Þekktur stjórnmálahagfræðingur segir fjármálareglur Íslendinga fráleitar

Mark Blyth, prófessor í stjórnmála­hagfræði og höfundur bókarinnar Austerity: The History of a Dangerous Idea, segir útgjalda­reglu ríkis­stjórnarinnar mjög óskynsamlega.

Mark Blyth
Mark Blyth Mynd: Skjáskot af Youtube

Mark Blyth, skoskur prófessor í alþjóðlegri stjórnmála­hagfræði við Brown háskóla í Banda­ríkjunum, segir fjármála­reglur íslenskra stjórn­valda vanhugsaðar og til þess fallnar að grafa undan sjálf­virkum sveiflu­jöfnurum ríkis­fjármálanna. Honum finnst sorglegt að ríkis­fjármála­stefna af þessu tagi sé við lýði á Íslandi. 

Blyth er þekktastur fyrir bók sína Austerity: The History of a Dangerous Idea sem kom út árið 2012 og vakti heims­athygli. Þar er fjallað með ítarlegum hætti um skaðleg áhrif aðhalds- og niður­skurðar­stefnu í efnahags­málum og þá hugmynda­fræði sem býr að baki slíkri hagstjórn. 

Stundin hafði samband við Mark Blyth og bar undir hann þær fjármála­reglur sem kynntar hafa verið til sögunnar á Íslandi; annars vegar fjármála­regluna sem lögfest var þegar lög um opinber fjármál voru samþykkt á Alþingi árið 2015 og hins vegar útgjalda­þakið og stefnu­viðmiðið um tekjur hins opinbera í fjármála­áætlun og fjármála­stefnu núverandi ríkis­stjórnar.

„Maður getur skilið hvatann á bak við svona reglur hjá t.d. Þjóð­verjum, þar sem óttinn við skuld­setningu hins opinbera er gríðar­legur og í raun fjarstæðu­kenndur en á sér þó djúpar sögulegar rætur, og t.d. í Brasilíu þar sem gríðarleg sundrung og fullkomið vantraust ríkir… en hvers vegna eru Íslendingar að þessu? Þetta er mjög dapurlegt að heyra,“ segir Blyth. 

Í lögum um opinber fjármál er kveðið á um að halla­rekstur ríkisins megi ekki nema meira en 2,5 prósentum af vergri lands­framleiðslu. Í ríkis­fjármála­áætlun núverandi ríkis­stjórnar eru tekjöflun ríkisins settar sérstakar skorður með stefnu­miði um að frum­tekjur hins opinbera megi ekki aukast umfram hagvöxt en sams konar reglu var að finna í fjármála­áætlun síðustu stjórnar. Í fjármála­stefnu núverandi ríkis­stjórnar er svo einnig að finna sérstakt útgjaldaþak; þá reglu að heildar­útgjöld hins opinbera mega ekki nema meira en 41,5 prósentum af vergri lands­framleiðslu næstu árin. 

Seðla­bankinn hefur gagnrýnt stefnumið síðustu ríkis­stjórnar um tekju­öflun harðlega og sagt að skorðurnar sé sveiflu­aukandi og afar bagalegar. Þá hefur fjármálaráð bent á að útgjalda­reglan geti orðið til þess að stjórn­völd festist í „spenni­treyju“ eigin fjármála­stefnu ef hagvöxtur reynist ekki jafn mikill og gert er ráð fyrir. 

Mark Blyth tekur undir þessa gagnrýni. „Þetta grefur undan sjálf­virku sveiflu­jöfnurunum og getur þannig dýpkað efnahags­lægðina þegar þar að kemur,“ segir hann. Þá furðar hann sig á að Alþingi hafi lögfest regluna um takmörkun á svigrúmi til halla­reksturs ríkis­sjóðs þegar lög um opinber fjármál voru sett árið 2015, enda sé fráleitt sé að binda hendur fjár­veitingar­valdsins með slíkum hætti. „Það er sorglegt að samfélag eins og Ísland taki upp á slíku til þess eins að spara nokkra skildinga,“ segir hann.

Hann bendir á að fjármála­reglur á borð við þessar séu að verða æ algengari. Þannig sé engu líkara en að reynt sé að festa í sessi, og gera nánast óafturkræfa, þá aðhalds­stefnu sem riðið hefur húsum víða um heim undan­farna áratugi. Slíkt gagnist engum nema lánardrottnum og ráðandi stéttum.

Hér má sjá myndskeið frá 2010 þar sem Mark Blyth fjallar um aðhalds­stefnu:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár