Fréttamál

Fjármálaáætlun 2018-2022

Fréttir

Stjórnar­liðar lögðust gegn tillögum um aukin framlög til heil­brigðis- og mennta­mála

Fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar var samþykkt með 32 atkvæðum gegn 31 í nótt. Þings­ályktunin gengur í ýmsum grundvallar­atriðum í berhögg við grunn­gildi laga um opinber fjármál og hefur sætt harðri gagnrýni, meðal annars frá stjórn­endum spítala og mennta­stofnana. Engar breytingar voru gerðar á málinu við meðferð þess á þingi þrátt fyrir að hátt í 200 umsagnir hafi borist.
Fréttir

Ríkis­stjórnin eykur ekki framlög til LÍN þrátt fyrir gagnrýni Bjartrar framtíðar fyrir kosningar

Ríkis­stjórnin hefur sömu stefnu í náms­lánamálum og seinasta ríkis­stjórn, ef marka má fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar 2018-2022. Sömu markmið eru í fjármála­áætlun ríkis­stjórnarinnar og í LÍN-frumvarpi Illugi Gunnars­sonar, fyrr­verandi mennta- og menningar­mála­ráðherra, sem lagt var fyrir á seinasta kjör­tímabili. Björt framtíð gagnrýndi frum­varpið harðlega og í aðdrag­anda kosninga sagði Óttarr Proppé, heilbrigðis­ráðherra, að frum­varpið væri óréttlátt og bitnaði mest á tekju­lægri einstak­lingum og konum.

Mest lesið undanfarið ár