gríð­ar­leg sundr­ung og full­komið van­traust ríkir… en hvers vegna eru Íslend­ingar að þessu? Þetta er mjög dap­ur­legt að heyra,“ segir Blyth. 

Í lögum um opin­ber fjár­mál er kveðið á um að halla­rekstur rík­is­ins megi ekki nema meira en 2,5 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu. Í rík­is­fjár­mála­á­ætlun núver­andi rík­is­stjórnar eru tekjöflun rík­is­ins settar sér­stakar skorður með stefnu­miði um að frum­tekjur hins opin­bera megi ekki aukast umfram hag­vöxt en sams konar reglu var að finna í fjár­mála­á­ætlun síð­ustu stjórnar. Í fjár­mála­stefnu núver­andi rík­is­stjórnar er svo einnig að finna sér­stakt útgjalda­þak; þá reglu að heild­ar­út­gjöld hins opin­bera mega ekki nema meira en 41,5 pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu næstu árin. 

Seðla­bank­inn hefur gagn­rýnt stefnumið síð­ustu rík­is­stjórnar um tekju­öflun harð­lega og sagt að skorð­urnar sé sveiflu­auk­andi og afar baga­legar. Þá hefur fjár­mála­ráð bent á að útgjalda­reglan geti orðið til þess að stjórn­völd fest­ist í „spenni­treyju“ eigin fjár­mála­stefnu ef hag­vöxtur reyn­ist ekki jafn mik­ill og gert er ráð fyrir. 

Mark Blyth tekur undir þessa gagn­rýni. „Þetta grefur undan sjálf­virku sveiflu­jöfn­ur­unum og getur þannig dýpkað efna­hagslægð­ina þegar þar að kemur,“ segir hann. Þá furðar hann sig á að Alþingi hafi lög­fest regl­una um tak­mörkun á svig­rúmi til halla­rekst­urs rík­is­sjóðs þegar lög um opin­ber fjár­mál voru sett árið 2015, enda sé frá­leitt sé að binda hendur fjár­veit­ing­ar­valds­ins með slíkum hætti. „Það er sorg­legt að sam­fé­lag eins og Ísland taki upp á slíku til þess eins að spara nokkra skild­inga,“ segir hann.

Hann bendir á að fjár­mála­reglur á borð við þessar séu að verða æ algeng­ari. Þannig sé engu lík­ara en að reynt sé að festa í sessi, og gera nán­ast óaft­ur­kræfa, þá aðhalds­stefnu sem riðið hefur húsum víða um heim und­an­farna ára­tugi. Slíkt gagn­ist engum nema lán­ar­drottnum og ráð­andi stéttum.

Hér má sjá mynd­skeið frá 2010 þar sem Mark Blyth fjallar um aðhalds­stefnu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár